Feykir - 11.03.1998, Blaðsíða 2
2FEYKIR 10/1998
Stuðull
Tölvubúnaður
Borgarmýri 1,
sími 453 6676
Viðgerðarþjónusta
á sjónvörpum,
myndbandstækjum,
tölviim, prenturum
ogöðrum
rafeindatækjum.
PlayStation
Verð kr. 16.900
Úrval af nýjum
leikjum
Ingibjörg efst á
Skagaijarðarlistamjm
Ingibjörg Hafstað bóndi og
kennari í Vík hlaut afgerandi
stuðning í efsta sæti Skaga-
Nokia 3110
Frábær GSM sími
Þyngd: 187 gr.
Rafhlaða: 95 klst. bið,
2,45 klst. tal.
Kr. 19.900
Heimismenn héldu sitt fyrsta
Heimiskvöld á þessum vetri í
Miðgarði sl. laugardags-
kvöld. Að þessu sinni voru
veðurguðirnir þeim hliðhollir
en komið hefur fyrir að ekki
hefur mátt auglýsa Heimis-
kvöld í Miðgarði að þá hefur
hann brostið á með snar-
brjálaðri norðan hríð. Að
venju var ágæt aðsókn á
Heimiskvöldið, líklega um
300 manns, og voru undir-
tektir gesta góðar, enda dag-
skráin fjölbreytt og skemmti-
leg.
Heimiskvöldið hófst með
söng kórsins. Söngskráin er
skemmtileg í vetur, nokkur ný
lög, og undirtektimar láta ekki á
sér standa. Ahorfendur báðu um
endurtekningu margra laga og
urðu kórmenn þar við flestum
fjarðarlistans. Ingibjörg
hlaut tilnefningu frá rúmlega
80% þeirra 250 sem þátt
tóku í prókjörinu sem lauk
um helgina, en vegna veðurs
um næstsíðustu helgi þurfti
að framlengja kosningu á
Sauðárkróki og í Fljótum.
Þeir sem gáfu kost á sér í
prófkjörinu voru 29 talsins. Þeir
sem komu næstir Ingibjörgu
fengu innan við 50% tilnefn-
inga. Þar sem stjóm Skagafjarð-
arlistans ákvað að raðað verði
upp á listann með tilliti til bú-
setu og kyns, var jafnframt
ákveðið að birta ekki röð þeirra
ffambjóðenda sem næstir komu
nema eftir stafrófsröð, en þeir
em 12 auk Ingibjargar sem
fengu áberandi flestar tilnefn-
ingar: Anna Kristín Gunnars-
dóttir Sauðárkróki, Anna Mar-
grét Stefánsdóttir Hátúni, Ar-
sæll Guðmundsson Sauðár-
króki, Gréta Sjöfn Guðmunds-
dóttir Varmahlíð, Hjalti Þórðar-
son Marbæli, Jóhann Svavars-
son Sauðárkróki, Pétur Valdi-
marsson Sauðárkróki, Snorri
Styrkársson Sauðárkróki, Stef-
anía H. Leifsdóttir Brúnastöð-
um, Úlfar Sveinsson S-Ingveld-
arstöðum og Þórarinn Leifsson
Keldudal.
Kjósendum í prófkjörinu
gafst kostur á að tilnefna sjö
nöfn á framboðslistann, þar af
máttu vera þrjú nöfn utan þeirra
29 sem gáfu kost á sér í próf-
kjörið. Vegna þessa ákvæðis
vom alls 40 manns tilnefndir á
framboðslista Skagafjarðarlist-
ans, en endanlega mun hann
skipaður 22. Stefnt er að því að
ganga frá framboðslistanum á
félagsfundi um næstu helgi.
Sigfús Pétursson syngur lagið glænýja.
Heimismenn þurftu að endurtaka mörg laga sinna.
Söngur, harmonikkuleikur og
gamansögur á Heimiskvöldi
óskum. Eitt lag flutti Heimir
þarna sem Þorvaldur Oskarsson
kynnir kvað öruggt að áheyr-
endur hefðu aldrei heyrt fyrr.
Heitir það „Gamla kirkjan” og
er erlent við texta Bjama Stefáns
Konráðssonar, útsetningu lags
annaðist Thomas Higgerson.
Sigfús Pétursson syngur ein-
söng í laginu og var það eitt
þeirra laga sem beðið var um
endurflutning á.
Kynnir á skemmtuninni var
Jón Hallur Ingólfsson. Tveir
ungir harmonikkuleikarar léku á
nikkur sínar, Þorvaldur Guð-
jónsson og Jón Þ. Reynisson, og
em þar mjög efnilegir menn á
ferð. Seinna um kvöldið kornu
heldur vanari menn með nikkur,
bræðumir Stefán og Jón Gísla-
synir og Blönduhlíðarkvartett-
inn söng nokkur lög.
En fyrirferðarmest í
skemmtidagskránni var ffásögn
Haraldar Bessasonar prófessors
frá Kýrholti. Haraldur sagði
skemmtilega frá eins og fyrri
daginn. Það var bemskuminn-
ing úr Viðvfkursveitinni og sem
fyrr komu væringar ffamsóknar-
og sjálfstæðismanna þar við
sögu. Haraldi var tíðrætt um at-
burði er gerðust rigningarsumar-
ið í upphafi fímmta áratugarins,
hvort það voru eitt eða tvö,eða
jafnvel þrjú rigningasumar, var
hann ekki viss um í minning-
unni. En það var margt sem
gerðist það „sumar” eða í kjölfar
þess. Sérstaklega var ófullbúið
vegakerftð um Viðvíkursveitina
að gera vegfarendum skráveifu
og lentu nokkrir bílar upp á end-
ann þar sem vegurinn endaði
við lækjarsprænuna við bæinn
Læk sem var skammt fyrir
sunnan Kýrholtsbæinn. Og
Bessi í Kýrholti var víst oft bú-
inn að horfa íbyggnum svip á
danska barómetið þetta sumar,
sem féll sífellt. Kvað Haraldur
svipinn á Magnúsi Jónssyni
ffænda sínum ffá Steinsstöðum,
þar sem hann rýnir í þessi von-
lausu veðurkort, minna sig oft á
svipinn á föður sínum þar sem
hann rýndi á þetta vonlausa
danska barómet rigningarsum-
arið mikla, en það hélt áffam að
falla allt sumarið.
Jón Þorsteinn Reynisson
ungur harmonikkusnillingur
þenur nikkuna.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
f'eykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Asmundsson.
Fréttaritari: Öm Þórarinsson.
Blaðstjóm: Jón F. Hjartarson. Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hermannsson, Sigutður
Agústsson og Stefán Amason.
Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svait hf.
Feykir á aðild að Saintökum bæja- og héraðs-
fréttablaða.