Fréttablaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 1
Stjórnmál Möguleiki væri á þrenns
konar þriggja flokka stjórn ef kosið
yrði til Alþingis í dag.
Píratar og Sjálfstæðisflokkurinn
gætu myndað meirihluta, en þessir
tveir flokkar gætu líka hvor um sig
myndað meirihluta með VG. Þetta
má lesa út úr niðurstöðum skoðana-
könnunar Fréttablaðsins, Stöðvar 2
og Vísis.
Síðasta könnun sem Fréttablaðið
gerði og sýndi að mögulegt væri
að mynda tveggja flokka stjórn án
Pírata var gerð í nóvember 2014, eða
fyrir um einu og hálfu ári.
Katrín Jakobsdóttir, formaður VG,
telur stjórn Sjálfstæðisflokksins og
VG þó ólíklegan möguleika að lokn-
um kosningum. „Ég hef alltaf talað
fyrir því að ef stjórnarandstaðan fær
meirihluta eftir þessar kosningar, þá
leitist hún við að mynda ríkisstjórn.
Það finnst mér vera eðlilegur val-
kostur,“ segir Katrín.
Rétt tæplega 20 prósent segja að
þau myndu kjósa VG ef kosið væri
nú, 31,1 prósent Sjálfstæðisflokkinn
og 30,3 prósent Pírata. Rúm sjö pró-
sent myndu kjósa Samfylkinguna og
tæp sjö prósent myndu kjósa Fram-
sóknarflokkinn. Rúm þrjú prósent
myndu kjósa Bjarta framtíð.
Ef niðurstöður kosninga yrðu í
samræmi við könnunina fengi Sjálf-
stæðisflokkur 21 þingmann kjörinn,
Píratar 20, VG fengi 13, Samfylkingin
fengi fimm menn og Framsóknar-
flokkurinn fjóra.
„Hún er mjög athyglisverð þessi
fylgisaukning Vinstri grænna. Vinstri
græn virðast hafa styrkt stöðu sína
verulega í kjölfar þessa stjórnar-
óróleika sem hefur verið á landinu
undanfarnar vikur,“ segir Baldur Þór-
hallsson stjórnmála fræðiprófessor.
„Það er augljóst að bæði Sam-
fylking og Framsóknarflokkur eru
í verulegum vanda. Þetta er mjög
slæm útkoma fyrir flokkinn sem
stýrir ríkisstjórninni annars vegar og
hins vegar fyrir stærsta stjórnarand-
stöðuflokkinn, sem hefur á þessum
tíma verið nokkuð í umfjölluninni
vegna formannskjörs.“
Í aðsendri grein í blaðinu í dag
leggur Magnús Orri Schram, for-
mannsframbjóðandi Samfylkingar,
til að flokkurinn verði lagður niður
og nýr jafnaðarflokkur stofnaður
í hans stað. Flokkurinn njóti ekki
hljómgrunns.
– jhh, snæ / sjá síður 4 og 18
— m e S t l e S n a dag b l a ð á Í S l a n d i * —1 1 1 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r F i m m t u d a g u r 1 2 . m a Í 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
Skoðun
Þorvaldur
Gylfason
skrifar um
sundraða
flokka. 19
Sport Kevin
Keegan var
meðal gesta á
Business and
Football. 22
menning Hið íslenska bók-
menntafélag er 200 ára og af því
tilefni er efnt til afmælissýningar
í Þjóðarbókhlöðunni. 28
lÍFið Með hendur í hári
Sigourney Weaver. 42
plúS Sérblað l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
6,5%
7,4%
19,8%
30,3%
31
,1%
3,1
%
✿ Fylgi flokka
Skoðanakönnun Fréttablaðsins 9. maí
12 MANNA ÁSAMT FYLGIHLUTUM
YFIR 15 TEGUNDIR
VERÐ FRÁ KR.24.990
HNÍFAPARATÖSKUR
45 ÁRA
LAUGAVEGI 178 – SÍMI 568 9955
Fleiri tveggja
flokka stjórnir
í myndinni
VG er með tæplega 20 prósenta fylgi í nýrri könnun.
Píratar og Sjálfstæðisflokkurinn stærstir. Mögulegt
væri að mynda þrenns konar tveggja flokka stjórn.
Stjórn með aðild Vinstri grænna yrði þó mjög veik.
lÍFið Nú er runninn upp sá tími
ársins að prófatíðin fer að klárast
hjá flestum. Nemendur í prófum
hafa gengið í gegnum ýmsar raunir
undanfarið, eins og að vaka heilu
næturnar, drekka yfir sig af kaffi og
stressast upp úr öllu valdi.
Það er erfitt að ímynda sér að lífið
verði samt aftur á meðan þessi
ósköp standa
yfir, en engar
áhyggjur – það
er líf eftir prófin.
F r é t t a b l a ð i ð
skoðar nokkrar
skotheldar leiðir sem
mismunandi mann-
gerðir geta nýtt sér til
að komast aftur í gamla
formið.
– sþh, gjs / sjá
síðu 38
Það er augljóst að
bæði Samfylking og
Framsóknarflokkur eru í
verulegum vanda.
Baldur Þórhallsson,
prófessor í stjórn-
málafræði við HÍ
Er eitthvert líf
eftir próflok?
- 30%
hindber
549 kr.pk.
Verð áður 799 kr. pk.
FYRIR OKKUR
Sérvalið fyrir íslenskar aðstæður.
Kynntu þér úrvalið á gulimidinn.is
Pepsi-deild kvenna hófst með fjórum leikjum í gær. Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu öruggan sigur á KR, Sel-
foss gerði góða ferð til Eyja og vann sigur á ÍBV og Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði í fyrsta deildarleik sínum á
Íslandi síðan 2008. Þá skoraði Harpa Þorsteinsdóttir þrennu þegar Stjarnan vann Þór/KA. Fréttablaðið/anton brink
1
2
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
6
7
-F
3
6
8
1
9
6
7
-F
2
2
C
1
9
6
7
-F
0
F
0
1
9
6
7
-E
F
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K