Fréttablaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 19
Undarlegir hlutir gerast nú allt í kringum okkur. Brezki Íhaldsflokkurinn, flokkur
Winstons Churchill og Margrétar
Thatcher, getur hæglega sprungið í
loft upp í sumar ef Bretar ákveða að
segja skilið við Evrópusambandið í
þjóðaratkvæðagreiðslunni 23. júní
nk. Atkvæðagreiðslan er haldin
vegna þess að Íhaldsflokkurinn er
klofinn í málinu. David Cameron
forsætisráðherra og 16 aðrir ráðherr-
ar í ríkisstjórn hans vilja að Bretar
verði áfram í ESB, en fimm ráðherrar
vilja ganga út eins og allmargir
þingmenn flokksins og óbreyttir
flokksmenn. Aðrir helztu flokkar í
þinginu leggjast gegn úrsögn Breta
úr ESB, þ.m.t. Verkamannaflokkur-
inn, Frjálslyndi flokkurinn og Skozki
þjóðarflokkurinn.
Boris Johnson, fráfarandi borgar-
stjóri í London, mælir fyrir úrsögn,
sumir segja til að geta orðið for-
sætisráðherra strax í sumar verði
úrsögnin samþykkt. Fari svo, mun
ekki bara Íhaldsflokkurinn splundr-
ast heldur einnig Bretland þar eð
Skotar munu þá trúlega heimta
sjálfstæði án frekari tafar til að geta
verið áfram í ESB á eigin spýtur. Lík-
legt virðist einnig að Norður-Írland
muni þá kjósa að sameinast Írlandi í
sama skyni. Eftir stendur þá England
berstrípað ásamt Wales, varla svipur
hjá sjón. Barack Obama Bandaríkja-
forseti varar Breta opinskátt við
útgöngu og hættunni á að Bretar
myndu með því móti spilla sérstöku
sambandi sínu við Bandaríkin.
Repúblikanar: Sama saga
Svipað er að gerast í Bandaríkjunum
þar sem Repúblikanaflokkurinn,
flokkur Abrahams Lincoln, virðist
ætla að ganga sundraður til for-
setakjörs í haust. Í fyrsta sinn í
sögu landsins hefur nú annar stóru
flokkanna kallað yfir sig óvinveitta
yfirtöku eins og sagt er á viðskipta-
máli. Kaupsýslumaðurinn og raun-
veruleikasjónvarpsstjarnan Donald
Trump stendur einn eftir þeirra 17
manna sem sóttust eftir útnefningu
repúblikana og virðist því líklegur til
að hljóta útnefninguna á flokksþing-
inu í Cleveland í Ohio í sumar nema
flokkseigendafélagið finni leið til að
hafa útnefninguna af honum. Fari
svo segist hann munu bjóða sig fram
utan flokka. Ekki er heldur hægt að
útiloka að flokkseigendafélagið tefli
fram utanflokkaframbjóðanda til
höfuðs Trump.
Repúblikanaflokkurinn klofnaði
síðast 1912. Klofningurinn þá færði
demókrötum Hvíta húsið á silfurfati.
Það virðist einnig líkleg niður-
staða forsetakjörsins þar vestra í
nóvember. Við bætist að efnahagur
Bandaríkjanna fer nú batnandi,
full atvinna er aftur komin á eftir
hremmingar undangenginna ára,
verðbólga er lítil sem engin og vextir
eru nálægt núlli. Það ætti eitt sér í
ljósi reynslunnar að duga demó-
krötum til sigurs jafnvel gegn sam-
einuðum repúblikönum enda þótt
laun séu enn víða þrúgandi lág þar
vestra og misskipting auðs og tekna
sé mörgum þungbær.
Sviðin jörð ehf.
Áþekk staða er nú uppi hér heima.
Fyrir liggur að Sjálfstæðisflokkurinn
gengur sundraður til næstu alþingis-
kosninga þar eð Viðreisn Benedikts
Jóhannessonar tölfræðings er fyrst
og fremst stefnt gegn Sjálfstæðis-
flokknum vegna vanefnda flokksins
í Evrópumálum. Það veikir flokkinn
enn frekar að nú hefur fv. formaður
flokksins, forsætisráðherra og
seðlabankastjóri tilkynnt framboð
sitt til forseta Íslands, maður sem
hefur skilið eftir sig sviðna jörð
hvar sem hann hefur drepið niður
fæti sl. aldarfjórðung. Hann kýldi
kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins niður
um þriðjung, kýldi lestur Morgun-
blaðsins niður fyrir Bændablaðið,
keyrði Seðlabanka Íslands í þrot
(„Það var aldrei kláraður lánasamn-
ingur á milli Kaupþings og Seðla-
bankans vegna þessa láns“ að sögn
forstjóra Kaupþings í Fréttablaðinu
25. október 2014) og reyndi síðan
að selja Ísland í hendur Rússum eftir
hrun („Öll aðstoð frá Rússlandi er vel
þegin“, Viðskiptablaðið, 7. október
2008) til að komast undan AGS og
Norðurlöndum sem áttu þó eftir að
bjarga því sem bjargað varð – svo
fátt eitt sé talið.
Rannsóknarnefnd Alþingis
ályktaði að hann hefði líkt og sex
aðrir menn gerzt brotlegur við lög
í aðdraganda hrunsins. Fjórir af
þessum sjö voru hátt settir sjálf-
stæðismenn. Nánar tiltekið segir
RNA í skýrslu sinni (2. kafli, bls. 46)
að seðlabankastjórinn þáv. „hafi
sýnt af sér vanrækslu í skilningi …
laga … í tilteknum störfum sínum
við framkvæmd laga og reglna um
fjármálastarfsemi og eftirlit með
henni.“
Ætla má eftir allt sem á undan er
gengið að einhverjir flokksmenn
sjái e.t.v. votta fyrir tormerkjum á
að senda mann með slíkan feril til
Bessastaða. Stjórnmálaflokkar hafa
losnað úr límingunum af minna
tilefni.
Spyrjið repúblikana.
Þegar allt springur
Það veikir flokkinn enn
frekar að nú hefur fv. for-
maður flokksins, forsætis-
ráðherra og seðlabankastjóri
tilkynnt framboð sitt til
forseta Íslands.
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag
KJÖTBORÐ
Í Fjarðarkaupum færðu allt á einum stað. Kjötborð okkar er rómað fyrir góða
vöru og framúrskarandi þjónustu. Við bjóðum upp á fyrsta flokks ferskt kjöt,
sérvalið af fagmönnum.
Hjá okkur starfar lærður kjötiðnaðarmaður sem leiðbeinir þér við val á kjöti
og sker eftir þínum óskum. Einnig bjóðum við alltaf upp á sérútbúna rétti
sem þú getur eldað heima.
Við tryggjum þér ferskleika, gæði og úrval.
Verið velkomin í Fjarðarkaup
Ferskt kjöt • Þú ræður magni og skurði • Sérútbúnir réttir
OPIÐ mánudaga - miðvikudaga frá 09:00 - 18:00 / fimmtudaga 09:00 - 18:30
föstudaga 09:00 - 19:00 / laugardaga 10:00 - 16:00 / lokað sunnudaga. www.fjardarkaup.is
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 1 2 . M a Í 2 0 1 6
1
2
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
6
8
-2
4
C
8
1
9
6
8
-2
3
8
C
1
9
6
8
-2
2
5
0
1
9
6
8
-2
1
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K