Feykir - 22.11.1995, Síða 3
41/1994 FEYKIR 3
Söngbók frá Kristjáni
Kristján Stefánsson ljóðskáld
og tónskáld virðist óstöðvandi í
útgáfustarfseminni, eftir að hann
fór af stað með hljóðdiskinn og
snælduna „Mitt hjartans mál“, á
liðnu vori. Nú hefur Kristján sent
frá sér söngbók með santa nafhi.
Hefur hún að geyma nótur
laganna af diskinum ásamt nýju
jólalagi og sálmi. „Mitt hjartans
mál“ hefur fengið frábærar
viðtökur og diskurinn og snældan
verið gefrnn út í 6000 eintökum.
Samkvæmt upplýsingum frá Stcf
er þetta söluhæsta íslenska
útgáfan það sem af er árinu.
„Það voru margir búnir að
hafa samband við mig og óskuðu
eftir nótum af lögunum, þannig
að það má segja að með útgáfu
söngbókarinnar sé ég að svara
ákveðinni þörf og eftirspurn",
segir Kristján í Gilhaga, en
söngbókin er gefin út í 150
eintökum. Af 18 sönglögum eru
níu búin til flutnings í einsöng og
tvísöng með póanóundirleik og
níu skrifuð fyrir karlaraddir og
blandaðar raddir til flutnings
kvartetta og kóra. Lögin eru öll
sett með hljómum.
Norðlensk sveifla á
Hótel íslandi
Norðlensku kórarnir Lóu-
þrælar og Sandlóurnar úr
Vestur-Húnavatnssýslu og
Rökkurkórinn í Skagafirði
gangast fyrir söng- og
skemmtikvöldi á Hótel Islandi
nk. föstudagskvöld, sem hlotið
hefur nafnið „Norðiensk
sveifla“. Auk söngs kóranna
verður margt til skemmtunar.
Geirmundur Valtýsson verður
veislustjóri og hljómsveit hans
leikur fyrir dansi fram eftir
nóttu.
Þau Þorvaldur Pálsson for-
maóur Lóuþrælanna og Ardís
Bjömsdóttir formaður Rökkur-
kórsins hafa ekki slegið slöku
við varðandi undirbúning skemmt-
unarinnar að undanfömu.
Lóuþrælamir verða með létta
og skemmtilega dagskrá undir
stjóm Olafar Pálsdóttur við und-
irleik Elínborgar Sigurgcirsdótt-
ur. Eiríkur Jónsson stjómar hag-
yrðingaþætti eins og honum ein-
um er lagið og þar koma fram
jöfnum höndum þingmenn og
bændur, sem teljast til bestu hag-
yrðinga landsins. Þá tekur söng-
hópurinn Sandlóumar lagið við
undirleik Þorvaldar Pálssonar og
bassaleik Páls S. Bjömssonar.
Gamanmál eru næst á dag-
skránni og bregður þar Hjálmar
Jónsson á leik.
Rökkurkórinn í Skagafirði
lofar bráðskemmtilegri söng-
skrá. Einsöngvarar með kómum
veróa Sigurlaug H. Maronsdótt-
ir, Hjalti Jóhannsson, Asgeir Ei-
ríksson og Elva Björk Guó-
mundsdóttir. Hallfríóur Haf-
steinsdóttir og Ragnar Magnús-
son syngja tvísöng. Stjómandi er
Sveinn Amason og undirleikari
Thomas Higgerson.
Verði aógöngumiða er stillt í
hóf. Verð fyrir kvöldverð,
skemmtun og dansleik er krónur
3.900 fyrir manninn, en kr. 2000
á sýninguna án kvöldverðar.
Hinir eineygðu
Ég hef tekið eftir því að
margir bílar em meó ljósabúnað
í ólagi. Nú ætti það ekki að vera
mikið mál að hafa þctta í lagi.
Ég trúi því ekki aó menn hafi
ekki efni á að kaupa nokkrar
ljósaperur.
Mér dettur í hug maður sem á
heima skammt innan við Krók-
inn og hefur sæmilegt kaup hjá
því fyrirtæki sem hann vinnur
hjá. Hann hlýtur að hafa efni á
því að vera meö ljósabúnað bíls-
ins í lagi. Hann var eineygður í
allan fyrravetur. Sennilega stafar
þetta af trassaskap og ffamtaks-
leysi. Ég hafði orð á þessu við
lögregluna. Hún sagói að kæra
þyrfti suma svo að þeir kæmu
ljósunum í lag.
Nú er það svo að umferðar-
menningin á Islandi er í slakara
lagi. Surnir virðast halda aó það
sé ekki fullt starf að aka bíl. Það
hefur sá haldið sem kom inn á
Abæ í fyrrasumar, þar sem ég
var staddur. Það virtist vcra asi á
manninum. Hann keypti pylsu
og kók, snaraðist með það út í
bíl, stakk kókflöskunni í klofið
og setti pylsuna í mælaborðið.
