Feykir - 11.03.1998, Blaðsíða 5
10/1998 FEYKIR 5
Fréttabréf frá Sambandi skaizfirskra kvenna
Vimiuvakan á Löngumýri 22. mars
Stjórn SSK: Sigrún Aadnegard Bergsstöðum formaður (fyrir
framan), Ingibjörg Kolka Hólum varaformaður, Svanhildur
Pétursdóttir Túnguhálsi ritari og Helga Haraldsdóttir Sauðár-
króki gjaldkeri.
Miklar breytingar hafa átt sér
stað í íslensku samfélagi ffá ár-
inu 1869 þegar fyrsta kvenfélag
landsins var stofnað í Rípur-
hreppi. Störf kvenna í kvenfé-
lögum hafa verið störf braut-
ryðjenda í mörgum framfara-
málum, sem ríki og sveitarfélög
tóku síðan við.
I Sambandi skagfirskra
kvenna eiu 12 félög með 288
félagskonum. Skal nú getið þess
helsta í starfmu.
Á ári aldraðra 1982 var hald-
in vinnuvaka hjá öllum kvenfé-
lagasamböndum landsins.
Ágóðinn rann allur til aldraðra.
SSK er eina sambandið sem
heldur enn vinnuvöku og ágóði
af þeim fer allur til líknar- og
menningarmála.
Á formannafundi 8. sept. sl.
var ákveðið að ágóði næstu
vinnuvöku renni til björgunar-
sveitanna í Skagafirði. Konur
hafa lagt sig mjög fram um að
gera fallega og nytsama muni,
sem seldir em ásamt veislukaffi.
Björgunarsveitimar vinna
ómetanlegt starf í þágu allra
íbúa ijarðarins og gaman væri
að sem flestir legðu okkur lið í
þessari ijáröflun og kæmu að
Löngumýri 22. mars nk.
I vinnuvökunefnd em nú:
Hrefna Gunnsteinsdóttir Ketu,
Guðný Friðriksdóttir Hjalla-
landi, Guðlaug Amgrímsdóttir
Litlu-Gröf, Margrét J. Gunnars-
dóttir Sauðárkróki og Pálína
Skaiphéðinsdóttir Gili.
Árlega veitir SSK viður-
kenningu fyrir góðan árangur í
handmennt og heimilisfræðum í
10. bekk jimnnskólanna í
Skagafirði. A síðasta ári fengu
þrjár stúlkur viðurkenningu:
Fanney Björk Frostadóttir
Sauðárkróki fyrir handmennt,
Sæbjörg Freyja Gísladóttir
Varmahlíð fyrir handmennt og
heimilisfræði og Inga Dögg
Jónsdóttir Hofsósi fyrir heimil-
isfræði.
Söfnun fór fram meðal allra
kvenfélagskvenna landsins til
kaupa á krabbameinsgreiningar-
tæki til Landsspítalans.
Kvenfélagskonur gróður-
settu 800 trjáplöntur að Flugu-
mýri í júm sl.
Árlega em famar vinsælar
orlofsferðir sem um 40 konur
taka þátt í. 22. apríl í vor er fyr-
irhuguð utanlandsferð fyrir
skagfirskar húsmæður. Ekki er
vafi á að konur fagna því tæki-
færi þar sem fyrri ferðir hafa
tekist fádæma vel.
Á vegum SSK em kvöld-
vökur mánaðalega á Dvalar-
heimili aldraða með veitingum,
söng og dansi.
Haustvaka, árlegur
skemmtifundur SSK, er haldinn
til skiptis austan og vestan
Vatna. Er þar margt til gamans
gert. Ljóst er að störfin okkar
em bæði ijölbreytt og skemmti-
leg og þörfin fyrir hjálpfúsar
hendur er mikil.
Með félagskveðju.
Helena Magnúsdóttir.
Margrét Gunnarsdóttir.
Mikið sungið heima
,Já, ég byrjaði snemma að
syngja. Það vill svo til að báðir
foreldrar mínir em söngelskir.
Mamma syngur nefnilega líka og
fyrstu minningar mínar úr
bemsku em þær að hún söng fyr-
ir mig þegar ég var að sofna. Það
var mikið sungið heima og
einnig hlustað á tónlist, sérstak-
lega klassíska tónlist. - Hvenær
kom ég fyrst fram? Það var með
Karlakór Bólstaðahlíðarhrepps.
