Feykir - 11.03.1998, Síða 3
10/1998 FEYKIR 3
„Vona að meiri víðsýni verði
innan nýrrar sveitarstjórnar“
segir Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri
„Ég er að vona að niðurstaða sé að nást í þessu máli
sem allir aðilar geti sætt sig við. Hins vegar er það á-
hyggjuefni hvað samskipti kaupfélagsins og bæjaryfir-
valda á Sauðárkróki hafa verið stirð í hinum ýmsu mál-
um. Við vonuðumst eftir að ná eins góðri samvinnu við
bæjaryfirvöld um virkjunarmálið og við áttum við
mjólkurframleiðendur og loðdýrabændur í héraðinu
um þeirra hagsmunamál, en annað varð uppi á teningn-
um. Ég er að vona að innan nýrrar sveitarstjómar í sam-
einuðu sveitarfélagi muni ríkja meiri víðsýni, en verið
hefur innan bæjarstjómar Sauðárkróks”, sagði Þórólf-
ur Gíslason kaupfélagsstjóri í samtali við Feyki vegna
stöðunnar í virkjunarmálinu, en eins og fram kom í síð-
asta Feyki hafnaði bæjarstjóm Sauðárkróks aðild að
Skagfírskri orku, eignarhaldsfélagi sem heimaaðilar
ætla að stofna vegna virkjunar við Villinganes og
reyndar var stofnfundur þess félags haldinn um miðja
síðustu viku.
- Staðan í virkjunarmálinu
hefur vakið upp þá spurningu
hvort ekki sé meira en lítið að í
samskiptum forráðamanna
Kaupfélags Skagfirðinga og
bæjaryfirvalda á Sauðárkróki?
„Það er mjög eðlilegt að
þessi spuming vakni og ég tek
undir hana. Við hjá kaupfélag-
inu höfum áhyggjur af því hvað
gengur illa að ná árangri í fram-
faramálum. Forsvarsmönnum
atvinnulífsins og bæjaryfirvöld-
um heí'ur gengið illa að ná
höndum saman um framfara-
mál í héraði. Eg vil minna á að
fyrir ári héldu bæjaryfirvöld
uppi mikilli og neikvæðri um-
ræðu um stærsta sjávarútvegs-
fyrirtækið hér í Skagafirði, sem
varð bæði fyrirtækinu og bæn-
um til tjóns. Nú hefur það sýnt
sig að fyrirtækið gengur miklu
betur en áður, en þá virðist
Hestamenn í Húnaþingi álvkta um pestavarnir
Telja tímabundna
vörslu við vegi
koma til greina
Almennur fundur í samtök-
um hrossabænda í A.-Hún.
haldinn sl. sunnudag sam-
þykkti harðorðar ályktanir til
Félags hrossabænda vegna
lausataka sem virðast hafa við-
gengist í vömum gegn hinum
óþekkta sjúkdómi sem nú heij-
ar á hross á suðvesturlandi.
Krefst fúndurinn þess af Félagi
hrossabænda að það beiti sér
fyrir raunhæfum aðgerðum til
þess að hefta frekari útbreiðslu
veikinnar og bendir á hvort
ekki komi til greina að setja
upp tímabundna vörslu á lykil-
vegum út um landið.
Þá krefst fundurinn þess að
Félag hrossabænda beiti sér
fyrir því að bætt verði úr ófull-
nægjandi eftirliti með fólki og
farangri sem kemur til landsins
og að sóttvamir verði í full-
komnu lagi héðan í frá. Er þar
in.a. átt við að auðvelt sé fyrir
ferðalanga að fullnægja fyllstu
kröfum í þessu efni um leið og
þeir koma inn í landið. gg/mv.
Góðir áskrifendur!
Þeir sem enn eiga ógreidda innheimtuseðla
vegna áskriitargjalda eat vinsamlegast beðnir
að greiða hið allra fyrsta. Feykir.
áhugi bæjarfulltrúa minni, sem
birtist í því að einungis einn
bæjarfulltrúi mætti á aðalfund-
inn á dögunum. Það er svolítið
sérkennilegt að áhuginn fyrir
málefnum fyrirtækisins virðist
minnka eftir að reksturinn fór
að ganga betur”.
Næst virkunarrétturinn?
