Fréttablaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 20
Sadiq Khan 1.148.716 44,2% 161.427 1.310.143 50,4% Zac Goldsmith 909.755 35,0% 84.859 994.614 38,3% Hinir tíu frambj. 538.490 20,7% Ófæranleg atkvæði 292.204 11,3% Gild atkvæði alls 2.596.961 100,0% 246.286 2.596.961 100,0% Atkvæði í aðalvali Hlutfall af gildum atkvæðum Færð atkvæði Atkvæði að loknum tilfærslum Hlutfall af gildum atkvæðum ✿ Atkvæði og tilfærslur Hvað eiga þessi tvö hús sam-eiginlegt? Annað er aðsetur forseta Íslands en í hinu situr borgarstjóri Lundúnaborgar. Það er þó gjörólíkt hvernig menn komast til ábúðar í þessum húsum. Framundan er að velja næsta bónda á Bessastöðum. Það verður gert með svokallaðri meirihlutakosningu. Sá vinnur sem flest fær atkvæðin, óháð því hvort hann nær meirihluta atkvæða eða ekki. Nú kunna all- margir að takast á um forsetaemb- ættið. Þá er undir hælinn lagt hver stuðningurinn verður við vinnings- hafann. Borgarstjórinn í London er á hinn bóginn kjörinn á þann hátt að meiri líkur eru á því en minni að hann njóti stuðnings meirihlutans. Lítum nánar á kosninguna sem fram fór í London 5. maí sl. Kjósandi í London merkir við þann frambjóðanda sem hann helstan kýs, allt eins og hér. En að auki býðst honum að merkja við annan til vara. Uppgjörið fer þann- ig fram að fyrst eru talin saman atkvæði í aðalvali kjósenda. Nái þá einhver meirihlutafylgi er hann rétt kjörinn borgarstjóri. Ef ekki, kemur sá frambjóðandi sem fær fæst aðal- atkvæði ekki lengur til greina. Atkvæði hans færast til hinna fram- bjóðendanna í samræmi við vara- val hvers þessara kjósanda. Þessu er haldið áfram koll af kolli þar til einungis tveir frambjóðendur eru eftir og er þá að sjálfsögðu sá valinn sem hefur flest atkvæði. Hvernig voru úrslitin fengin í London? Tólf buðu sig fram í borgarstjóra- embættið. Þeir sem flest atkvæði hlutu í aðalvali kjósenda voru fram- bjóðendur Verkamannaflokksins annars vegar og Íhaldsmanna hins vegar, þeir Sadiq Khan og Zac Golds- mith. Fylgi þeirra tveggja kemur fram í tveimur fyrstu talnadálk- unum í meðfylgjandi töflu. Af töflunni sést að enginn fram- bjóðandi hlaut hreinan meirihluta atkvæða í aðalvali kjósenda. Ef þetta væru forsetakosningar á Íslandi væri hér með amen eftir efninu og Khan kjörinn út á 44% fylgi. Atkvæði þeirra tæplega 21% kjós- enda, sem völdu einhvern hinna tíu – en þeir eru spyrtir saman í töfl- unni – myndu detta niður dauð og ómerk. Þau réðu engu um það hvort Khan eða Goldsmith yrði að lokum valinn. Þó er ljóst að þau ættu að geta ráðið úrslitum. Í London er því ekki látið staðar numið heldur rýnt í varaval kjós- enda þeirra frambjóðenda sem reka lestina og atkvæðin færð til í samræmi við vilja kjósenda. Loka- niðurstaðan er sýnd í fjórða talna- dálki töflunnar. Að loknum tilfærslum atkvæða í varavali sést að Khan nær hreinum meirihluta gildra atkvæða, þótt naumur sé eða 50,4%. Úr lokadálki töflunnar má lesa að einungis 11,3% kjósenda hafa engin áhrif á það hvor þeirra efstu náði kjöri. Án vara- valsins væru þessir áhrifalausu nær helmingi fleiri eða 20,7%. Ástæður þess, að tiltölulega mörg atkvæði – eða 246.286 – fara forgörðum þrátt fyrir varavalið, eru einkum tvær. Annars vegar sú að kjósendur hirtu ekki um að velja varamann en hins vegar vegna þess að tiltölulega margir völdu sama frambjóðanda sem aðal- og varamann og gerðu þar með varaval sitt marklaust. Hjá þessu síðarnefnda hefði mátt kom- ast með betri útfærslu kjörseðilsins en það er önnur saga. Aðferðafræðin í þessum bresku borgarstjórakosningum er vel þekkt. Hún hefur verið notuð í nær heila öld á Írlandi, m.a. við forseta- kjör, og hún var notuð í kosning- unum til Stjórnlagaþingsins sáluga 2010 og henni mun verða beitt við kjör á formanni Samfylkingarinnar nú á næstunni. Kosningin á borgar- stjóranum í London og kosningin til Stjórnlagaþingsins eiga fleira sameiginlegt, m.a. að í báðum var talið rafrænt. En munurinn er sá að Hæstiréttur leyfði sér að úrskurða íslensku kosninguna ólöglega. Stjórnlagaráð lagði til margvís- legar umbætur á fyrirkomulagi for- setakosninga, svo sem um fjölgun meðmælenda svo og að kjósendur gætu forgangsraðað frambjóð- endum svipað og í þessari bresku kosningu. En allt hefur þetta dagað uppi. Því sitjum við líka uppi með það að forseti lýðveldisins getur veitt „… undanþágur frá lögum samkvæmt reglum, sem farið hefur verið eftir hingað til“. eins og segir í hinum gildandi grundvallarlögum okkar, bráðabirgðastjórnarskránni frá 1944. Er ekki tími til kominn að fólk kynni sér stjórnarskrármálið? Bessastaðir og Mansion House Þorkell Helgason áhugamaður um bætta stjórnar- skrá og sat í stjórnlagaráði Stjórnlagaráð lagði til marg- víslegar umbætur á fyrir- komulagi forsetakosninga, svo sem um fjölgun með- mælenda svo og að kjós- endur gætu forgangsraðað frambjóðendum svipað og í þessari bresku kosningu. En allt hefur þetta dagað uppi. FÉLAG ÍSLENSKRA HJÚKRUNARFRÆÐINGA Góð heilbrigðisþjónusta er ein forsenda þess að einstaklingar geti notið góðrar heilsu. Hjúkrun er sá þáttur heilbrigðisþjónustu á Íslandi sem nær til estra landsmanna. Hjúkrun er þekking, færni og umhyggja í þágu þjóðarinnar. Skipulagning Skyldur Stefnumótun Stjórnun Trúnaður Virðing Þjálfun Öryggi Ábyrgð Árangur Eftirlit Endurhæfing Gæði Heilsuefling Heilsugæsla Heilsuvernd Þekking Færni Umhyggja Kennsla Leiðsögn Lýðheilsa Málsvörn Mat Meðferð Menntun Nám Nýjungar Ráðgjöf Rannsóknir Samhæfing Samheldni Samhjálp Sérhæfing Skilningur Suðurlandsbraut 22 – 108 Reykjavik – Sími 540 6400 – hjukrun@hjukrun.is 1 2 . m A í 2 0 1 6 F I m m T U D A G U R20 Save the Children á Íslandi 1 2 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 6 8 -2 9 B 8 1 9 6 8 -2 8 7 C 1 9 6 8 -2 7 4 0 1 9 6 8 -2 6 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.