Fréttablaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 19
Undarlegir hlutir gerast nú allt í kringum okkur. Brezki Íhaldsflokkurinn, flokkur Winstons Churchill og Margrétar Thatcher, getur hæglega sprungið í loft upp í sumar ef Bretar ákveða að segja skilið við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslunni 23. júní nk. Atkvæðagreiðslan er haldin vegna þess að Íhaldsflokkurinn er klofinn í málinu. David Cameron forsætisráðherra og 16 aðrir ráðherr- ar í ríkisstjórn hans vilja að Bretar verði áfram í ESB, en fimm ráðherrar vilja ganga út eins og allmargir þingmenn flokksins og óbreyttir flokksmenn. Aðrir helztu flokkar í þinginu leggjast gegn úrsögn Breta úr ESB, þ.m.t. Verkamannaflokkur- inn, Frjálslyndi flokkurinn og Skozki þjóðarflokkurinn. Boris Johnson, fráfarandi borgar- stjóri í London, mælir fyrir úrsögn, sumir segja til að geta orðið for- sætisráðherra strax í sumar verði úrsögnin samþykkt. Fari svo, mun ekki bara Íhaldsflokkurinn splundr- ast heldur einnig Bretland þar eð Skotar munu þá trúlega heimta sjálfstæði án frekari tafar til að geta verið áfram í ESB á eigin spýtur. Lík- legt virðist einnig að Norður-Írland muni þá kjósa að sameinast Írlandi í sama skyni. Eftir stendur þá England berstrípað ásamt Wales, varla svipur hjá sjón. Barack Obama Bandaríkja- forseti varar Breta opinskátt við útgöngu og hættunni á að Bretar myndu með því móti spilla sérstöku sambandi sínu við Bandaríkin. Repúblikanar: Sama saga Svipað er að gerast í Bandaríkjunum þar sem Repúblikanaflokkurinn, flokkur Abrahams Lincoln, virðist ætla að ganga sundraður til for- setakjörs í haust. Í fyrsta sinn í sögu landsins hefur nú annar stóru flokkanna kallað yfir sig óvinveitta yfirtöku eins og sagt er á viðskipta- máli. Kaupsýslumaðurinn og raun- veruleikasjónvarpsstjarnan Donald Trump stendur einn eftir þeirra 17 manna sem sóttust eftir útnefningu repúblikana og virðist því líklegur til að hljóta útnefninguna á flokksþing- inu í Cleveland í Ohio í sumar nema flokkseigendafélagið finni leið til að hafa útnefninguna af honum. Fari svo segist hann munu bjóða sig fram utan flokka. Ekki er heldur hægt að útiloka að flokkseigendafélagið tefli fram utanflokkaframbjóðanda til höfuðs Trump. Repúblikanaflokkurinn klofnaði síðast 1912. Klofningurinn þá færði demókrötum Hvíta húsið á silfurfati. Það virðist einnig líkleg niður- staða forsetakjörsins þar vestra í nóvember. Við bætist að efnahagur Bandaríkjanna fer nú batnandi, full atvinna er aftur komin á eftir hremmingar undangenginna ára, verðbólga er lítil sem engin og vextir eru nálægt núlli. Það ætti eitt sér í ljósi reynslunnar að duga demó- krötum til sigurs jafnvel gegn sam- einuðum repúblikönum enda þótt laun séu enn víða þrúgandi lág þar vestra og misskipting auðs og tekna sé mörgum þungbær. Sviðin jörð ehf. Áþekk staða er nú uppi hér heima. Fyrir liggur að Sjálfstæðisflokkurinn gengur sundraður til næstu alþingis- kosninga þar eð Viðreisn Benedikts Jóhannessonar tölfræðings er fyrst og fremst stefnt gegn Sjálfstæðis- flokknum vegna vanefnda flokksins í Evrópumálum. Það veikir flokkinn enn frekar að nú hefur fv. formaður flokksins, forsætisráðherra og seðlabankastjóri tilkynnt framboð sitt til forseta Íslands, maður sem hefur skilið eftir sig sviðna jörð hvar sem hann hefur drepið niður fæti sl. aldarfjórðung. Hann kýldi kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins niður um þriðjung, kýldi lestur Morgun- blaðsins niður fyrir Bændablaðið, keyrði Seðlabanka Íslands í þrot („Það var aldrei kláraður lánasamn- ingur á milli Kaupþings og Seðla- bankans vegna þessa láns“ að sögn forstjóra Kaupþings í Fréttablaðinu 25. október 2014) og reyndi síðan að selja Ísland í hendur Rússum eftir hrun („Öll aðstoð frá Rússlandi er vel þegin“, Viðskiptablaðið, 7. október 2008) til að komast undan AGS og Norðurlöndum sem áttu þó eftir að bjarga því sem bjargað varð – svo fátt eitt sé talið. Rannsóknarnefnd Alþingis ályktaði að hann hefði líkt og sex aðrir menn gerzt brotlegur við lög í aðdraganda hrunsins. Fjórir af þessum sjö voru hátt settir sjálf- stæðismenn. Nánar tiltekið segir RNA í skýrslu sinni (2. kafli, bls. 46) að seðlabankastjórinn þáv. „hafi sýnt af sér vanrækslu í skilningi … laga … í tilteknum störfum sínum við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi og eftirlit með henni.“ Ætla má eftir allt sem á undan er gengið að einhverjir flokksmenn sjái e.t.v. votta fyrir tormerkjum á að senda mann með slíkan feril til Bessastaða. Stjórnmálaflokkar hafa losnað úr límingunum af minna tilefni. Spyrjið repúblikana. Þegar allt springur Það veikir flokkinn enn frekar að nú hefur fv. for- maður flokksins, forsætis- ráðherra og seðlabankastjóri tilkynnt framboð sitt til forseta Íslands. Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag KJÖTBORÐ Í Fjarðarkaupum færðu allt á einum stað. Kjötborð okkar er rómað fyrir góða vöru og framúrskarandi þjónustu. Við bjóðum upp á fyrsta flokks ferskt kjöt, sérvalið af fagmönnum. Hjá okkur starfar lærður kjötiðnaðarmaður sem leiðbeinir þér við val á kjöti og sker eftir þínum óskum. Einnig bjóðum við alltaf upp á sérútbúna rétti sem þú getur eldað heima. Við tryggjum þér ferskleika, gæði og úrval. Verið velkomin í Fjarðarkaup Ferskt kjöt • Þú ræður magni og skurði • Sérútbúnir réttir OPIÐ mánudaga - miðvikudaga frá 09:00 - 18:00 / fimmtudaga 09:00 - 18:30 föstudaga 09:00 - 19:00 / laugardaga 10:00 - 16:00 / lokað sunnudaga. www.fjardarkaup.is s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 1 2 . M a Í 2 0 1 6 1 2 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 6 8 -2 4 C 8 1 9 6 8 -2 3 8 C 1 9 6 8 -2 2 5 0 1 9 6 8 -2 1 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.