Feykir - 06.12.1995, Blaðsíða 8
I
6. desember 1995, 43. tölublað 15. árgangur.
Auglýsing í Feyki fer víða!
Barraeldið í Máka gengur vel:
Fyrsta framleiðslan
á markað í júní
Sunnudaginn 3. desember, á
alþjóðadegi fatlaðra, veittu
Landssamtökin Þroskahjálp í
þriðja sinn fyrirtæki viður-
kenningu fyrir atvinnustefnu
vinsamlega fötluðu fóiki. Við-
urkenningin var veitt í kaffi-
samsæti á Hótel Holti í
Reykjavík og hlutu hana að
þessu sinni Þormóður rammi
á Siglufirði, en þar hafa fatlað-
ir starfað undanfarin 11 ár og
þar vinna nú í dag 6 fatlaðir
einstaklingar.
I niðurstöðum dómnefndar er
þess sérstaklega getið að Þor-
móóur rammi hafi haft ákveðið
frumkvæði að því að ráða fatl-
aða til starfa. Fyrirtækið hefur
einnig unnið vel að því að finna
fötluðum störf sem víðast innan
fyrirtækisins og stuðlað þannig
aö samstarfi fatlaðra og ófatl-
aðra starfsmanna sinna. Laun og
kjör starfsmanna eru eftir gild-
andi kjarasamningi við verka-
lýðsfélagið Vöku á Siglufirði.
Róbert Guðfinnsson tók við
viðurkenningarskjali samtak-
anna ásamt mjög fallegum ker-
amikvasa gerðum af Olafi Þór
Olafssyni fötluóum listamanni
frá Selfossi og var það María
Hreióarsdóttir formaður Átaks,
félags þroskahefna og fatlaðra,
sem afhenti verðlaunin.
I þakkarræðu sem Róbert
Guðfinnsson hélt að lokinni af-
hendingunni kom ffarn að þátt-
taka fatlaðra í starfsemi Þor-
móðs ramma væri orðin svo
sjálfsögð að þegar hann fékk til-
kynningu um viðurkenninguna
hafi það komið honum á óvart.
Róbert lét þess einnig getið að
fatlaðir eins og aðrir starfsmenn
fyrirtækisins yrðu aó vinna
hörðum höndum fyrir sínum
launum sem þeir og gerðu.
Þetta er í þriðja sinn sem
þessi verðlaun eru veitt. Áður
höfðu fyrirtækin Hagkaup hf og
Nói/Síríus hlotið þau. Auk Þor-
móðs ramma fengu tilnefningar
aó þessu sinni: Skógræktarfélag
Reykjavíkur, Kaupfélag Héraðs-
búa, Leikskólinn Bakkaskjól í
Hnífsdal og Leikskólinn í Bol-
ungarvík.
□
„Eftir áföllin í mars sl. höfum
við náð okkur vel á strik. Við
fluttum inn hrogn í júní og
erum núna með 8000 fiska
sem koma á markað í júní á
næsta ári. Þá erum við með
stóran hrognahóp á fóðrum.
Þau eru í dag komin í gegnum
erfiðasta stigið og það lítur út
fyrir að við fáum tugi þúsunda
fiska út úr þessum hópi. Munu
þeir verða settir á markað í
lok næsta árs og ætti þá að
verða tilvalinn áramótaveislu-
matur. Við munum svo flytja
inn hrogn áfram strax eftir
áramótin og síðan aftur í
maí“, segir Guðmundur Örn
Ingólfsson framkvæmdastjóri
Máka.
Guðmundur segir að Eureka-
verkefhið sé oróinn veruleiki og
búió að ganga frá samningum,
en ESB samþykkti 25 milljón
króna fjárstuðning til Máka
vegna þessa verkefnis á liónu
sumri. Máki er eina íslenska fyr-
irtækió sem hefur náð þeim ár-
angri að eiga frumkvæði og
leiða slíkt verkefni.
