Fréttablaðið - 12.05.2016, Qupperneq 20
Sadiq Khan 1.148.716 44,2% 161.427 1.310.143 50,4%
Zac Goldsmith 909.755 35,0% 84.859 994.614 38,3%
Hinir tíu frambj. 538.490 20,7%
Ófæranleg atkvæði 292.204 11,3%
Gild atkvæði alls 2.596.961 100,0% 246.286 2.596.961 100,0%
Atkvæði
í aðalvali
Hlutfall af
gildum
atkvæðum
Færð
atkvæði
Atkvæði að
loknum
tilfærslum
Hlutfall af
gildum
atkvæðum
✿ Atkvæði og tilfærslur
Hvað eiga þessi tvö hús sam-eiginlegt? Annað er aðsetur forseta Íslands en í hinu
situr borgarstjóri Lundúnaborgar.
Það er þó gjörólíkt hvernig menn
komast til ábúðar í þessum húsum.
Framundan er að velja næsta bónda
á Bessastöðum. Það verður gert með
svokallaðri meirihlutakosningu.
Sá vinnur sem flest fær atkvæðin,
óháð því hvort hann nær meirihluta
atkvæða eða ekki. Nú kunna all-
margir að takast á um forsetaemb-
ættið. Þá er undir hælinn lagt hver
stuðningurinn verður við vinnings-
hafann. Borgarstjórinn í London er
á hinn bóginn kjörinn á þann hátt
að meiri líkur eru á því en minni að
hann njóti stuðnings meirihlutans.
Lítum nánar á kosninguna sem fram
fór í London 5. maí sl.
Kjósandi í London merkir við
þann frambjóðanda sem hann
helstan kýs, allt eins og hér. En að
auki býðst honum að merkja við
annan til vara. Uppgjörið fer þann-
ig fram að fyrst eru talin saman
atkvæði í aðalvali kjósenda. Nái þá
einhver meirihlutafylgi er hann rétt
kjörinn borgarstjóri. Ef ekki, kemur
sá frambjóðandi sem fær fæst aðal-
atkvæði ekki lengur til greina.
Atkvæði hans færast til hinna fram-
bjóðendanna í samræmi við vara-
val hvers þessara kjósanda. Þessu
er haldið áfram koll af kolli þar til
einungis tveir frambjóðendur eru
eftir og er þá að sjálfsögðu sá valinn
sem hefur flest atkvæði. Hvernig
voru úrslitin fengin í London?
Tólf buðu sig fram í borgarstjóra-
embættið. Þeir sem flest atkvæði
hlutu í aðalvali kjósenda voru fram-
bjóðendur Verkamannaflokksins
annars vegar og Íhaldsmanna hins
vegar, þeir Sadiq Khan og Zac Golds-
mith. Fylgi þeirra tveggja kemur
fram í tveimur fyrstu talnadálk-
unum í meðfylgjandi töflu.
Af töflunni sést að enginn fram-
bjóðandi hlaut hreinan meirihluta
atkvæða í aðalvali kjósenda. Ef þetta
væru forsetakosningar á Íslandi
væri hér með amen eftir efninu
og Khan kjörinn út á 44% fylgi.
Atkvæði þeirra tæplega 21% kjós-
enda, sem völdu einhvern hinna
tíu – en þeir eru spyrtir saman í töfl-
unni – myndu detta niður dauð og
ómerk. Þau réðu engu um það hvort
Khan eða Goldsmith yrði að lokum
valinn. Þó er ljóst að þau ættu að
geta ráðið úrslitum.
Í London er því ekki látið staðar
numið heldur rýnt í varaval kjós-
enda þeirra frambjóðenda sem
reka lestina og atkvæðin færð til í
samræmi við vilja kjósenda. Loka-
niðurstaðan er sýnd í fjórða talna-
dálki töflunnar.