Hann var með bílasíma, náði
sambandi við einhvem, hélt við
heymartólið með öxlinni, greip
til pylsunnar og kókflöskunnar í
klofinu og kveikti sér í sígarettu.
Þá virtist næringarþörfmni vera
fullnægt í bili og ók hann út af
planinu með aðra hönd á stýri.
Þessi maður hefur álitið að
ekki væri fullt starf að aka bíl.
Margir ökumenn sýna ffekju
og tillitsleysi í umferóinni og
halda að þeir séu einir í heimin-
um. Hvað eftir annað hefur verið
ekið fyrir mig á krossgötunum
norðan við Mjólkursamlagið,
svo ég taki dæmi.
Við skulum vona að þetta
standi allt til bóta og hinum ein-
eygöu fækki. Það væri öllum
fyrir bestu.
Sigfús Steindórsson.
Kjarabætur til handa
foreldra og leigjenda
Samþykkt félagsmálaráðs frá
2. október varðandi systkinaaf-
slátt hefúr ekki fengið mikla um-
fjöllun. Samþykktin var þannig:
Félagsmálaráó samþykkir að
systkinaafsláttur komi til og verði
hann sem hér segir: 25% með
ööru barni og 50% með þriöja
bami, og taki þessi gjaldskrár-
breyting gildi frá og með 01.01.
1996. Astæða er til aó vekja at-
hygli á þessu því vissulega er
þetta kjarabót til foreldra.
A fundi bæjarráðs 20. septem-
ber sl. var samþykkt að Sauðár-
króksbær greiði húsaleigubætur
árið 1996. Hér er enn eitt dæmið
um aó Sauóárkrókur geri betur en
mörg önnur sveitarfélög. Mark-
miðið er að lækka húsnæóis-
kostnað tekjulágra leigjenda og
að draga úr aðstöðumun á hús-
næðismarkaðnum. Um er að
ræóa samstarfsverkefni ríkis og
sveitarfélaga. Ríkissjóóur greiðir
60% af kostnaði bótanna, en
sveitarfélagið 40%. Mörg sveit-
arfélög á Norðurlandi hafa ákveð-
ið að greiða ekki húsaleigubætur
og er þar bent á að óánægja sé
með lög um húsaleigubætur. Með
þeirri afstöðu er verió að láta óá-
nægju með ríkisvaldið bitna á
jiegnunum.
Nú á næstunni mun hefjast
vinna við gerð fjárhagsáætlunar
bæjarins fyrir árió 1996 og
þriggja ára áætlun. Þessi tvö
plögg eru markandi um rekstur
og framkvæmdir bæjarfélagsins
næstu ár. Þeir fjármunir sem til
ráðstöfunar eru á hverjum tíma
em takmarkaðir. Þess vegna þarf
að nást samstaða um áhersluatriði
í rekstri og framkvæmdum.
Oraunhæft er að koma fram með
kröfúr um nýjar byggingar hér og
nýjar byggingar þar sem kosta
tugi milljóna króna.
Til þess að einhver möguleiki
sé fyrir á að láta verða af hug-
myndum um þær byggingar sem
þarf að koma upp á næstu árum
þarf bæjarfélagið að fá til sín mun
meira fjármagn. Ekki er á bæt-
andi varðandi mikla skattlagningu
til viðbótar því sem nú er. Þess
vegna verður að forgangsraða.
Löngum hefur verið rætt um að
selja eignir og nú á þessu ári hef-
ur verið farið út í aö selja íbúðir í
eigu bæjarfélagsins. Alltaf er ver-
ið að tala um að kanna möguleika
á sölu hlutabréfa en oftar en ekki
hafa mál þróast þannig aö bæjar-
sjóður hefúr orðið að auka hlutafé
sitt í atvinnufyrirtækjum til styrkt-
ar atvinnulífinu.
Fyrir stuttu var samþykkt að
leggja fram 2,5 milljónir til efl-
ingar Sjávarleðri hf. Það er von
mín að um fjárhagsáætlun ársins
1996 náist breið samstaða bæjar-
fúlltrúa og vinnan við gerð henn-
ar verói á jákvæðum nótum en
ekki fallið í gryfju yfirboða og
innantómra slagorða.
Björn Sigurbjörnsson, bæjar-
fúlltrúi Alþýðuflokksins og for-
maður bæjarráðs Sauðárkróks.
Verslunarmannafélag Skagfírðinga
boðar til almenns félagsfundar á Strönd, Sæmundargötu 7, fimmtudaginn
23. nóvember kl. 20,30.
Dagskrá: 1. Staðan í kjaramálunum. 2. Önnur mál.
Félagar fjölmennið og sýnið afstööu ykkar. Stjómin.
JÓLAVÖRURNAR
STREYMAINN
- NÝJAR VÖRUR Á
HVERJUM DEGI.
Bökunartilboö okkar
í fullum gangi
Vörukynning á föstudaginn
Viö höfum opið mánud.-föstud. kl. 09-19
Laugardaga kl. 10-16.
SKAGFIRÐIN G ABÚÐ