Feykir - 22.11.1995, Page 6
6 FEYKIR 41/1995
77. Fleiri höfðu þeir verið með Ingimundi að
honum hafi betur likað vió en Hrafn. Jafnan hafði
hann gott sverð í hendi. Oft renndi Ingimundur aug-
um til sverðsins og eitt sinn beiddist hann að sjá.
Hrafn sagði þess mundu kost. Ingimundur tók við
og brá. Eigi þótti honum þá minna um vert og
spurði ef hann vildi selja. Hrafn kvaðst ekki svo
féþurfi að hann seldi vopn úr hendi sér en sagði aö
bóndi skyldi sjá staó forgiftar sinnar af sér og
kvaðst þar verið hafa er hann þurfti vopna við og
kvað enn mega svo vera. Ingimundur reiddist mjög
og þótti hann vanvirða sig og leitaði sér ráðs.
T-^áCtttc Clóstá-á&M'
*7e-xtc: 'fbó'iCl. s4á**tcc*tcCdá,.
78. Og einn tíma er hann gekk til hofs síns stillti
hann svo til að austmaðurinn fór með. Ingimundur
talar þá til hans hugarlátlega það er hann fann er
honum var best að skapi. Hann vildi jafnan ræða
um víking sína og herferðir. Ingimundur gekk inn í
hofið fyrir og eigi finnur hann fyrr en Hrafn hleypur
inn í hofið með sverðið. Ingimundur snérist við
honum og mælti: „Eigi er það siður að bera vopn í
hofið og muntu verða fyrir goða reiði og er slíkt
ófært nema bætur komi fram“. Hrafn svarar „Hér
hefir þú lengi um setið og ráð til sett og ef ég hefi
misgert i lögum yðmm þá ætla eg það ráð að þú
gerir um því að þú ert kallaður sannsýnn maður“.
79. Ingimundur kvað það vænlegt til bóta að
hann sæmdi goðin en lét það helst duga að hann
gerði eigi að sjálfvilja sínum „og því mun eigi jafn-
mikilla fyrir von hefndanna" og kvað þaó sannleg-
ast að hann gæfi sveróið á vald hans því að hann
lést eiga og því að stjóma og mýkja svo reiði goð-
anna. Hrafn kvað hann mikið fé annað af sér hafa
gert að eigi þætti honum það betra „og mun þér
annað stórmannlegar fara“. Hann fór á brott um
sumarið og er úr þessi sögu. Þetta sverö áttu þcir
feógar meðan þeir lifðu og kölluðu Ættartanga.
80. Eyvindur hét maður og var kallaður sörkvir.
Hann kom út með Ingimundi og fór utan eitt sumar
og þeir Þórormur. Þeir vora vinir. Ingimundur léði
þeim Stíganda og kvaóst forvitni á að vita þótt hann
færi eigi sjálfur hvort hann kynni skríða. Vingóður
maður var Ingimundur við alla góða menn. Þeir
komu út annað sumar í Blönduárósi og kunnu það
Ingimundi aó segja að skip mátti eigi fríðara vera.
Þeir höfðu haft algóða kaupferð. Eyvindur bjó í
Blöndudal en Gautur í Gautsdal.
Draumspakur póstur austur á landi:
Spáir líkt og Lauga um veðrið
Það er ekki aðeins Sigurlaug
Jónasdóttir garnaspákona á
Kárastöðum sem spáir mild-
um vetri. Björn Andrésson
póstur í Fellabæ og fyrrver-
andi bóndi í Njarðvík við
Borgarfjörð eystri á von á því
að veðurfar í vetur verði með
eindæmum gott, gangi draum-
ar hans eftir, eða öllu heldur
draumleysi.
I nýjasta blaði Austra er sagt
frá því að þegar Bjöm hóf bú-
skap í Njarðvík, þá ungur mað-
ur, dreymdi hann um vetumætur
heyhlöðu. I hlöðunni var ekkert
tiltakanlega mikið hey utan hvað
innst í hlöðunni var veltroðinn
heystabbi. Bjöm túlkaði draum-
inn þannig að veturinn yrði góð-
ur en vorið langt og hart. Gekk
þetta eftir. Allar götur síðan, eða
í rneira en 40 ár, hefur Björn
dreymt þessa sömu hlöðu í vetr-
arbyrjun. Hefur hann ráðið í
veðráttu næsta vetrar eftir því
hvemig heyin í hlöðunni vom
og hefur ráðning hans ávallt
gengið eftir.
Nú í haust hefur í íyrsta sinn
bmgðið út af þessari venju, því
enga hefur Björn hlöóuna
dreymt. Segist hann freistast til
þess að að túlka draumleysi sitt
á þann veg að einmunatíð verði í
vetur. Rökstyður hann þá skýr-
ingu þannig að aldrei hafi út af
því brugðið að dreymdi hann
mikil og góó hey í hlöóunni hafi
harður vetur farið á eftir. Nú
þegar hann í fyrsta sinn í 45 ár
dreymi hvorki hey né hlöðu
hljóti að fara í hönd einmunatíð.
Þess má geta að Bjöm þessi
var um nokkurt skeið rútubíl-
stjóri á Egilsstöðum og nágrenni,
og kannast eflaust margir við
hann úr því starfi.
