Feykir - 22.11.1995, Blaðsíða 7
41/1995 FEYKIR7
Margrét Jóhannesdóttir -l
frá Þverá
f. 17. maí 1916 d. 13. okt. 1995
Enginn flýr örlög sín. Sumum
er gefin góö heilsa og starfskraft-
ur, aðrir mega búa vió vanheilsu
árum og jafhvel áratugum sam-
an.
Margrét frá Þverá lést á
Sjúkrahúsi Skagfirðinga 13. okt.
sl. eftir 20 ára vem þar, í baráttu
við erfiðan lömunarsjúkdóm.
Foreldrar hennar vom Björg Sig-
fúsdóttir frá Hringey í Vallhólmi
og Jóhannes Bjarnason frá
Þúfnavöllum i Oxnadal, er síóast
bjuggu í Gmndarkoti í Blöndu-
hlíð.
Arið 1935 giftist Margrét
Steinþóri Stefánssyni á Þverá og
hófu þau búskap þar og bjuggu á
hálfri jöróinni, meðan entist
þróttur og heilsa. Þau hjónin
eignuðust átta böm, sem öll em á
lífi: Stefán Valdimar, til heimilis
að Þverá, Jóhannes verkamaður í
Reykjavík, Björgvin skipasmið-
ur í Hafnarfirói, Hjörtína Ingi-
björg húsmóðir á Sauðárkróki,
Gunnar sjómaður á Akureyri,
Magnús Ingi bóndi á Þverá,
Steinþór Valdimar starfsmaður
hjá Rafmagnsveitum ríkisins á
Sauðárkróki og Guörún Björg
húsmóðir á Akureyri.
Er ég kynntist Margréti, fyrir
nær 40 ámm, var hún þegar farin
að kenna þess lömunarsjúk-
dóms, er lagði hana að velli. Hún
fjölyrti ekki um veikindi sín,
stóð á meóan stætt var og meira
til, og með bros á vör bauð hún
þennan nýja nágranna velkom-
inn. Eg fann hjá henni traust og
til hennar var ætíð gott að leita.
Heimilið á Þverá einkenndist
af snyrtimennsku, hjálpsemi,
hlýju og góóvild. Þar vom góðir
grannar. Sagt var um Steinþór:
„Ollum var hann góður, sem áttu
við hann einhver samskipti“.
Margrét missti mann sinn tveim-
ur ámm eftir að hún fór á sjúkra-
húsið. Það var mikil raun, næst-
um miskunnarlaust. Hann hafði
annast hana svo af bar í hennar
veikindum, en var horfinn á
brott. Vegir guðs em órannsak-
anlegir. En Margrét átti að sinn
stóra bamahóp.
Allir eiga sínar erfiðu stundir.
Margréti var glaðværðin gefin í
vöggugjöf. Með þennan dýr-
mæta eiginleika í veganesti tókst
hún á við örlög sín, fann hvemig
þrótturinn hvarf og var að lokum
bundin við hjólastólinn og
sjúkrarúmið. Hún fann sér afþr-
eyingu og gat um leið miðlað
henni til annarra. Þaö var spila-
mennskan. Það var engin logn-
molla við boróið þegar Margrét
var að spila. Þeirra stunda naut
hún og hreif aðra með. Svo dvín-
aði mátturinn. En spilin skildi
hún aldrei við sig.
Hljótt er inni, úti kyrrð og friður
aðeins regnið drýpur niður,
yfir þurran, þyrstan svörð.
Nóttin heyrir bœn alls sem bið-
urvið brjóst þitt móðir jörð.
D.S.
En hverjar em hugsanir þess
HU S AFRIÐUN ARS J OÐUR
Húsafriðunarnefnd ríkisins auglýsir eftir um-
sóknum til Húsafriðunarsjóðs, sbr. ákvæði í
þjóðminjalögum nr. 88/1989 sbr. lög nr. 43/1991
og 98/1994 og reglugerð um Húsafriðunarsjóð nr.
479/1993.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta
kostnaðar vegna:
- undirbúnings framkvæmda, áætlanagerðar og
tæknilegrar ráðgjafar og til framkvæmda vegna
viðhalds og endurbóta á friðuðum húsum og
húsum sem hafa menningarsögulegt og listrænt
gildi.
- byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu þeirra.