- En segjum svo að viðun-
andi lausn sé að nást í virkjun-
armálinu. Þá er eftir að koma
málinu í gegn um löggjafann
og ná virkjunarréttinum sem er
hjá Landsvirkjun í dag. Hverja
telur þú möguleika á að það
takist?
„Ég hef fulla trú á að það
muni takast, þó svo að við höf-
um nú þegar tapað mjög dýr-
mætum tíma. Það eru nú að
verða komnir tveir mánuðir frá
því samningsdrögin við Rarik
voru undirrituð á Akureyri og
mikill tími hefur farið í súginn
út af þessu karpi. Það er okkar
von að það dragist ekki fram
eftir næsta vetri að koma þessu
í gegnum þingið, því alltaf er sú
hætta að mál tefjist í meðförum
þings á kosningaári”.
-Svo við víkjum aftur að
J^essum deilum sem verið hafa
í virkjunarmálinu, þá virðist
sem togstreita hafi verið í upp-
hafi milli foiráðamanna Sauð-
árkróksbæjar og Kaupfélags
Skagfirðinga. Og það gjaman
verið nefnt að þú sért höfuð-
paurinn í því hvað kaupfélagið
hefur beitt sér svo mjög í þessu
máli?
, Já mér finnst ekkert snið-
ugt hjá mönnum að persónu-
gera málið á þennan hátt og
Þórólfur Gíslason framkvæmdastjóri Kaupfélags Skag-
flrðinga.
maður spyr sig líka að því hvort
það sé ekki bara betra fyrir
kaupfélagið að einskoraða sig
við sinn eigin rekstur og vera
ekkert að vasast í að ýta fram-
faramálum áleiðis, eins og við
teljum að virkjunarmálið sé.
Við höfum verið sveitahrepp-
unum mjög samstíga í virkjun-
armálinu, bæði Akrahreppi og
Lýtingsstaðahreppi. Milli Jiess-
ara aðila hefur ríkt gagnkvæmt
traust og ég hef ekkert haft á
móti því að Rafveita Sauðár-
króks fengi að kaupa orku að
virkjuninni, það er bara ekki
mitt að ákveða það. Ástæðan
fyrir því að við höfum áhuga á
því að taka þátt í þessari virkjun
er fyrst og fremst sú að við sjá-
um þama möguleika á lækkun
orkukostnaðar bæði fyrir okkur,
viðskiptamenn okkar og alla
landsbyggðina”.
- En nú hafið þið átt viðræð-
ur við Rarik um að Rafmagns-
verkstæði KS komi inn í þjón-
ustuþátt fyrirtækisins í Skaga-
firði, spilar það eitthvað þama
inn í?
„Starfsemi og þjónusta
Rarik á landsbyggðinni hefur
verið að breytast, eins og hjá
fleiri ríkisfýrirtækjum. Við vit-
um að það hefur verið í athug-
un að minnka starfsemina hér í
Skagafirði, fækka starfsmönn-
um og flytja þjónustuna fyrir
kjördæmið í auknum mæli til
Blönduóss. Við leituðum eftir
viðræðum við Rarik um mögu-
leika á því að fýrirtæki í Skaga-
firði önnuðust þessi verkefni og
vorum þar að sýna þá viðleitni
að halda störfum hér á svæð-
inu. Það em reyndar eitt ár síð-
an við ræddum síðast við
Rarikmenn um þessi mál, en
viðbrögð annarra aðila hér á
svæðinu vom hins vegar
þannig, að það var eins og það
bæri betra að þessi störf fæm á
Blönduós en að við væmm að
leita eftir þessu samstarfi”,
sagði Þórólfiar Gíslason að end-
ingu.
Sauðárkróksbær auglýsir
Byggingarlóðir við Gilstún
lausar til umsóknar
Hér með eru lóðirnar númer 22,24,26, 28, 30 og 32 við
Gilstún á Sauðárkróki auglýstar lausar til umsóknar.
Lóðirnar eru við suðurhluta Gilstúns og eru jarðvegsskipti
áætluð í þeim hluta götunnar snemma í vor ef áhugi á
lóðunum er fyrir hendi.
Umræddar lóðir eru allar vestan götunnar en samþykkt hefur
verið að byggja ekki austan götunnar vegna óheppilegra
jarðlaga.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu byggingarfulltrúa.
Byggingarfulltrúi.