Feykir - 11.03.1998, Síða 6
6 FEYKIR 10/1998
Hagyrðingaþáttur 248
Heilir og sælir lesendur góðir.
Fyrstu vísumar að þessu sinni eru
eftir snillinginn Jón S. Bergmann. Þrátt
fyrir að mér sé ljóst að ég hef birt
sumar af þeim áður í þessum þáttum
skal stuðst við að aldrei er góð vísa of
oft kveðin.
Ég er fremur fótasár
foma þrekið brestur.
Ég hefsamfleytt sautján ár
sofnað nœtur gestur.
Mér er oft um hjartað heitt
heldur meira en skyldi.
Þess vegna er ég ekki neitt
afþví sem ég vildi.
Hirti ég hvorki um stund né stað
studdur fárra griðum,
svona fór ég aftan að
öllum mannasiðum.
Alla mundi undra að sjá
eftir skilyrðonum,
hvaða fjölda að ég á
enn afbjörtum vonum.
Jón Kr. Lámsson skipstjóri frá
Amarbæli mun einhverju sinni hafa ort
svo.
Gekk mér illa að ganga í takt
gein oft við mér svaðið.
Lífsins hörðu hunda vakt
hefég lengi staðið.
Alltaf er gaman að rifja upp
kveðskap eftir Leif Haraldsson frá
Háeyri á Eyrarbakka. Einhvem tíma
heyrði ég sagt frá því að Daníel
Ágústínusson hefði ætlað sér að safna
saman kveðskap Leifs og gefa út í bók.
Kannski hefur honum ekki enst aldur
til að vinna það verk en gaman þætti
mér að heyra frá lesendum ef þeir
vissu um þau málalok. Einhveiju sinni
mun Leifur hafa komist svo að orði.
Ég ginnast lœt í viðsjáls vana hlekki
það vissulega mætti þannig orðast.
Hið góða sem ég vil ég geri ekki
en geri það sem helst ég skyldi forðast.
Alltaf er sama andagiftin hjá
skáldinu undir Borginni. Þrátt fyrir að
nú þegar þessi þáttur er skrifaður, sé
einhver mesti kuldi sem mælst hefur
um árabil og aflýsa hafí þurft vígslu
hins glæsilega íþróttahúss þeirra
Skagstrendinga, orðar Rúnar stöðuna á
eftirfarandi hátt.
Hér er éljasúpa svört
sviðið kalt ég þekki.
Virðist bœta í vindinn ört
veðrið skánar ekki.
Ekki mun Rúnari hafa geðjast of vel
af spurðum tíðindum eftir næstu vísu
hans að dæma.
Síst mun vekja þjóðarþokka
efþað er helst á döflnni,
að gera dauða drullusokka
að dýrlingum í gröfinni.
Tvær vísur í viðbót frá Rúnari.
Þegar saman leggja lag
lyndisfrakkur maður
og konafús í blíðubrag
byrjar kjaflaþvaður.
Þá er venja í veröld hér
vissan dóm aðfella.
Karlmaðurinn krœfur er
en konan talin mella.
Það mun hafa verið sumarið 1982
sem Aðalsteinn Olafsson frá Melgerði
orti svo um umdeildar framkvæmdir á
Eiðsvellinum svokallaða.
Ömurlegt þykir okkur að sjá
afglapa setja mark sitt á völlinn.
Neikvœð erstefiian nautunum hjá.
Niður með dalina, upp með fjöllin.
Önnur vísa sem mun vera ort um
svipað leyti kemur hér eftir Aðalstein
og þarfnast hún ekki skýringa við.
Þungan róður þreyta má
þegar minnkar ætið.
Gunnar situr glóðum á
Geiri þráirsœtið.
Einhveiju sinni birtist í
Morgunblaðinu eftirfarandi fyrirsögn:
Ólafur sakaður um undanslátt, Einar
um svik. Benedikt Axelsson ias þessi
tíðindi og fannst honum sjálfsagt að
klára vísuna.
Stjómin hefur alltafátt
erfitt um vik.
Ólafur sakaður um undanslátt,
Einar um svik.
í annan stað las Benedikt
eftirfarandi fyrirsögn í blaði sínu:
Ekkert kmfið í vetur vegna skorts á
húsnæði.
/ lœknadeild engin önd er hress,
þótt ýmsar drepsóttir geysi.
Þeir kryfja ekki í vetur vegna þess
þá vantar húsnæðisleysi.
Næsta yrkisefni Benedikts var
einnig fengið eftir að hann las
svofellda fyrirsögn í dagblaði: Bflstjóri
með grunsamlega ávísun settur í
gæsluverðhald.
Mérfinnst lögreglan okkar aldrei treg
ekki vil ég hana á nokkum hátt lasta.
En úrþví að ávísunin var grunsamleg
afhverju tóku þeir hana /)á ekkifasta.
Ef þungt er í sinni getur verið til
bötunar andanum að leita sér skjóls
utan dyra. Á því mun undirritaður hafa
áttað sig er lokavísan að þessu sinni
varð tU.
Þó um sinn hérfinnist fátt
fólk sem yljargeði.
