Fréttablaðið - 12.05.2016, Page 50
Útivistartýpan
Laugavegurinn genginn
Útivistartýpan gæti nýtt sér allan frítímann sinn
og látið loks verða af því að ganga Laugaveginn, en
þetta er auðvitað ein besta gönguleið heimsins.
Sjósund
Eftir mikið stress og lítinn svefn
prófatarnarinnar er gott að
skella sér út í sjó og kæla sig
niður.
Snorkl í Silfru
Ef Nauthólsvíkin er ekki nógu mikil nátt-
úra fyrir Útivistartýpuna gæti verið gott að skella
sér í snorkl í Silfru, upplifun sem Útivistartýpan
getur sko ekki látið fram hjá sér fara.
Brimbretti
Fólk er víst farið að skella sér á brimbretti hér
ávið land og Útivistartýpan má nú ekki láta það
hjá líða, auk þess sem það sameinar sjó-
sund, snorkl og adrenalínfíknina.
Djammarinn
Rapp í Reykjavík
Um næstu helgi fer tón-
listarhátíðin Rapp í Reykjavík
fram á Húrra þar sem nokkrir
af vinsælustu tónlistarmönnum
landsins munu spila og Djammar-
inn getur varla látið sig vanta þar.
RVK Soundsystem
Sömu helgi verður RVK Sound-
system kvöld á Paloma á laugardeg-
inum og Djammarinn gæti auðveld-
lega læðst út af Húrra og skroppið
yfir á þetta sívinsæla fastakvöld.
Flöskuborð á B5
Djammarinn er kannski fátækur
námsmaður en hann þekkir aðra
djammara sem leggja í púkk fyrir
VIP-reynsluna á B5.
Logi Pedro á Prikinu
Djammarinn verður
að skella sér á Prikið
og upplifa Loga Pedro
á heimavelli sem er
nánast trúarleg upp-
lifun. Allir djamm-
arar landsins
verða þarna.
Lífið
Íþróttafríkið
Námskeið í ólympískum lyftingum
Lyftingar verða sífellt vinsælli eins og Íþrótta-
fríkið veit vel. Það væri því ekki vitlaust
að skella sér á námskeið í ólympískum
lyftingum til að færa áhugann á næsta
stig.
BJJ
Íþróttafríkið þarf að prófa allt og
brasilískt jiu jitsu er tiltölulega ný íþrótt í
hugum fólks hér á landi. Það væri tilvalið
að skella sér í Mjölni eftir prófatíðina og
láta nokkra tappa út.
Hjólreiðar
Það virðast allir vera í spandexgalla
á hjóli í dag og er það alveg kjörið
fyrir Íþróttafríkið. Nokkrir kílómetrar
eftir síðasta próf og málið er dautt.
Jóga
Það væri ekki vitlaust að skella
sér í jóga eftir prófin. Íþrótta-
fríkið elskar að taka á því en
eftir prófatörn getur verið
gott að taka einn eða
tvo jógatíma til að koma
hausnum niður á jörðina.
Innipúkinn
House of Cards loksins klárað
Innipúkinn mun grafa sig undir teppi
og horfa á House of Cards eða Better
Call Saul í nokkra sólarhringa sam-
fleytt.
Bað
Hvað er betra en
lavenderolía og
kertaljós í sjóðheitu
baðkerinu? Ekki
skemmir fyrir að
hafa einn kaldan
sér við hlið.
Lesa góða bók
Innipúkinn get-
ur loksins lesið
allar bækurnar
sem hann fékk
í jólagjöf, Tappi á
himninum eftir Evu
Rún Snorradóttur er til
dæmis góð byrjun.
Vafrað stefnulaust á
netinu
Loksins getur Inni-
púkinn aflétt
internetbanninu
sínu og
skrollað
niður
tíma-
línuna
klukku-
stund-
um
saman.
Nautnaseggurinn
Bláa lónið
Nautnaseggurinn er auðvitað búinn að panta pláss í lóninu og
verður þar í góðu yfirlæti beint eftir síðasta próf.
Nudd
Nautnaseggurinn er allur stífur og bólginn eftir prófstressið og þarf
að láta nudda það úr sér.
Sælkerabúð
Hvað er betra en að gera vel við sig með góðum mat? Frú
Lauga, Johansen Deli og fleiri eðalstaðir eru gjörsamlega til-
valdir fyrir Nautnasegginn.
Tanað á sundlaugarbakkanum
Það er algjörlega klassískt að nýta sér allar þessar frábæru sund-
laugar sem Reykjavík hefur upp á að bjóða og Nautnaseggurinn er
mættur um leið og sólin fer að skína.
eftir prófin
Eftir vikur af stressi og prófaljótu
finnst sumum kannski ótrúlegt að
það sé líf eftir prófin, en jú, það er
sannarlega hægt að taka gleði sína
á ný og njóta lífsins.
Guðrún Jóna
Stefánsdóttir
gudrunjona@frettabladid.is
Stefán þór
Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
1 2 . m a í 2 0 1 6 F I m m T U D a G U R38 L í F I ð ∙ F R É T T a B L a ð I ð
Lífið
1
2
-0
5
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
6
8
-2
E
A
8
1
9
6
8
-2
D
6
C
1
9
6
8
-2
C
3
0
1
9
6
8
-2
A
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K