DHL-deildin í körfubolta:
Tindastóll enn
nokkuð frá sínu besta
Enn er Tindastólsliðið nokkuð
ffá sínu besta í DHL-deildinni
eftir góða byrjun í haust. Liðið
hefur ekki verið sannfærandi í
undanförnum leikjum og sú
varð raunin þegar Tindastóll
mætti Breiðabliki í Smáranum
í Kópavogi sl. fimmtudags-
kvöld. Tindastóll er nú í 5.-7.
sæti deildarinnar með 16 stig
eftir 14 leiki. Framundan eru
viðureignir gegn tveimur af
efstu liðunum. Haldið verður
til Keflavíkur nk. sunnudags-
kvöld og síðan koma Haukar í
heimsókn í Síkið fimmtudags-
kvöldið þar á eftir.
Það var aðeins á íyrstu mínút-
um leiksins í Smáranum sem
Tindastólsmenn voru yfir í leikn-
um. Breiðabliksmenn, sem
komu mjög ákveónir til leiks,
náðu snemma góðu forskoti og
skyttur þeirra voru „heitar“,
meðan lítið fór ofan í hjá Tinda-
stólsmönnum nema John Thor-
rey. Tindastóll náði engu að síð-
ur að laga stöóuna fyrir leikhléið,
en þá munaði fimm stigum,
(38:33. , í i *
Gestimir virtust síðan ætlað
að fylgja þessu eftir í byrjun
seinni hálfleiks og komust m.a. í
stöóuna 41:44, en Blikamir hófu
sig þá til flugs að nýju og unnu
öruggan sigur 90:75. Þá vóg
þungt í leiknum að langskyttur
Breiðabliks vom í stuði í leikn-
um, skoruðu 10 þriggja stiga
körfur, en Tindastóll gerði að-
eins þrjár. I fráköstunum vom
Breiðabliksmenn líka sterkari,
hirtu 36, Tindastólsmenn 30.
Stig Tindastóls í leiknum
skomðu Thorrey 39 stig, Omar
Sigmarsson 12, Hinrik Gunnars-
son 10, Pétur Guðmundsson 6,
Láms Pálsson 6 og Amar Kára-
son 2.
Óheppni í bikardrætti
Ekki verður sagt aö Tinda-
stólsmenn hafi verið heppnir
varðandi drátt í 16-liða úrslitum
Bikarkeppninnar. Liöið dróst á
þann völl þar sem þaó heíur ætíð
beðið lægri hlut, í Grindavík. En
bikarleikir cru alltaf bikarleikir
og ekki á vísan að róa í þeim
leikjum. Það er bara vonandi að
Tindastólsmenn slái tvær flugur í
einu höggi í Grindavík annað-
kvöld, fimmtudagskvöld, nái
upp þeint styrk sem það sýndi til
að býrja nteð í vor og slái Grind-
víkingana út úr Bikarkeppninni,
og þá ættu aó vera góðir mögu-
leikar á að liðið komist á sigl-
ingu í DHL-deildinni að nýju.
Happdrættisalmanak
Þroskahjálpar komið út
Listaverkaalmanak Lands-
samtakanna Þroskahjálpar
fyrir árið 1996 er kontið út.
Eins og fyrri ár þá prýða alm-
anakið myndir af listaverkum
eftir þekkta íslenska lista-
menn. Á forsíðu almanaksins
er mynd eftir Karólínu Lárus-
dóttur sem hún færði samtök-
unum að gjöf. Flestar mynd-
irnar á almanakinu eru til sölu
á skrifstofu samtakanna.
Listaverkaalmanakið er einnig
happdrætti og eru vinningar
dregnir út mánaðarlega. Vinn-
ingar í ár eru 51 listaverk.
Listaverkaalmanakið er mjög
vandað og til mikillar prýði og
kostar 1200 kr. Landssamtökin
Þroskahjálp eru hagsmunasam-
tök fatlaðra bama, fullorðinna og
fjölskyldna þeirra. Samtökin
vinna að því að tryggja fötluðum
jafnrétti á við aðra þjóðfélags-
þegna.
Landssamtökin Þroskahjálp
afla að mestu leyti sjálf fjár til
starfsemi sinnar. Helsta fjáröfl-
unin er sala listaverkaalmanaks.
Þroskahjálp þakkar stuðning
undanfarinna ára og treystir því
að sölufólki verði vel tekiö í ár.
Vinningsnúmer í almanaks-
happdrætti Þroskahjálpar 1995
eru: Janúar 17796, 2044, 12460.
Febrúar 2663, 1719, 10499,
1933. Mars 494, 13958, 11345,
9972, 7296. Apríl 13599, 11441,
3069, 1447, 9350. Maí 9701,
6805, 9468, 6481, 16584. Júní
8961, 7983, 4007, 12942. Júlí
15020, 11564, 6766. Ágúst
2036, 7247, 7798, 17255. Sept-
ernber 2170, 5184, 7590, 15211.
Október 11905, 10722, 5131,
5524,2707.
Konurnar mæta Skagamönnum
Kvennalið Tindastóls í körfuboltanum mætir
Skagamönnum í 1. umferð Bikarkeppni KKI.
Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu á Sauð-
árkróki annað kvöld, fimmtudagskvöld. Með
sigri tryggir liðið sér rétt til keppni í 8-liða
úrslitum.
Stelpumar mættu ÍA fyrir skömmu í dcildar-
keppninni á Skaganum og unnu öraggan sigur.
Tindastóll á því að eiga góða sigurmöguleika.
Tindastólsliðið átti frí í deildarkeppninni um
síðustu helgi en mun um þá næstu mæta Vals-
mönnum syðra.