Að loknum tilfærslum atkvæða í
varavali sést að Khan nær hreinum
meirihluta gildra atkvæða, þótt
naumur sé eða 50,4%. Úr lokadálki
töflunnar má lesa að einungis 11,3%
kjósenda hafa engin áhrif á það hvor
þeirra efstu náði kjöri. Án vara-
valsins væru þessir áhrifalausu nær
helmingi fleiri eða 20,7%. Ástæður
þess, að tiltölulega mörg atkvæði
– eða 246.286 – fara forgörðum
þrátt fyrir varavalið, eru einkum
tvær. Annars vegar sú að kjósendur
hirtu ekki um að velja varamann en
hins vegar vegna þess að tiltölulega
margir völdu sama frambjóðanda
sem aðal- og varamann og gerðu
þar með varaval sitt marklaust. Hjá
þessu síðarnefnda hefði mátt kom-
ast með betri útfærslu kjörseðilsins
en það er önnur saga.
Aðferðafræðin í þessum bresku
borgarstjórakosningum er vel
þekkt. Hún hefur verið notuð í nær
heila öld á Írlandi, m.a. við forseta-
kjör, og hún var notuð í kosning-
unum til Stjórnlagaþingsins sáluga
2010 og henni mun verða beitt við
kjör á formanni Samfylkingarinnar
nú á næstunni. Kosningin á borgar-
stjóranum í London og kosningin
til Stjórnlagaþingsins eiga fleira
sameiginlegt, m.a. að í báðum var
talið rafrænt. En munurinn er sá að
Hæstiréttur leyfði sér að úrskurða
íslensku kosninguna ólöglega.
Stjórnlagaráð lagði til margvís-
legar umbætur á fyrirkomulagi for-
setakosninga, svo sem um fjölgun
meðmælenda svo og að kjósendur
gætu forgangsraðað frambjóð-
endum svipað og í þessari bresku
kosningu. En allt hefur þetta dagað
uppi. Því sitjum við líka uppi með
það að forseti lýðveldisins getur
veitt „… undanþágur frá lögum
samkvæmt reglum, sem farið hefur
verið eftir hingað til“. eins og segir í
hinum gildandi grundvallarlögum
okkar, bráðabirgðastjórnarskránni
frá 1944.
Er ekki tími til kominn að fólk
kynni sér stjórnarskrármálið?
Bessastaðir og
Mansion House
Þorkell
Helgason
áhugamaður um
bætta stjórnar-
skrá og sat í
stjórnlagaráði
Stjórnlagaráð lagði til marg-
víslegar umbætur á fyrir-
komulagi forsetakosninga,
svo sem um fjölgun með-
mælenda svo og að kjós-
endur gætu forgangsraðað
frambjóðendum svipað og í
þessari bresku kosningu. En
allt hefur þetta dagað uppi.
FÉLAG ÍSLENSKRA
HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Góð heilbrigðisþjónusta er ein forsenda þess
að einstaklingar geti notið góðrar heilsu.
Hjúkrun er sá þáttur heilbrigðisþjónustu
á Íslandi sem nær til estra landsmanna.
Hjúkrun er þekking, færni og umhyggja
í þágu þjóðarinnar.
Skipulagning
Skyldur
Stefnumótun
Stjórnun
Trúnaður
Virðing
Þjálfun
Öryggi
Ábyrgð
Árangur
Eftirlit
Endurhæfing
Gæði
Heilsuefling
Heilsugæsla
Heilsuvernd
Þekking
Færni
Umhyggja
Kennsla
Leiðsögn
Lýðheilsa
Málsvörn
Mat
Meðferð
Menntun
Nám
Nýjungar
Ráðgjöf
Rannsóknir
Samhæfing
Samheldni
Samhjálp
Sérhæfing
Skilningur
Suðurlandsbraut 22 – 108 Reykjavik – Sími 540 6400 – hjukrun@hjukrun.is
1 2 . m A í 2 0 1 6 F I m m T U D A G U R20
Save the Children á Íslandi
1
2
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
6
8
-2
9
B
8
1
9
6
8
-2
8
7
C
1
9
6
8
-2
7
4
0
1
9
6
8
-2
6
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K