Feykir - 27.09.1995, Page 2
2 FEYKIR 33/1995
Algengasti mátinn við sundurdráttinn í Skrapatungurétt er að hrossin eru rekin í dilkana. Hér
eru menn í rólegheitum að vinsa úr hópnum.
Svipmyndir úr Skrapatungu
Skrapatungurétt er helsta
stóðréttin í Austur-Húnavatns-
sýslu og það er að verða æ al-
gengara að hestaáhugafólk leggi
leið sína þangað. Það var nokkuð
líflegt í réttinni þegar blaða-
maður Feykis var þar á ferðinni
um hádegisbil sl. sunnudag.
Gangnamenn vom að vísu orðnir
nokkuð slæptir eftir langa töm.
Þeir lentu í erfiðum göngum að
þessu sinni. Það var sérstaklega
fyrsti dagur gangnanna sem var
slæmur, föstudagurinn. Þá vom
Tröllabotnar og Þverárfjall geng-
ið. Og það var grenjandi hríð á
þessum slóðum. Á laugardag var
komið ágætis veður og sú var
einnig raunin á réttardaginn.
En það var ekki alltaf sem hrossin létu að stjórn eftir að hafa notið frelsisins í sumar-
högunum.
Þessir tveir voru samtaka í drættinum.
Veiðimenn að Ioknum fengsælum degi við Laxá á Ásum.
Húnvetnskar laxveiðiár:
Góð veiði í sumar
Fyrir liggja nú tölur um heildarveiði í laxveiðiám í
Húnþingi á liðnu sumri. Veiði í ánum var yfir heildina
mun betri en í fyrra. Mest varð aukningin í Miðfjarðará
milli ára, rúmir 400 laxar. Kunnur laxveiðimaður, Jón
Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur, telur liðið sumar
eitt besta veiðitímabilið í mörgum laxveiðiáa í
Húnaþingi.
Veiðin í ánum í sumar var eftirfarandi. I aftari dálki er
veiði í ánum í fyrra.
Hrútafjarðará 280.... 176
Miðfjarðará 1020 666
Gljúfurá 38.... 20
Víðidalsá 981 571
Vatnsdalsá 604 504
Laxá á Ásum 1062 794
Blanda 519 360
Svartá 532 380
Laxá í Refasveit 135 144
Samtals (5671)..., ....(3621)
ÍFEYKIR
JL óhM fréttabUð á Norðurlandl v«stra
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
45 35757. Myndsími 45 36703. Ritstjóri Þór-
hallur Ásmundsson. Fréttaritarar: Eggert
Antonsson og Óm Þórarinsson. Blaðstjóm: Jón
F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson,
Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson
og Stefán Ámason. Áskriftarverð 137 krónur
hvert tölublað m/vsk. Lausasöluverð 150 kr.
m/vsk. Setning og umbrot Feykir. Prentun
Sást hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.