, jvlér finnst það mjög ánægju-
legt að þetta hafi gerst á grund-
velli skagfirsk framtaks. Mönn-
um hefúr orðió tíðrætt um styrk-
ina sem við höfum fengið, en
þess misskilnings gætt, að menn
viróast halda aó við höfúm feng-
Á laugardaginn kemur, 9. des-
ember, verður bókmenntavaka í
Félagsheimilinu Bifröst til heið-
urs tveimur skagfirskum rithöf-
undum, þeim vinum og skáld-
bræðrum, Guðmundi L. Frið-
finnssyni á Egilsá og Guðmundi
Halldórssyni frá Bergsstöðum,
sem látinn er fyrir fjóram áram.
Það er Safnahús Skagfirð-
inga í samvinnu við Leikfélag
Sauðárkróks, sem gengst fyrir
þessari dagskrá. Þarna verða
m.a. afhent tvö olíumálverk,
(portrett), sem Kristinn G. Jó-
hannsson myndlistamaður á Ak-
ureyri hefur gert af þeim nöfnum
og gefið til Safnahúss Skagfirð-
inga. Síðan munu lesarar úr
Leikfélaginu flytja efni úr bók-
ið þá greidda. Forsenda þess að
við getum nýtt okkur ESB-fjár-
magniö er aó okkur takist aó út-
vega 15 milljón króna mótffam-
lag. Við fórum út í 17 milljón
króna hutafjáraukningu á árinu,
þannig að nú er heildarhlutafé í
fyrirtækinu orðið um 31 milljón.
Enn eru 7 milljónir útistandandi
í hlutafjáraukningunni, en ég tel
aó við höfum notað þessa fjár-
muni vel“.
Guðmundur segir að tækniyf-
irfærsluverkefnið fari af stað eft-
ir áramótin en það mun standa
yfir í tvö ár. Hann segir að menn
einbeiti sér að því aó fjármagna
verkefnið og þar megi ekkert
bera út af. Eg reiði mig á að fyr-
irtæki og almenningur í Skaga-
firði tryggi framgang þess með
hlutafjárkaupum“.
Eldið hjá Máka er nú komið
á það stig að ffekari eldisbúnaði
verði komið fyrir í stöðinni, og
er vonast til að uppsetning hans
gangi fljótt og vel fyrir sig. Ljóst
er að starfsemi Máka hefur vakið
athygli og eftirvæntingu, ekki
aðeins innanlands, heldur einnig
utan landssteina. Þannig hefur
komið til tals sala á þekkingu
sem unnist hefur við eldi hlý-
sjávarfiska hjá Máka. Fyrirspum
hefúr m.a. borist erlendis ffá í þá
veru nýlega. Þessi mál skýrast
væntanlega á næstu mánuðum.
um þeirra félaga. Eitthvað verð-
ur væntanlega fleira, en hér hef-
ur verið talið, en það kemur í
ljós á sínum tíma.
Dagskráin hefst kl. fjögur.
Boðnar verða kaffiveitingar og
allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir. Aðgangur er ókeypis.
Málmiðnaðarmennirnir á námskeiðinu sem fram fór í verknámshúsinu um helgina.
Farskóli Norðurlands vestra:
Starfsfræðslunámskeið
fyrir málmiðnaðarmenn
Um síðustu helgi var haldið í verknámshúsi
Fjölbrautaskólans námskeið í rafsuðu og er þetta
annað endurmenntunamámskeiðið sem haldið er í
þessari grein á Króknum á stuttum tíma. Á nám-
skeióinu mátti sjá marga jámsmiði sem stundað
hafa iðn sína til fjölda ára og ætla mætti að séu
fullnuma í greininni, en það eiga sér stað nýjungar
í þessari grein sem öðmm og því þurfa menn sífellt
að bæta við þekkinguna.
Námskeiðið var haldið að tilstuðlan Farskóla
Norðurlands vestra, málmiðnaðardeildar Iðn-
sveinafélags Skagafjarðar og Endurmenntunar
málmiðnaðarins, sem Iéði viðbótar tækjabúnaó.
Leiðbeinandi á námskeiðinu var Ingvar Ingvarsson
ffá Iðntæknistofhun.
□
Atvinnustefna vinsamleg fötluðum:
Ramminn fékk viðurkenningu
Bókmenntavaka í Bifröst