Feykir - 27.09.1995, Blaðsíða 5
33/1995 FEYKIR5
Uppskeruhátíð
knattspyrnumanna
Knattspyrnumenn í Tinda-
stóli héldu uppskeruhátíö sína
um helgina. Elstu aldursflokk-
arnir komu saman í Bifröst á
laugardagskvöld og yngri
flokkar félagsins fengu afhent-
ar sínar viðurkenningar á
sunnudeginum. Að þessu sinni
var bryddað upp á þeirri ný-
breytni að veita öllum þeim
sem stunduðu knattspyrnu í
yngri flokkum í sumar viður-
kenningar.
Fjölmenni var mætt á upp-
skeruhátíð eldri aldursflokkanna
í Bifröst á laugardagskvöldið.
Hefur þessi samkoma ekki verið
jafnfjölmenn fyrr. Það var ífam-
kvæmdastjóri knattspymudeild-
arinnar, Olafur Jónsson sem
gerði sér lítið fyrir og ffamreiddi
ásamt sínu fólki úrvals kjötmál-
tíð, og skemmtiatriði voru í
höndum skemmtinefndar þar
sem Guðbrandur Guðbrandsson,
Stefán Vagn Stefánsson, Gísli
Sigurðsson og Hilmar Hilmars-
son voru í aðalhlutverki. Veislu-
stjóri var Stefán Logi Haralds-
son.
I ávaipi Omars Braga Stefáns-
sonar formanns knattspyrnu-
deildar kom fram að ágætis ár-
angur hefói náöst í sumar, þrátt
fyrir að öll markmið hefðu ekki
náðst. Til að mynda komust báð-
ir meistaraflokkamir í úrslit og
sömuleiðis státar 3. flokkur
kvenna af þeim árangri. Kvað
Omar Bragi alls engu að kvíða í
boltanum ef menn héldu áfram á
sömu braut og sameinuðust um
að gera sitt besta áfram.
Eins og vanalega lá spenna í
lofti þegar val bestu leilonanna
var kynnt, en það vom leikmenn
meistaraflokkanna sem völdu þá
úr eigin hópi. Besti leikmaður
meistaraflokks karla var valinn
Stefán Vagn Stefánsson mark-
vöróur. Stefán átti ekki marga
meistaraflokksleiki aó baki fyrir
þetta sumar og hefur staðið í
skugganum til fjölda ára. I sumar
fékk hann tækifærið og stóð sig
ffábærlega vel. Efhilegasti leik-
maóur meistaraflokks var valinn
Ogmundur Amarsson og bestu
K J ■. t Wk ■RP' ■ ■ -I
cj %
Stefán Vagn Stefánsson knattspyrnumaður Tindastóls 1995,
Bryndís Jónasdóttir knattspyrnukona Tindastóls 1995 og
Þráinn Bjömsson besti leikmaður 2. flokks.
✓
Oskilahross í Staðarhreppi!
Eftirtalin hross eru í óskilum: hestur veturgamall,
rauðljós á tagl og fax, hestur ca. 6 vetra gamall rauður
með litla stjömu, hryssa tveggja vetra, dökkgrá.
Hrossin hafa öll sama markið sem er: biti aftan
hægra, alheilt vinstra. Réttur eigandi getur vitjað
hrossanna hjá hreppstjóra Staðarhrepps, Ara Jóhanni
Sigurössyni Armúla í síma 453 6673 og veróa þá
hrossin afhent gegn greiðslu á áföllnum kostnaði. Verði
hrossanna ekki vitjað verða þau seld á opinberu uppboði
við hesthúsið í Armúla, með venjulegum uppboðs-
skilmálum föstudaginn 6. október '95 kl. 20 hafi réttur
eigandi ekki gefið sig fram fyrir þann tíma.
Hreppstjórinn í Staðarhreppi
Ari Jóhann Sigurðsson.
Sigurður Björnsson faðir Gísla Sigurðssonar þjálfara, samdi lag í sumar þegar gengi liðs-
ins var frekar skrikkjótt. Lagið kallar Sigurður Tindapolkann en við það samdi ókunnur
höfundur ágætis texta. Tindarnir syngja hér lagið, frá vinstri Sigurbjörg Rögnvaldsdóttir,
Heiða Sigurðardóttir, María Björk Ingvadóttir, Omar Bragi Stefánsson, Rúnar Gíslason,
Olafur Jónssson og Sigurður Björnsson með nikkuna.
ástundun þótti Olafur Ólafsson Anna Lea Gestsdóttir og Sigrún
sýna. Snorradóttir stundaði æfingar
Bryndís Jónasdóttir var val- best. I öðmm flokki kvenna var
inn besti leikmaóurinn, bæði hjá Anna Rósa Pálsdóttir valin efni-
meistaraflokki kvenna og í 2. legasti leikmaðurinn og Guðrún
flokki kvenna. Efnilegust í Jónasdóttir þótti sýna besta
meistaraflokki kvenna var valin ástundun.
í öómm flokki karla var Þrá-
inn Bjömsson valinn bestí leik-
maðurinn, Ragnar Páll Amason
var valinn efnilegastur og Helgi
Páll Jónsson fékk viðurkenningu
fyrir bestu ástundun.
Skjólið í Útvarpi Skagaströnd
Vetrarstarfið er hafió í félagsmiðstöðinni Skjólinu á Blönduósi og verður þar mikið að
gerast í vetur. í haust var ráðinn til starfa nýr umsjónarmaóur félagsmiðstöðvarinnar Gunnar
Bender og hefur hann ásamt unglingunum á Blönduósi ýmislegt á prjónunum í vetur.
Meóal viöfangsefha í vetur verður geró útvarpsþátta, en samningar hafa tekist við
Hallbjöm Hjartarson á Skagaströnd um að Skjólið verði með útvarpsþætti í vetur, hálfs-
mánaóarlega til aó byrja með. Þessa dagana eru krakkamir að undirbúa að kappi fyrsta
þáttinn sendur verður út ffá Utvarpi Skagaströnd nk. föstudag kl. 18-19.
Og þaö virðist ekki annað að sjá á myndinni hér aó ofan en krakkamir í Skjólinu séu
ákaflega sæl með þetta nýja viðfangsefni sitt. Mynd/GB. Texti/ÞA.