Fréttablaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 12.05.2016, Blaðsíða 10
Á fyrsta ársfjórðungi 2016 bættist billjón dollara við heildarumfang skulda í Kína. Óttast er að skuldir Kína séu að verða of miklar. Business Insider greinir frá því að skuldir einkaaðila í Kína séu orðn- ar svo miklar að eina dæmið um slíkar skuldir hafi fundist á Írlandi rétt fyrir kreppu árið 2008, sam- kvæmt greiningaraðilanum Andrew Garthwaite hjá Credit Suisse. Þegar skuldirnar voru svona miklar á Írlandi var stutt í að fasteignabólan þar í landi spryngi og að atvinnu- leysi þrefaldaðist. Garthwaite segir bólu ríkja á hús- næðismarkaði í Kína. Hann bendir á að lán deilt með landsframleiðslu hafi hækkað meira á sjö ára tíma- bili en í nokkru öðru landi (fyrir utan Írland fyrir kreppu). Skuldir deilt með vergri landsframleiðslu í Kína eru nú 36 prósentum hærri en meðaltal síðustu 25 ára og nema um 240 prósentum. Erfitt er að spá um þróun skulda- vandans í Kína, en engu að síður er hann verri þar í landi en í nokkru öðru landi í dag. – sg Óttast umfang skuldavandans í Kína Niðurstöður tilraunverkefnis um styttingu vinnuvikunnar hjá Reykjavíkurborg benda til þess að starfsmönnum hafi tekist að sinna verkefnum sínum til fulls þrátt fyrir fjórum til fimm klukkutímum styttri vinnuviku. Enginn auka- kostnaður fylgdi tilrauninni fyrir utan bakvakt á föstudagseftirmið- dögum hjá Barnavernd. Niðurstöður benda til þess að með styttri vinnuviku sé andleg og líkam- leg líðan starfsmanna betri, starfs- ánægja eykst og tíðni skammtíma- veikinda lækkar. Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar og formaður stýrihóps um innleiðingu verkefnis- ins, segir tvímælalaust jákvæð áhrif af þessari tilraun. Hún segir æskilegt að halda áfram með verkefnið til að mæla hvort jákvæð áhrif vari. Frá 1. mars 2015 til 1. mars 2016 fór fram tilraun með stytt- ingu vinnuviku í Þjónustumið- stöð Árbæjar og Grafarholts og hjá Barnavernd; tveimur vinnustöðum þar sem álag var talið mikið. Hjá Barnavernd var vinnuvikan stytt um fjóra klukkutíma með því að loka eftir hádegi á föstudögum, þá tók bakvakt við. Hjá Þjónustumið- stöðinni var lokað klukkan þrjú í stað fjögur alla virka daga. „Við átt- uðum okkur strax á því að það er mikilvægt að laga þetta að hverjum vinnustað fyrir sig,“ segir Sóley. „Verkefnið hefur gengið snurðu- laust fyrir sig. Það hafa verið mjög fáar hindranir í veginum. Báðir vinnu- staðir tóku sínar daglegu venjur til gagngerrar skoðunar, þeir veltu fyrir sér tímastjórnun, lengd kaffipása, og funda. Niðurstöður og samtöl við fólk sem tók þátt benda til þess að fólk nýti tímann sem það er í vinnunni betur til vinnu,“ segir hún. Sóley segir að þó að þessar vís- bendingar séu til staðar þá sé ýmis- legt sem þörf sé á að skoða frekar, til dæmis hvort fólk sem vinni styttri vinnuviku sé að taka á sig auknar byrðar heima. „Niðurstöður til- raunarinnar verða formlega kynnt- ar á málþingi í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan tvö í dag. Það væri gaman ef málþingið í dag yrði til að kveikja í almenna vinnumarkaðnum til að skoða þetta,“ segir Sóley Tómas- dóttir. saeunn@frettabladid.is Jákvæð áhrif af styttri vinnudegi Starfsmenn Reykjavíkurborgar náðu að sinna verk- efnum sínum til fulls á 35 tíma vinnuviku og veikindi drógust saman í tilraunaverkefni. Greiningaraðili hjá Credit Suisse telur að bóla ríki á húsnæðismarkaði í Kína. Fréttablaðið/aFP 240% nema skuldir deilt með vergri landsframleiðslu í Kína. ViðsKipti Enginn aukakostnaður fylgdi tilrauninni fyrir utan bakvakt á föstudagseftirmiðdögum hjá barnavernd. Fréttablaðið/DaníEl Gleraugnaverslunin þín MJÓDDIN S: 587 2123 FJÖRÐUR S: 555 4789 SELFOSS S:482 3949 2015 POSTER/DURATRAN IMAGE CHOICES Imagery expires December 31, 2015 UNITED STATES OR INTERNATIONAL VW IMAGE 5 Styles featured: Nolita *Vera Wang Salon- Available at select locatons. VW IMAGE 5 Styles featured: Inanna VW IMAGE 5 Styles featured: V367 VW IMAGE 1 Styles featured: Inanna VW IMAGE 2 Styles featured: V430 V 43 0 ST Y LE S H O W N . V ER A W A N G .C O M VW IMAGE 3 Styles featured: V368 O LY A S TY LE S H O W N . V ER A W A N G .C O M V 36 7 ST Y LE S H O W N . V ER A W A N G .C O M IN A N N A S TY LE S H O W N . V ER A W A N G .C O M N O LI TA S TY LE S H O W N . V ER A W A N G .C O M Úrval af sólgleraugum BÍLDSHÖFÐA AKUREYRI SELFOSSI ALLT FYRIR BOLTANN! 6.990 PUMA EVOSPEED 5.4 Það væri gaman ef málþingið í dag yrði til að kveikja í almenna vinnumarkaðnum til að skoða þetta. Sóley Tómasdóttir forseti borgar- stjórnar 35 tíma vinnuvika skilaði sömu niðurstöðum hjá Þjónustu- miðstöðinni. 1 2 . m a í 2 0 1 6 F I m m T U D a G U R10 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a ð I ð 1 2 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 6 8 -2 E A 8 1 9 6 8 -2 D 6 C 1 9 6 8 -2 C 3 0 1 9 6 8 -2 A F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.