Feykir - 22.11.1995, Síða 2
2FEYKIR 41/95
I ■ ■■■ ■ ■
ff n © I m u r
Leiksýning verður í Blönduós-
kirkju nk. mánudagskvöld.
Þar verður sýnt leikritið
MMC Pajero, langur, 4 cyl.
2600 bensín, árg. '87. Ekinn 136
þúsund km. Verð 990.000.
Suzuki Fox SJ10 árg. '82,
ekinn 123 þús. km. Tilboð.
MMC Colt 1200 EL árg.
'86, ekinn 136 þús. km.
Verð 220.000.
Mazda 323 LX 1300 ár. '89,
ekinn 109 þús. km. Verð
490.000. Fallegurbíll.
Mazda 323 GL 1600 4x4
station árg. 1992, ekinn 109
þús. km. Verð 970.000.
BÍLASALA/BÍLALEIGA
SKAGAFJARÐAR SE
Löggild bílasala
Borgarflöt 5, Sauðárkróki,
sími 453 6050 og 453 6399.
Heimasími sölumanns 453 5410.
Hvernig vilja menn auka
atvinnu í kjördæminu?
„Heimur Guðríðar, síðasta
heimsókn Guðríðar Símonar-
dóttur í kirkju Hallgríms“.
Höfundur er Steinunn Jó-
hannesdóttir, sem jafnframt
leikstýrir verkinu. Það hefúr
hlotið góða dóma og verið sýnt
við góðar undirtektir í hliðar-
sal Hallgrímskirkju í nokkurn
tíma.
Steinunn Jóhannesdóttir hef-
ur ferðast um landið að undan-
fömu og kynnt sér kirkjur lands-
ins, með tilliti til þess hve vel
þær henti fyrir uppsetningu
þessa leikverks. Fram kom í út-
varpsviðtali vió Steinunni um
helgina að hún hafi strax hrifist
mjög af Blönduóskirkju. Kirkjan
sé einstaklega falleg og henti
mjög vel fyrir sýninguna.
Tónlist viö „Heim Guóríóar"
er eftir Hörð Askelsson. Með aó-
alhlutverk fara Helga Back-
mann, Helga Elínborg Jónsdóttir
og Þröstur Leó Gunnarsson.
...Feykir
ljós punktur
í tilverunni
•••••••••••
Um langt árabil hefur það
gerst að fólki hefur verið að
fækka úti á landsbyggðinni og
landsmenn hafa í æ ríkari mæli
safnast saman á suðvesturhom-
inu. Ekki er útlit fyrir að þessari
þróun linni, sérstaldega meó til-
liti til nýjustu ffegna um stækk-
un álversins í Straumsvík og
áhuga erlendra álverseiganda
um uppsetningu álvera hér. Lík-
legt er talið að Keilisnes verði
næsti staður fyrir álver og fátt
bendir til þess að stóriðjuver
verði reist utan suðvesturhoms-
ins á næstu ámm, þó þau verði
kannski nokkur sem rísi hér á
landi á næstu árum og áratugum.
Vitaskuld er stækkun álvers-
ins í Straumsvík fagnaðarefni
fyrir atvinnu- og efnahagslíf í
landinu, og eins er það góós vísir
að erlendir aðilar hafi áhuga á
því að reisa hér fleiri stóriðjuver.
Hinsvegar er það áhyggjuefni að
öll stærri atvinnuuppbygging í
dag fari ffam á suðvesturhomi
landsins, þrátt fyrir þá staðreynd
að orkan sem knýr þau sé fengin
úr fallvötnum um allt land. Þessi
þróun mun ekki leiða nema til
eins, að fólksflutningar muni
eiga sér stað í auknum mæli á
suðvesturhornið og að landið
muni sporðreisast, eins og gjam-
an er nefht í hálfkæringi þegar
byggóarröskunin ber á góma.
Feykir hefur fregnað að for-
ráðamenn sveitarfélaga á Norð-
urlandi hafi þegar áhyggjur af
því að iðnaðarmenn muni leita
suður á bóginn þegar fram-
kvæmdir við stækkun álversins
hefjast Atvinnuleysi hefúr nefni-
lega verið talsvert á meðal bygg-
ingariónaöarmanna, Ld. á Sauö-
árkróki og þegar vinnumarkaður
opnast eins og við stækkun ál-
versins, er ekki ólíklegt að menn
hugsi sér til hreyfmgs og fari þá
með fjölskylduna með sér. Hér á
ámm áður tíðkaðist það aó fyrir-
vinnur heimilanna fæm á vertíð
þegar minna var að gera heima-
fyrir, en tíðarandinn hefur breyst
á þann veg að nú tíðkast vertíð-
arlífið vart lengur.