Pabbi söng með kómum og ég
söng einsöng með þeim 14 ára
gömul. Eins söng ég á árshátíð
Húnavallaskóla. Mig minnir að
ég hafi sungið Streets of London
og fleiri lög í þeim dúr. Annars
var ég sísyngjandi sem bam og
unglingur og krókurinn beygðist
snemma.”
Er þetta samofið? Tónlisdn
og fjölskyldusamheldnin?
„Eg held það tengist dálítið
fast saman. Ég er a.m.k. ofboðs-
lega mikil fjölskyldumanneskja í
mér. Samheldni Konnaranna er
svo sterk. Og ég held að það sé af
hinu góða. Þótt fjölskyldan
stækki þá þynnist hún lítið út.
Einkennin em svo sterk að þau
halda sér á milli kynslóða. Ég
heyri alla vega oft talað um
hversu lík við séum”.
Fyrir nokkm var rifjað upp í
ritstjómarspjalli Vikudags að
Konnaramir hefðu stansað við
tréð sem eitt sinn stóð á Ráðhús-
torgi á leið úr Sjallanum og tek-
ið lagið og tæpast hefði fyrr né
síðar verið sungið jafn kröftug-
lega í miðbæ Akureyrar um nótt.
Þá var einnig lýst eftir því hvort
næsta kynslóð þeirra myndi ein-
hvem tíma syngja undir tijánum
sem Ámi Steinar garðyrkjustjóri
hefur látið gróðursetja í kanti
steintorgsins.
Jóna Fanney hlustar á þessa
sögu og svarar að bragði. „Þessi
kynslóð Konnaranna er tíl og
hún syngur líka. Við emm fimm
vinkonur og bræðradætur sem
hittumst stundum. Kannski við
endurtökum afrek feðranna ein-
hvem tíma ef trén fá að standa”.
- Og þá er komið að sam-
viskuspumingunni og enn kemur
Jóna Éanney á óvart eins og
sannur Konnari. Ætlar þú að ná
þér í söngvara eða ertu kannski
búinn að því. Hún hlær áður en
hún svarar.
„Nei ég náði mér í sjómann”.
- Ertu að gera grin? „Nei alls
ekki. Kærastinn minn er sjómað-
ur. Það er líka í blóðinu. Það er
sjómannsblóðið í okkur Konnur-
um. Pabbi var á sjó áður en hann
kynntist mömmu og settist að í
sveitinni. Bræður hans fóm líka
til sjós. Þegar kærastinn minn
kom norður um daginn og við
skmppum í ökuferð þá keyrði
hann niður á bryggju. Hann fór
sömu bryggjurúntana og pabbi
fór með okkur krakkana þegar
við vomm lítil. Mér fannst ég
upplifa þær ökuferðir á nýjan
leik. Svona leitar lífið alltaf upp-
mna síns.”
Þannig blandast sveitin, sjór-
inn og söngurinn í huga þessarar
ungu konu sem eftir sólarhring
stígur á fjalimar á gamla Sam-
komuhúsinu. Þar kemur hún
fram í hugljúfri ástarsögu þar
sem rómantíkin ræður ríkjum er
ekki svo? Það er svo langt síðan
ég sá Sound of Music.
„Það er rétt. Verkið er mjög
rómantískt en þessi rómantík á
sér bakgmnn í heimsstyijöldinni
síðari. Ognir stríðsins em bak-
gmnnur hinnar rómantísku sögú:
Þetta er því margslungnara verk
en í fyrstu virðist. Tónlistin er
auðvitað stórt atriði í sýningunni
og það sem ber hana uppi, en í
verkinu er einnig saga. Við skul-
um láta leikhúsgestum eftir að
finna þá sögu innan um tónaflóð-
ið. Þú þekkir mig þegar ég
brosi.” (ÞWikudagur)
Fimm frænkur og Konnadætur. Frá vinstri: Barbara Kristjánsdóttir, Jóna Fanney
Svavarsdóttir, Aðalheiður Konráðsdóttir, Harpa Hauksdóttir og Hrönn Jóhannsdóttir.
Karlakórinn Heimir í Skagafirði
Tónleikar í Langholtskirkju
laugardaginn 14. mars kl. 16,30.
Söngstjóri Stefán R. Gíslason.
Undirleikarar: Thomas Higgerson og Jón St. Gíslason.
Einsöng, tvísöng og þrísöng með kórnum syngja Einar Halldórsson
og Álftagerðisbræður: Gísli, Óskar, Pétur og Sigfús Péturssynir.
Fjölbreytt og skemmtileg söngskrá.
Forsala aðgöngumiða hjá Pennanum og Eymundsson.
Stjórnin.