Fréttablaðið - 12.05.2016, Side 56

Fréttablaðið - 12.05.2016, Side 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Komdu í Vodafone ONE og njóttu ávinnings í hverju skrefi Vodafone Við tengjum þig vodafone.is ONE Traveller passar þér vel í útlöndum Fyrir 690 kr. daggjald færðu ótakmarkaðar mínútur og SMS, 500 MB gagnamagn á dag og getur notað 4G reiki í fjölmörgum löndum víðsvegar um heiminn. Vertu áhyggjulaus í snjallsímanum á ferðalögum þínum erlendis. Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Allir hafa heyrt um rétttrún-aðarkirkjuna. Stundum kölluð PC löggan. PC stendur fyrir „political correct- ness“ eða pólitíska rétthugsun. Orðasamband sem ég þoli ekki. Ég tengi pólitík sjaldan við eitt- hvað jákvætt. Og rétthugsun er hræðilegt orð. Tilhugsunin um að hugsanir séu réttar eða rangar samkvæmt einhverju sem aðrir ákveða fyrir mann. Minnir mann á eitthvað úr skáldsögu eftir George Orwell. Ég vil ekki búa í heimi þar sem PC löggan kúgar mann til að gegna boðorðum rétttrúnaðar- kirkjunnar. Þessi ógn hefur lengi verið Grýla grínistans. Fallnar kempur eins og Lenny Bruce og núlifandi hetjur eins og Sarah Silverman glímdu og glíma enn við kvikindið. Alltaf verið að segja þeim hvað má djóka um og hvað ekki. Skapandi skop- istar neyðast stundum til að biðjast afsökunar á ímyndunarafli sínu. Að biðjast fyrirgefningar á gríni sínu hlýtur að vera ömurlegt. Því að grín er í eðli sínu grín og þess vegna bara grín. Óþolandi að þurfa að réttlæta slíkt. Og veistu hvað er mest óþolandi við helvítis rétthugsandi fólkið? Sú staðreynd að það hefur rétt fyrir sér. Ljóskubrandarar eru úreltir. Transgender er ekki aðhlátursefni. Það er ekkert fyndið við nauðg- anir. Og þjóðarmorð er ekkert til að flissa að. Er þá ekki um að gera að hætta þessu ósmekklega spaugi? Nei. Pólitísk rétthugsun er nefnilega nauðsynlegur hluti af vistkerfi grínsins. Við getum kvartað yfir skoðanakúgun ef við viljum. Við getum líka átt sólarhringslangar rökræður um málfrelsi á Facebook ef við nennum. En raunin er sú að við þurfum á rétttrúnaðarkirkj- unni að halda. Einhver verður að draga strikið í sandinn svo við vitum hvaða strik á að fara yfir. Rétthugsun Hugleiks Dagssonar Bakþankar 100% hamborgara- búðin þín EN GI N A UKAEFNI 100% UNGNAUTA HA KK 1 2 -0 5 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 6 7 -F 3 6 8 1 9 6 7 -F 2 2 C 1 9 6 7 -F 0 F 0 1 9 6 7 -E F B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 5 6 s _ 1 1 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.