Það verður ekki sagt að at-
vinnuþróun hafi verið mikil úti á
landsbyggðinni á liðnum ámm
og áratugum og landsbyggðin
hefur ekki fundió svar gegn
samdrættinum í landbúnaðinum.
Að vísu hefur tekist að halda sjó
í sjávarútveginum, en í iðnaðin-
um hefur orðið samdráttur. Hér í
kjördæminu er helsta afrekið á
sviði iönaðamppbyggingar þeg-
ar Steinullarverksmiðjan reis á
Sauðárkróki um miðjan síðasta
áratug. I raun var sá áfangi sem
þar náðist, stórkostlegt afrek og
þeir menn sem stóðu að upp-
byggingu verksmiðjunnar geta
verið stoltir af.
En hins vegar hafa menn hér
um slóðir varla þorað aó nefna
orðið stóriðja á nafh, frekar en
víðast annars staðar á lands-
byggóinni. I staðinn hefur í um-
ræðu um atvinnuuppbyggingu
gjaman verió tönnlast á því að
vaxtarbroddurinn muni felast í
smáiðnaði, handverki ýmis kon-
ar og ferðaþjónustunni. Og til
hvers hefur svo þessi einlita um-
ræða leitt? Jú, hún hefur skapað
stöðnun í atvinnulífi.
En hvað skal til bragðs taka?
Orð em til alls fyrst. Samvinna
milli byggðarlaga í atvinnuupp-
byggingu hefur verið í lágmarki.
I síðasta blaði Feykis var vakió
máls á umræðu um Þverárfjalls-
veginn að nýju. Sú vegagerð er
forsendan fyrir því að Skagfirð-
ingar og Húnvetningar geti átt
vemlega samvinnu um atvinnu-
uppbyggingu. Spurningin er
hvort íbúar þessara héraða geti
hugsað sér stóriðjuver við
Húnaflóa eóa Skagafjörð, með
tilheyrandi mengunarbúnaói,
gefist þess kostur. Hvemig líst
mönnum t.d. á að byggja stór-
iðjuver, og þá er ekki endilega
verið aó tala um álver, við aust-
anverðan Húnaflóa í grennd
Skagastrandar, eða á Skaganum
vestanverðum, skammt ffá höfh-
inni i Selvík. Fleiri staóir hafa
einnig verið nefndir sem óþarfi
er að tíunda hér.
Nýjustu fféttir herma aó kín-
versk sendinefnd hafi komið til
Akureyrar og kannað aöstæður
við Eyjafjörð varðandi hugsan-
lega uppsetningu álvers, en þess-
ir kínversku aóilar hafa lýst
áhuga á uppsetningu álvers hér á
landi. Reyndar gekk dæmið ekki
upp hjá Eyfirðingum fyrir
nokkmm ámm þegar álver var
inni í myndinni, en ómögulegt
að segja nema að nú kunni eitt-
hvað að gerast þar. ÞA.
Bindindi á
laugardaginn
Næstkomandi laugardag, hinn
25. nóvember, verður Bindindisdag-
urinn 1995 haldinn. Þá er skorað á
alla landsmenn að sleppa allri á-
fengisneyslu þennan dag. Með því
er verið aö leggja áherslu á heil-
brigða og gæfuríka lífshætti, nýjan
lífsstíl.
Bindindisdagurinn minnir á
nauðsyn þess að draga úr almennri
áfengisneyslu og koma í veg fyrir
drykkju bama og unglinga. Hann
heitir á foreldra að vera góð fyrir-
mynd bama sinna. Hann minnir á
hin sígildu sannindi að af því læra
bömin málið að fyrir þeim er haft.
Þeir sem að bindindisdeginum
standa leggja áherslu á aukna um-
ræðu um áfengismálin og þann
voða og vá sem þeim fylgja.
Eigum í takmörkuðu magni, afáttarvéladekk
áfrábœru verði
14.9 / 13x28 / 8pr kr. 24. 722.-
16.9 / 14x28 / 8pr kr. 28.994.-
12,4 / 11x24 / 6pr kr. 19.076,-
14.9 / 13x24 / 8pr. kr. 25.332.-
Bílabúð, Frcyjugotn 7, síini 1551573
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi
Feykir hf. Skrifstofa Aðalgötu 2, Sauðárkróki.
Póstfang: Pósthólf 4, 550 Sauðárkróki. Sími
45 3575J. Myndsími 45 36703. Ritstjóri Þór-
hallur Asmundsson. Fréttaritarar: Eggert
Antonsson og Öm Þórarinsson. Blaðstjóm: Jón
F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson,
Sæmundur Hermannsson, Sigurður Ágústsson
og Stefán Ámason. Áskriftarverð 137 krónur
hvert tölublað m/vsk. Lausasöluverð 150 kr.
m/vsk. Setning og umbrot Feykir. Prentun
Sást hf.
Feykir á aðild að Samtökum bæja- og
héraðsfréttablaða.