Feykir - 27.09.1995, Page 1
©
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Útflutningur á lambakjöti:
Hugsanlegt sam-
starf við ÍS í bið
„Við teljum það ákjósanlegt
þegar þeir aðilar sem mesta
reynslu hafa af sölu og mark-
aðssetningu íslenskra matvæla
erlendis, sem óumdeilanlega
eru IS og SH í fiskafurðunum,
lýsa sig tilbúna til samvinnu
um sölu á dilkakjöti. Við vilj-
um gjarnan láta reyna á slíkt
samstarf í kjötsölumálum“,
segir Þórólfúr Gíslason kaup-
félagsstjóri.
Þórólfur segir aó þetta fyrir-
hugaöa verkefhi sé enn á undir-
búningsstigi, en IS-menn hafa
lýst sig tilbúna til samvinnu um
sölu á íslensku lambakjöti sé til
þess vilji. Haft hefur verið sam-
band viö kaupfélög sem reka
sláturhús víðsvegar um landiö
varöandi þátttöku og vænst er
svara frá þeim um næstu mán-
aðamót.
Stjóm Framleiðnisjóðs land-
búnaðarins haínaði í sumar þátt-
töku í verkefninu, en vonir
standa til að sjóðurinn endurmeti
þá afgreiðslu liggi fyrir almenn
þátttaka sláturhúsanna í verkefh-
inu. Fyrir liggur að talsvert fjár-
magn þarf til að leggja út í þessa
tilraun. Nefnt hefur verið 15- 20
milljónir króna. Það má því
segja að boltinn sé nú hjá for-
ráðamönnum sláturhúsa kaupfé-
laganna um land allt, en ffam til
þessa hefur lítið gengið með
markaðssetningu á íslensku
lambakjöti erlendis.
Þeir voru ekki öfundsverðir busarnir í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra þegar þeir voru
vígðir sl. föstudag. Veður var hálfhryssingslegt, kalsaveður. Busarnir voru leiddir með bundið
fyrir augu út í Sauðána og látnir kjúpa þar á fleka. I þann mund sem leyst hafði verið frá
augum þeirra kom svo steypibaðið, úr fúllri vatnsfötu sem skvett var framan í busana. Vígslan
fór vel fram og busaballið fjölmennt, en skiljanlega gætti þreytu hjá mörgum er leið á nóttina.
Bílar með fölsuðum mæli út á land
Grunsemdir hafa vaknað um að óprúttn-
ir aðilar í bílaviðskiptum hyggist nú
beina viðskiptum sínum í meira mæli en
áður út á landsbyggðina, eftir að upp
komu mái vegna sölu á tveimur bifreið-
um á Sauðárkróki nýlega, þar sem sterk-
ur grunur leikur á að mælar bflanna hafi
verið skrúfaðir niður. Þessir bflar komu
báðir frá bflasölu einni í Reykjavík, og
eru fleiri bflar frá þessari sömu bflasölu
nú til sölu á Sauðárkróki. Eftir að þetta
kom á daginn þykir ástæða til að benda
þeim á sem standa í bílaviðskiptum, að
láta ganga rækilega úr skugga um feril
bflanna sem þeir hyggjast kaupa.
Annar þeirra tveggja sem lenti í þessum
viðskiptum, sagði í samtali við Feyki, að
það hafi verið nokkru eftir að viðskiptin fóru
ffam sem símtal hafi orðið til þess að kvikn-
að hafði á pemnni hjá sér. „Það er hugsan-
legt að ef ekki hefði komið til þessa símtals,
þá hefði ég átt bílinn áffam án þess að gera neitt
í málunum. Þó fannst mér dálítíð undarlegt
að það voru famir að fara hlutir í bílnum
sem ekki áttu að gefa sig fyrr en eftir meiri
keyrslu, og ég var líka búinn að eiga bílinn í
mjög stuttan tíma þegar þetta gerðist". Það
var Bílasala Baldurs á Sauðárkróki sem
seldi þessa bíla. Baldur Heiðdal bílasali
sagðist í samtali við Feyki kannast við þessi
tvö mál, en frá þeim hefði verið gengiö í
sátt. Aðspurður sagðist Baldur ekkert hafa
um þetta vitað og aö hans áliti væri sökin
ekki heldur hjá Nýju bílasölunni í Reykja-
vík, þaðan sem bílamir komu. „Þetta var
einhver strákur, bifvélavirki í Reykjavík
skilst mér, sem var þama aö verki“, sagði
Baldur. Hann sagði enga ástæóu til að óttast
um að svipað væri ástatt með nokkra aðra
bíla sem hann hefði nú til sölu og komið
heföu ffá bílasölunni syðra.
Ingimar Sigurðsson formaður Félags lög-
giltra bifreiðasala sagði í samtali við Feyki
að samtökin hefðu átt tfumkvæmið að því
að rannsaka málið. Fylgst var með tveimur
bílum sem vom til sölu hjá Nýju bílasölunni
og fluttir vom út á land til sölu. Annar bíl-
anna fór á Sauðárkrók og hinn vestur á firði.
Ingimar sagði að þeir hefðu báðir reynst
með niðurskrúfaða mæla þegar þeir komu
þangað. „Þaö er gert út á þetta og það er
mjög slæmt fyrir stéttina, þegar við emm að
reyna að breyta og bæta ímynd bflasölunnar
í landinu. Vió emm að reyna að skjóta mál-
um til rannsóknarlögreglunnar, en hún seg-
ist ekkert geta aðhafst fyrr en kæra liggur
fyrir ffá einhverjum þeim sem í þessum vió-
skiptum lendir“, sagði Ingimar, sem jafh-
framt því að vera formaður samtakanna ný-
stofnuðu er eigandi Nýju bílahallarinnar í
Reykjavík.
Skýringin á því hvers vegna engin kæra
liggur fyrir í málum sem þessum, gæti legið
í því sem annar þeinra er lenti í viðskiptun-
um á Sauðárkróki sagði: ,Jvtaður þorir ekki
að gera neitt eða kæra. Þetta mundi taka 2-3
ár fyrir dómstólunum og á meðan geta þess-
ir karlar verið búnir að láta gera sig upp eða
famir á hausinn“.
Kári Snorrason framkvæmda-
stjóri Særúnar á Blönduósi og
Óttar higvarsson ffamkvæmda-
stjóri íslensku útflutningsmið-
stöðvarinnar eru þessa dagana
staddir á Grænlandi að skoða
tvo grænlenska rækjutogara,
sem taldar eru miklar líkur á að
keyptir verði til landsins.
Aætlað er að þessi kaup verði
geið í nafni Rækjuvers á Bíldudal
og Særúnar á Blönduósi, en Dög-
un á Sauöáikróki kemur einnig til
með að vinna smærri rækju frá
skipunum. Islenska útflutnings-
miðstöðin er stærsti eignaraðilinn í
öllum þessum fyrirtækjum. Gert er
ráð fyrir að kaupverð beggja
skipanna verði um 230 milljónir
króna. Þau em um 400 og 1000
tonn að stæró.
—Kte^il! I*|DI—
Aðcdgötu 24 Skr. sími 453 5519, bílas. 853 1419, fax 453 6019
Almenn verktakaþj ónusta,
Frysti- og kœliþjónusta,
Bíla- og skiparafmagn,
Véla- og verkfœraþjónusta
yíMTtbílaverkstæði
Æ J.Æ.M-ÆL Sími 453 5141
Sœm undargötu 16 Sauöárkróki íax: 453 6140
Bílaviðgerðir Hjólbarðaverkstœði
Réttingar Sprautun