Eykur sól og sunnan átt
sáilar minnar gleði.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Sigur og tap á lokasprett
inum í körfuboltanum
IJMFT og USAH standa
vel í stúlknafokknum
Eftir góðan sigur á Vals-
mönnum sl. föstudagskvöld-
ið áttu Tindastóimenn af-
arslakan fyrri hálfleik gegn
Grindvíkingum suður með
sjó á sunnudeginum. Þrátt
fyrir bærilegan leik í seinni
hálfleiknum túkst þeim ekki
að rétta sinn hlut og töpuðu
leiknum. Staða Tindastóls er
engu að síður ágæt fyrir síð-
ustu umferðina í úrvaisdeild-
inni sem fram fer annað
kvöld, fimmtudagskviild. Þá
koma nágrannamir í Þór frá
Akureyri í heimsókn. Tinda-
stóll er nú í 7. sæti með 24 stig
og á góða möguleika á 5.-6.
sæti deildarinnar. Líklegast
lenda þeir í úrslitunum á
móti annaðhvort Keflavík
eða Njarðvík, sem er sjálf-
sagt ekki það allra besta sem
þeir gátu hugsað sér.
Það var ekki hægt að segja
að áhuginn og einbeitnin skini
úr augum leikmanna þegar
Tindastóll og Valsmenn áttust
við í Síkinu á Króknum á föstu-
dagskvöldið. Strax í upphafi var
sýnt að Tindastólsmenn væm
mun sterkari, en mikill doði var
samt yfir leik liðsins og líklega
var það sem bjargaði þessum
leik frá því að verða algjörlega
bragðlaus, að Valsmenn komust
yfir um miðjan fyrri hálfleikinn.
Við það tóku heimamenn við
sér og það lifnaði yfir leiknum,
þannig að hann varð hin þokka-
legasta skemmtun. Engu að síð-
ur var um einstefnu að ræða hjá
Tindastóli allt til leiksloka og
lokatölur urðu 91:75, eftir að
staðan í leikhléi var 44:30 fyrir
Tindastól.
Sverrir Þór Sverrisson var
bestur í Tindastólsliðinu og þeir
Jose Marie og Amar léku
einnig vel, einnig átti Skarphéð-
inn ágætis innkomu, en aðrir
vom lítt áberandi að þessu
sinni. Hjá Valsmönnum vakti
athygli skemmtilegur bakvörð-
ur Guðmundur Bjömsson, sí-
vinnandi og besti maður liðsins
Stig Tindastóls: Sverrir Þór
Sverrisson 22, Amar Kárason
13, Jose Marie Narang 13, Hin-
rik Gunnarsson 13, Torrey John
11, Skarphéðinn Ingason 6,
Ómar Sigmarsson 6, Láms
Dagur Pálsson 3, Óli Barðdal 3
og Isak Einarsson 1. Stigahæst-
ur hjá Val var Warren Pebbles
með 30 stig, Guðmundur
Bjömsson skoraði 17 og Berg-
urEmilsson 16.
Hittnin var afleit hjá Tinda-
stólsmönnum í leiknum gegn
Grindavík og reyndar skoruðu
bakverðir liðsins lítið í leiknum.
Staðan í leikhléi var 32:23 fyrir
Grindavík og lokatölur 77:64.
Hinrik Gunnarsson var einna
bestur í Tindastólsliðinu og þeir
Torrey og Jose áttu þokkalega
spretti. Torrey skoraði 24 stig,
Jose Marie 21 og Hinrik 10.
Tveir leikir vom í undanúr-
slitum Bikarkeppni kvenna í
körfuknattleik sl. laugardag á
Sauðárkróki. Stúlknaflokkur
Tindastóls, sem komst í undanúr-
slit með því að sigra Skallagrím
46:31 og ÍR 44:34, keppti við
Njarðvík og vann þann leik með
60:41. Stúlkumar leika síðan
annaðhvort gegn USAH eða
Keflavík til úrslita í Laugardals-
höll í lok apríl, en USAH sigraði
Keflavík b á dögunum 48:28.
Bæði Tindastóll og USAH eru
komin í útslitatömeringuna í Is-
landsmótinu og fer hún fram
fyrstu helgina í apríl.
Hlauparinn efnilegi, Sveinn
Unglingaflokkur kvenna hjá
Tindastóli keppti í undanúrslitum
gegn Grindavík og vann þann
leik 55:49. Þessi flokkur var áður
búinn að vinna Snæfell 58:45 og
leikur til úrslita í Laugardalshöll
í lok apríl annaðhvort gegn ÍR
eða Keflavík.
Meistaraflokkur kvenna hjá
Tindastóli leikur svo um næstu
helgi í fjölliðamóti til úrslita í 2.
deild kvenna í Glerárskóla á Ak-
ureyri, en þar em Tindastóll og
Skallagrímur jöfn að stigum og
verður eflaust hart barist um Is-
landsmeistaratitilinn í 2. deild.
Margeirsson UMSS, bætir
enn mctin í unglinga-
flokknum.
Sveinn brá sér á mót í
Gautaborg í Svíþjóð um helgina
og bætti þar metin bæði í 800
og 1500 metmm innanhúss.
Sveinn hjóp 800 metrana á
1:57,32 og 1500 metrana
3:58,36. Gömlu metin átti
Brynjólfur Hilmarsson ÚÍA og
vom þau einnig sett í Gautaborg
í Svíþjóð á sínum tíma
Vöruflutningar
Sauðárkrókur - Skagaíjörður
Vöruinóttaka hjá HSH í tollvörugeymslunni
Héðinsgötu 1-3 - Sími 581 3030
Bjarni Haraldsson sími 453 5124.
Sveinn bætir enn metin