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent á að leita
eftir áliti Húsafriðunarnefndar ríkisins og sækja
um styrk, áður en framkvæmdir hefjast.
Umsóknir skulu berast eigi síðar en 1. febrúar
1996 til Húsafriðunarnefndar ríkisins, Þjóð-
minjasafni Islands, Suðurgötu 41, 101 Reykjavík, á
umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Frekar upplýsingar eru veittar í síma 562 2475
milli kl. 10,30 og 12,00 vika daga.
fólks, langanir og þrár, sem
bundið verður hjólastól og
sjúkrarúmi svo skiptir ámm og
áratugum. Hversu oft hlustar það
ekki á regnið sem drýpur fyrir
utan gluggann og lætur sig
dreyma.
Ég veit þú ert komin vorsól.
Vertu ekki aðfela þig.
Gœgstu nú inn um gluggann.
1 guðs bœnum kysstu mig.
Hversu oft hefur Margrét
ekki hugsað heim, er sólin skein
í heiði og sveitin hennar skartaði
sínu fegursta. Amiðurinn hjalaði
við bakkann hjá bænum og allt
lífið söng sinn gleðióð.
Þeir eru svofáir aðrir,
sem una sér hjá mér.
Já, vertu ný hlý og viðkvœm.
Þú veist ekJá, hvernig fer.
Því það er annað að óska
að eiga sér lífog vor,
en hitt að geta gengið
glaður og heill sín spor. J.G.S.
Eg kveö Margréti á Þverá
með virðingu og þökk og sendi
fjölskyldu hennar hugheilar sam-
úðarkveðjur.
Helga Bjarnadóttir
frá Frostastöðum.
Auglýsing
í Feyki
ber
arangur
f
iti
Ókeypássmoar
Til sölu!
Til sölu Toyota Camry árgerð
1987, velmeðfarinn dekurbíll.
Upplýsingar í síma 453 5428.
Húsnæði óskast!
Óska eftir lítilli íbúð eða herbergi
með aðgangi að eldhúsi og
snyrtingu. Upplýsingar í síma
892 2932 (Óli).
Búpeningur óskast!
Óska eftir að kaupa kvígur sem
bera fljótlega. Upplýsingar í síma
453 5004.
Tapað - fundið!
Svart dömuveski tapaðist fyrir
utan eða inni í félagsheimilinu
Bifröst sl. laugardagskvöld.
Skilvís finnandi vinsamlegast
hringið í síma 453 5483, eða skili
því á lögreglustöðina.
Góðir áskrifendur!
Munió aó greióa heimsenda gíróseöla
fyrir áskriftargjöldunum
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts
og jarðarfarar sonar míns,
Kjartans Karlssonar, Ránarstíg 8,
Sauðárkróki
Guðrún Jónsdóttir og aðrir vandamenn hins látna.
t
Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim er sýndu
okkur samúð og hlýhug vió andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa,
langafa og bróður
Kristjáns Einarssonar, Enni, Viðvíkursveit
Laufey Magnúsdóttir
Guðný Kristjánsdóttir
Eindís Kristjánsdóttir
Ragnhildur Kristjánsdóttir
Sigurberg H. Daníelsson
Kristján Geir Jóhannesson
Haraldur Þór Jóhannsson
Jóhann Stefánsson
Oddrún Guðmundsdóttir
Rakel Ragnarsdóttir
bamaböm, bamabamaböm og systkini.
Auglýsing um aðalskipulag
Varmahlíðar 1995-2015, Seyluhreppi
Samkvæmt 17. grein skipulagslaga nr. 19/1964 er hér með lýst eftir
athugasemdum við tillögu að aðalskipulagi Varmahlíðar í Seyluhreppi.
Skipulagstillagan nær yfir núverandi og fyrirhugaða byggð í Varmahlíð og
nágrenni á skipulagstímabilinu.
Tillaga að aðalskipulagi Varmahlíðar 1995-2015 ásamt greinargerð liggur
frammi á skrifstofu Seyluhrepps og á skrifstofu Skipulags ríkisins, Laugavegi
166, frá 22. nóvember til 3. janúar 1996 á skrifstofutíma alla virka daga.
Athugasemdum skal skila fyrir 17. janúar 1996 á skrifstofu Seyluhrepps og
skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir
tillögunni.
Oddviti Seyluhrepps
Skipulagsstjóri ríkisins.