Feykir


Feykir - 29.11.1995, Side 8

Feykir - 29.11.1995, Side 8
Oháð fréttablað á Norðurlandi vestra 29. nóvember 1995, 42. tölublað 15. árgangur. Auglýsing í Feyki fer víða! Að nema... ber ávöxt L NAMAN Landsbanki ísiands Banki allra landsmanna Sími 453 5353 « f -----• %. , » “ ÍJ, Ætla má af stöðu bátanna á kambinum við Sauðárkrókshöfn að óróleika hafi gætt í höfn- inni að undanförnu. Saga Hvammstanga: Fyrra bindið að koma út í tilefni þess að á þessu ári eru iiðin 100 ár frá því Alþingi samþykkti að gera Hvamms- tanga að verslunarstað, að til- Iögu Björns Sigfússonar á Kornsá, kemur út á næstu dögum fyrra bindi ritsins Saga Hvammstanga og hins forna Kirkjuhvammshrepps, eftir Steingrím Steinþórsson. Þar segir sögu Kirkjuhvamms- hrepps frá öndverðu og síðan sögu Hvammstanga eftir að hann kemur til sögunnar. Bókin er rúmar 300 blaðsíður í stóru broti, prýdd miklum fjölda Ijósmynda, korta og skýringarmynda. Hefur allt kapp verið lagt á að gera bók- ina sem vandaðasta, en þetta fyrra bindi nær til ársins 1938 þegar Hvammstangi var gerð- ur að sérstöku sveitarfélagi og seinna bindið kemur út á næsta ári. Fyrra bindið, sem kemur út á næstu dögum, skiptist í þrjá megin efnisþætti. Fyrri tímar, heitir sá fyrsti. Þar eru dregnar fram heimildir um hreppinn og nálægar sveitir frá upphafi byggðar ffam um 1700. Er þar m.a. fjallað um verslun, Kirkju- hvammskirkju auk margs konar ffóóleiks um flesta bæi í hreppn- um frá fyrri tímum. Einnig er þar ýmislegt sem tengist einstök- um persónum ffá fyrri tímum. Kirkjuhvammshreppur 1703- 1900. Hér er rakin saga hrepps- ins í 200 ár. Fjallað er um land- búnað, fiskveiðar, íbúaþróun og verslun, auk þess sem sagt er ffá þekktum sakamálum sem komu upp í hreppnum á síðustu öld. Loks er hér allnokkur persónu- saga þar sem gerð er grein fyrir ýmsum einstaklingum sem á einhvem hátt skám sig úr á sinni tið. Kirkjuhvammshreppur 1900- 1938. Rakin er þróun í hreppn- um á fyrstu áratugum aldarinnar, annars vegar í sveitinni og hins vegar upphaf og þróun byggðar á Hvammstanga. Fjallað er um atvinnulíf, íbúaþróun, félags- og menningarlíf. Greint er ffá ýms- um minnisstæóum atburðum og sagt frá einstaklingum sem voru áberandi í hreppnum á þessum árum. Þá er í allri bókinni alls kyns ítarefni um ýmislegt sem tengist þessari sögu beint eða óbeint. Fléttað er saman frásögn og myndum þannig að hvort styðji annað. Þá er bókin sett þannig upp að ekki er nauðsynlegt aó lesa hana ffá orðið til orðs, held- ur er hægt að grípa niður í henni og lesa um afmarkaða þætti. Þeir sem hug hafa á að kaupa Sögu Hvammstanga geta gert það með því að panta áskrift á skrifstofú Hvammstangahrepps í síma 451 2353. Sé það gert fýrir næstu áramót fæst bókin á 20% afslætti og kostar þá 4.960, séu bæði bindi pöntuð fást þau á 25% afslætti. Kemur þá seinna bindið ekki til með að kosta nema 4.340 til áskrifenda. Lagnakerfið bætt á Blönduósi Á næstunni munu eiga sér stað á Blönduósi talsverðar framkvæmdir í holræsagerð. Á dögunum voru opnuð tilboð í lagningu ffárennslis og jarð- vegsskipti í Brautarhvammi og á næstunni verður hafist handa við endurnýjun hol- ræsakerfis í eldri hluta bæjar- ins. Bæði þessi verk hafa verið á döfinni um tírna. Það hefúr háð nokkuð starfseminni í Brautarhvammi, þar sem tjaldsvæði bæjarins eru og sumarhúsabyggö, að grunn- vatnsstaða svæðisins er há. I>á er holræsakerfið í gamla bæn- um komið til ára sinna og vandamál hafa komið upp af þeim sökum. Steypustöð Blönduóss var með lægsta tilboðið í jarðvegs- skipti og frárennslislagnir í Brautarhvammi, að upphæð kr. 1.804.395 og er það nokkuð yfir kostnaðaráætlun, sem var 1,636,280. Þrjú önnur tilboð bár- ust í verkið frá Sigurgeiri Jónassyni, Eik hf og Pípulagna- verktökum, sem voru með hæsta tilboðió. Kostnaður vegna frárennsl- islagna í gamla bænum er upp á tæpa eina milljón. Einnig hefúr verið ákveðið að koma upp snjó- girðingum í bænum í vetur til að ffeista þess að halda snjónum ffá þeim köflum gatnakerfisins sem snjóþyngstir hafa reynst. Ljósastaurar á vegi ökumanna Tveir ökumenn á Sauðár- króki voru stöðvaðir um helgina, grunaðir um ölvun við akstur, eftir að ljósastaur- ar í bænum höfðu fengið að kenna á ökuleikni þeirra. Atvikin áttu sér stað á föstu- dags- og laugardagskvöld, ann- aó í Túnahverfi og hitt í norð- ara Hlíðahverfi. Lögreglan á Sauðárkróki hefúr haft töluverð afskipti af ökumönnum vegna meintrar ölvunar við akstur að undanfömu. Til að mynda voru þrír stöðvaóir un næstsíóustu helgi. Þorsteinn Valsson rafvirki er hér að koma úr undir- djúpunum. I brunni við Sæmundarhlíð var hann að koma fyrir lögnum vegna skjámyndakerfis Hitaveitu Sauðárkróks, sem verið er að koma fyrir í öllu veitu- kerfinu. Gæóaframköllun BQKABUÐ BIWnUelAlRS

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.