Fréttablaðið - 12.05.2016, Qupperneq 40
Hið íslenska bókmennta-félag er 200 ára í ár og í tilefni af þeim merku tímamótum verður í dag opnuð afmælis-
sýning í Þjóðarbókhlöðu. Á sýning-
unni er greint frá helstu áföngum í
sögu félagsins og stillt fram mörgum
merkustu útgáfum þess en félagið
er í senn elsta félag og bókaforlag á
Íslandi.
Forseti félagsins um þessar mund-
ir er Jón Sigurðsson hagfræðingur og
hann segir að tilurð félagsins megi
að sumu leyti rekja til sambæri-
legra aðstæðna íslenskunnar og við
þekkjum úr samtímanum. „Í byrjun
nítjándu aldar, svona um aldamótin
1800, átti íslenskan mjög undir högg
að sækja, ekki síst í Reykjavík og á
öðrum þéttbýlisstöðum. Málið var
dönskuskotið og íslenskunni lítill
sómi sýndur við uppfræðslu barna
og ungmenna. Það var ekki til nein
eiginleg kennslubók í íslensku, hvort
sem var fyrir íslenska menn eða
erlenda.
Rasmus Christian Rask
Helsti hvatamaður að stofnun
félagsins var danskur málfræðingur,
Rasmus Christian Rask, sem kom
til Íslands sumarið 1813. Hann átti
íslenska vini og kunningja, bæði í
Kaupmannahöfn og hér heima, en
langaði að heyra hvernig íslensk
tunga sem hann hafði numið af
bókum og tekið ástfóstri við í æsku
hljómaði af vörum þjóðarinnar.
Hann ferðaðist víða um land næstu
tvö ár og dvaldist um tíma í Reykja-
vík. Á þessu ferðalagi sá hann glöggt
ástand íslenskunnar og honum virt-
ist tungan í bráðri hættu, ekki síst í
Reykjavík. Í bréfi til vinar síns Bjarna
Þorsteinssonar sem seinna varð amt-
maður á Íslandi þá spáði Rask því að
íslenskan dæi senn út ef ekki yrðu
rammar skorður reistar. Þetta var
eiginlega upphafið að því að hann
Við hugsum ekki í árum heldur öldum
Hið íslenska bókmenntafélag er 200 ára um þessar mundir og af því tilefni verður í
dag opnuð glæsileg sýning í Þjóðarbókhlöðunni um sögu þessa merka félags.
Jón Sigurðsson er forseti Hins íslenska bókmenntafélags sem er samofið menningarsögu þjóðarinnar. FRéttablaðið /VilHelm
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
beitti sér fyrir því ásamt íslenskum
vinum sínum að stofna félag í þeim
tilgangi að gefa út alls konar bækur
á íslenskri tungu. Þetta hefur verið
tilgangur félagsins frá upphafi, að
styðja og styrka íslenska tungu, bók-
vísi og menntun og heiður hinnar
íslensku þjóðar eins og það heitir svo
hátíðlega í frumskjölunum.
Þurfum að duga 200 ár til
Það er óhætt að segja að stofnun Hins
íslenska bókmenntafélags 1816 hafi
markað gagngera breytingu á við-
horfi manna til íslenskrar tungu og
bókmennta. Grundvallarstefna var
að endurreisa íslenskuna og að reisa
sjálfstæða menningu og menntir á
Íslandi við og það er ánægjulegt að
geta sagt frá því í dag hvað Íslend-
ingum hefur tekist vel upp við þetta
verkefni þessar tvær aldir sem eru
liðnar frá því að félagið var stofnað.
Það er víst að starf félagsins í 200 ár,
sem er lýst á sýningunni, skiptir hér
máli og sýningin veitir okkur innsýn
í það starf sem félagið hefur unnið
samfélagi sínu og þjóð. En auðvitað
steðja enn hættur að íslenskri tungu
vegna samfélags- og tæknibreytinga
og þess vegna þurfum við að reyna að
duga næstu hundrað eða tvö hund-
ruð ár til, svo framtíð íslenskunnar
sé tryggð.“
endurreisn tungu og mennta
Hið íslenska bókmenntafélag er
elsta forlag landsins og Jón segir að
útgáfustarf félagsins sé í dag þríþætt.
