Feykir - 11.03.1998, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MED RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Heimaaðilar búnir að ná
saman í virkjunarmálinu
Samningar við Rarik um Villinganesvirkjun undirritaðir í gær
Heitnaaðilar í Skagaflrði hafa
náð saman í virkjunarmálinu
og í gær var undirritaður
samningur milli þeirra og for-
svarsmanna Rarik um virkj-
un við Villinganes og stofnun
rekstrarfélags um virkjunina.
,Jú það er léttir að þessum
áfanga sé náð í málinu og
næsta skref verður að óska eft-
ir því við iðnaðarráðherra að
hann beiti sér fyrir því að lagt
verði fram stjórnarfrumvarp
sem heimili þessum aðilum að
virkja”, sagði Snorri Björn
Sigurðsson bæjarstjóri á
Sauðárkróki eftir að samning-
ar höfðu verið undirritaðir í
gær.
Sem kunnugt er var 6. grein
samningsdraganna að þvælast
fyrir heimamönnum, en hún
kvað á um að Rarik skuldbindi
sig til að kaupa orku virkjunar-
innar. Þessi klásúla var felld út úr
samningum. Þá komust heima-
aðilar að samkomulagi um að
stofna sameiginlegt hlutafélags
sem mun heita Norðlensk orka. I
því félagi verða félagið Skagfirsk
orka, sem stofnað var í síðustu
viku og KS, Lýtingsstaðahrepp-
ur og Akrahreppur em eignarað-
ilar að. Rafveita Sauðárkróks
verður beinn eignaraðili að
Norðlenskri orku og einnig er
reiknað með að fleiri aðilar óski
eftir eignaraðild, en Húnvetning-
ar og Siglfirðingar hafa sýnt mál-
inu áhuga. Samningurinn sem
undirritaður var í gær gerir ráð
fyrir því að Rarik verða 75%
eignaraðili að rekstrarfélaginu
um virkjunina og heimaaðilar
eigi 25% hlut.
En er eitthvað í þessum
samningi sem tryggir það að
Rafveita Sauðárkróks geti keypt
orku af virkjuninni? Snorri Bjöm
Sigurðsson bæjarstjóri sagði ekki
ástæðu fyrir menn að hafa
áhyggjur af því. Þrátt fyrir hag-
kvæmni virkjunarinnar yrði að
gera ráð fyrir því að hún myndi
selja rafmagn á markaðsverði
fyrstu árin meðan verið væri að
greiða niður virkjunarkostnað-
inn. Hins vegar mætti búast við
því að samkeppni skapaðist í raf-
orkusölu þegar fram í sækti.
,,Það sem mestu máli skiptir fyrst
í stað er að takist okkur að fá
virkjunarréttinn munu þau um-
svif sem þessu fylgir hafa mikla
þýðingu fyrir athafnalíf á svæð-
inu”, sagði Snorri Bjöm.
Elín fékk afgerandi kosningu
Valur Gunnarson hafnar öðru sætinu á framboðslistanum
Elín J. Líndal bóndi í Lækjarmóti hlaut afger-
andi stuðning í efsta sæti framboðslista Fram-
sóknarflokksins til sveitarstjómarkosninganna í
V.-Hún. í vor. Elín hlaut 198 tilnefningar frá
þeim 220 er kusu í prófkjörinu sem fram fór um
helgina, þar af 126 í efsta sæti listans. Valur
Gunnarsson kom næstur Elínu með alls 103 at-
kvæði. Þessi niðurstaða varð Val vonbrigði og að
hans mati ekki næg viðurkenning á því starfi sem
hann hefur unnið í hreppsinálum Hvammstanga
á þessu kjörtímabili. Hann hefur því ákveðið að
taka ekki sæti á framboðslistanum.
Af þessum sökum kom kjömefnd og fram-
bjóðendur saman til fundar í fyrrakvöld og þar
var komist að samkomulagi um að Eva Björk
Harðardóttir kennari á Hvammstanga sem var í
fimmta sæti í prófkjörinu, flytjist upp í 2. sætið.
Axel Rúnar Guðmundsson bóndi í Valdarási
varð í 3. sæti prófkjörsins og heldur því sæti.
Hann hlaut 101 atkvæði í 1.-3. sæti. í 4. sæti
framboðslistans verður Baldur Ulfar Haraldsson
framleiðslustjóri á Hvammstanga sem hlaut 98
atkvæði í 1.-4. sætið. 15. sæti framboðslistans
verður síðan Sigurlaug Arborg Ragnarsdótdr nú-
verandi hreppsnefndarmaður á Hvammstanga,
en hún lenti í 6. sæti í prófkjörinu. Að söng Helga
Olafssonar varaformanns Framsóknarfélaganna
í V.-Hún. hlaut Sigurlaug engu að síður nægan
stuðning í prófkjörinu til að taka 2. sæti listans,
en hún ákvað að láta það heldur eftir til Evu
Bjarkar.
Framsóknarmenn í V.-Hún. munu að ýmsu
leyti vera mjög ánægðir með niðurstöður próf-
kjörsins og sérstaklega þann mikla stuðning sem
Elín R. Líndal fékk, en hún er þeirra vonarpen-
ingur eins og þeir segja, varðandi það að 3. sæti
ffamboðslista flokksins í kjördæminu fyrir næstu
þingkosningar falli henni í hlut.
Nú er skíðasnjórinn loksins kominn og þrátt fyrir talsvert frost
sl. laugardag voru margir á skíðum. Ljósmyndari Feykis rakst
t.d. á þau Igibjörgu Guðjónsdóttur og Björn Sigurðsson á
gönguskíðum á Borgarsandinum.
Ráðið í starf ferðamála-
og markaðsfulltrúa
Nýlega var ráðið í starf ferða-
mála- og markaðsfulltrúa
Austur-Húnavatnssýslu. Um-
sækjendur um starfið voru
níu talsins og fyrir valinu varð
Omar Banine ungur Kópa-
vogsbúi landfræðingur að
Ómar Banine.
mennt Ómar hefur ennig ný-
lokið mastersnámi í umhverf-
isfræðum þar sem viðfangs-
efni hans í lokaritgerð var
einmitt um sjálfbæra ferða-
mennsku.
Ómar er nýtekinn til starfa í
bækistöðvum Ferðamálafélags
Austur-Húnvetninga á skrifstof-
unni í Brautarhvammi. í samtali
við Feyki sagðist hann hlakka til
að takast á við þetta viðfangsefni
og það legðist vel í sig. „Það er
ýmislegt í deiglunni og greinilegt
að hér er mikið starf framundan.
Heimaaðilar virðast líka vera
mjög áhugasamir og það verður
gaman að starfa í samvinnu við
þá að þessum málum”, sagði
Ómar.
<T5 —KTcH^fH ek}3—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 o
vCV5 • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
O • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
jm
bílaverkstæði
simi: 453 5141
Sæmundargala Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
# Bílaviðgerðir & Hjólbarðaviðgerðir
t fíéttingar jfáprautun