„Ég ætla að nefna fyrst tímarit bók-
menntafélagsins sem heitir Skírnir,
var stofnað 1827 og hefur komið út
óslitið frá þeim tíma og er reyndar
elsta tímarit af þessu tagi á Norður-
löndum og hugsanlega þó víðar
væri leitað. Þetta er rit sem sinnir
ekki síst íslenskum bókmenntum
og sögu en líka því sem er að gerast
í samfélaginu. Síðan gefum við út
mjög fjölbreytt úrval bóka á ýmsum
sviðum menntunar og vísinda en í
þeim tilgangi að félagið geti verið
brú á milli fræðasamfélagsins og
almennra lesenda. Félagið hefur líka
alla tíð verið stórtækt í útgáfu sagn-
fræðirita og sögulegra heimilda og
það er starfsemi sem var hafin til
vegs á forsetatíð Jóns Sigurðssonar,
hins eiginlega forseta sem var forseti
félagsins frá 1851 til 1879, þ.e.a.s. til
dauðadags. Þannig má segja að saga
félagsins á nítjándu öldinni sé sam-
ofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
sem byggðist mikið á því viðhorfi að
endurreisa íslenska tungu og bók-
menntir.
Útgáfa félagsins hefur svo orðið
stöðugt fjölbreyttari síðustu 50 árin,
sérstaklega í forsetatíð forvera míns,
Sigurðar Líndals, sem er um leið rit-
stjóri þess mikla verks Saga Íslands
sem komin er út i tíu bindum. Við
áformum að gefa út ellefta og loka-
bindið nú á afmælisárinu.
En árið 1970 var hafin útgáfa svo-
kallaðra Lærdómsrita bókmennta-
félagsins sem margir kannast nú við.
Mjög aðgengilegar og fallegar bækur
þar sem eru einkum birtar vand-
aðar þýðingar á framúrskarandi rit-
verkum hvaðanæva úr heiminum,
alveg frá fornöld til okkar daga, á
ýmsum sviðum lærdóms og vísinda.
Sérstaklega rit sem hægt er að telja
sem vörður í sögu mannsandans
svo maður tali nú hátíðlega. Til-
gangurinn er sá að kynna íslensk-
um lesendum það besta í alþjóð-
legri vísinda- og menntahugsun
en um leið auðga íslenska tungu á
milli háskólasamfélagsins og hins
almenna lesanda.
Samofin menningarsögunni
Það er ágætt að hafa í huga að tilgang-
ur okkar er ekki arður útgefandans
heldur að vinna í þágu upplýsingar
og menningar hjá almennum lesend-
um. Auðvitað hefur hlutverk félags-
ins breyst í áranna, eða mér liggur
við að segja aldanna rás, því margt
af því sem félagið gerði á nítjándu
öld hefur verið afhent opinberum
stofnunum og öðrum félögum. En ég
vil t.d. nefna að félagið á dögum Jóns
Sigurðssonar hóf útgáfu Stjórnar-
tíðinda sem var síðar afhent stjórn-
völdum. Þarna má segja að innan
þessa félags hafi verið farið að vinna
samkvæmt hugmyndinni um sjálf-
stætt þjóðríki löngu áður en hún
var sett á blað. Þess vegna eru þarna
rætur sjálfstæðisþróunar landsins og
fyrstu sporin í átt að íslensku lýðveldi
sem stigin voru á nítjándu öld.“
Jón nefnir að sýningin í Þjóðar-
bókhlöðunni sé myndarleg og vill
koma á framfæri þakklæti til þeirra
starfsmanna Landsbókasafns sem
hjálpuðu til við að setja hana upp.
„Á sýningunni eru munir ekki síst úr
Landsbókasafninu og handritasafni
þess sem það geymir, m.a. handrita-
safni Jóns Sigurðssonar, og auk þess
munir úr eigu félagsins og félaga í því
svo sem ýmsar merkar bækur. Þarna
má líka skoða tímalínu yfir það sem
hefur á daga drifið. Saga félagsins er
samofin menningarsögu þjóðarinn-
ar og þarna getur að líta nöfn þeirra
manna sem allir þekkja, eða ættu að
þekkja, úr menningarsögu síðustu
tveggja alda. Það hefur lengi verið
kjörorð þessa félags að hugsa ekki í
árum heldur öldum.“
Fa
rv
i.i
s
//
0
41
6
588 2300
Kringlunni
KJÓLL
5.495 kr.
SKÓR
12.995 kr.
1 2 . m a í 2 0 1 6 F I m m T U D a G U R28 m e n n I n G ∙ F R É T T a B L a ð I ð
menning
1
2
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
6
8
-1
1
0
8
1
9
6
8
-0
F
C
C
1
9
6
8
-0
E
9
0
1
9
6
8
-0
D
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K