Feykir - 05.01.2000, Síða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
t°r1 -<£>!> 1*2-
5. janúar 2000, 1. tölublað 20. árgangur.
Óháð fréttablað á Norðurlandi
Ekkert varð af stofnun kiötbandalagsins
Ekkert varð af stofnun kjöt-
bandalags, sem unnið hefur
verið að frá miðju sumri. VB-
ræður fóru út um þúfur á
dögunum, eftir að stjórnir
tveggja aðilanna af fimm
höfðu samþykkt þau drög
sem fyrir lágu að stofnsamn-
ingi, stjórnir Norðvestur-
bandalagsins og Kaupfélags
Héraðsbúa. Aðrir sem hlut
áttu af þessum viðræðum
voru KEA, Kjötiðjan ehf. á
Húsavík og Kjötumboðið hf. í
Reykjavík. Aætlað var að nú í
upphafi árs tæki til starfa
nýtt hlutafélag sem hefði að
markmiði að bæta afkomu
greinarinnar með verulegri
hagræðingu.
Aðilar hafa verið tregir til að
tjá sig um ástæður þessara við-
ræðuslita og ekki tókst að ná
sambandi við Þorstein Benón-
ýsson framkvæmdastjóra Norð-
vesturbandalagsins, en á ráð-
stefnu um framtíð landbúnaðar
á Hvammstanga síðsumars
lagði hann áherslu á mikilvægi
þess að sláturleyfishafar sam-
einuðu krafta sína í síhamandi
rekstrarumhveri, á þann hátt
gætu þeir frekast sinnt mikil-
vægum þáttum s.s. vöruþróun.
Litlir aðilar hefðu mjög tak-
markaða ntöguleika að sinna
þeim nauðsynlega þætti rekst-
ursins.
Svo virðist sem eigna- og
valdahlutföll hafi orðið ásteyt-
ingarsteinninn sem viðræðumar
strönduðu á. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins Dags gerðu Ey-
firðingar sig ekki ánægða með
þá útreikninga sem gerðir höfðu
verið varðandi eignarhlutföll og
vildu reikna þau upp á nýtt, en
þeir munu hafa viljað hafa höf-
uðstöðvar fyrirtækisins á Akur-
eyri. Hinn kosturinn mun hafa
verið að hafa höfuðstöðvamar í
Reykjavík, en í sameiginlegri
fréttatilkynningu frá aðilum
málsins segir að vemlegur mun-
ur sé á viðhorfum um ifamtíðar-
uppbyggingu afurðastöðvanna
og því hafi verið ákveðið að
hverfa frá fyrirhugaðri samein-
ingu að sinni, en félögin muni
áfram vinna að því að treysta
rekstur Kjötumboðsins hf. í
Reykjavík.
Álfadans félaga í ungmannafélögunum Smára í Varmahlíð og Tindastóli setti skemmtilegan
svip við gamlársbrennuna á Sauðárkróki. Vel viðraði til brennu og flugeldaskota, þannig að
íbúar norðvestanlands gátu fagnað nýju árþúsundi og leiftraði heiminhvolfið sem aldrei fyrr.
Sveitarfélögin fá glaðning frá ríkinu
Sveitarfélögin á landsbyggðinni fengu
glaðning í lok ársins, ef svo má segja,
þegar úthlutað var til þeirra auka-
framlagi úr jöfnunarsjóði. Þama var
verið að bæta upp tekjutap sveitarfé-
laganna á liðnum áram, einkum vegna
fólksflutninga af landsbyggðinni. Það
vora Isafjarðarbær, með 48,7 milljónir
og Sveitarfélagið Skagafjörður, með 47
milljónir, sem fengu hæstu framlögin,
en þau hafa séð að baki um 250 manns
á þremur síðustu áram. Siglufjörður og
Húnaþing vestra eru einnig á lista yfir
þau 10 sveitarfélög sem hæstu framlög-
in hlutu.
Úthlutað var á grundvelli reglna sem
Páll Pétursson félagsmálaráðherra samdi í
samráði við forráðamenn Sambands sveit-
arfélaga. Alls 700 milljóna aukaframlagi
jöfnunarsjóðs var jafnað niður, annars
vegar sem fólksfækkunarframlag og hins
vegar sem þjónustuframlag. Helmingur-
inn, 350 milljónir, voru greidd vegna
fólksfækkunar, að jafnaði um 120 þúsund
krónur á hvem jreirra 2.900 íbúa sem flutt
hafa af landsbyggðinni á árunum 1997-
"99. Hinn helmingurinn var greiddur sem
hækkuð þjónustuframlög.
Skagaljörður og ísaijörður fengu hvort
um sig rúmlega 31 milljón vegna íbúa-
fækkunar. Átta önnur sveitarfélög fengu
yfir 10 milljónir: Vestmannaeyjar 21,
Fjarðarbyggð 19, Siglufjörður 14, Bol-
ungarvík 13, Olafsfjörður 12, Húnaþing
vestra og Húsavík 11 milljónir og Blöndu-
ósbær fékk 9,5 milljónir. Hæstu þjónustu-
framlögin fóru lfka á ísafjörð og Skag-
fjörð, 17 milljónir vestur og 16 til Sveitar-
félagsins Skagafjarðar. Þrír aðrir staðir
fengu yfir 10 milljónir í þjónustuframlög:
Hornarfjörður, Fjarðarbyggð og Borgar-
byggð.
Eins og áður segir fékk Sveitarfélagið
Skagafjörður 47 milljónir alls úr þessu
aukaframlagi frá jöfnunarsjóðnum. Siglu-
fjörður fékk 21,6 milljónir, Húnaþing
vestra 19,8 milljónir, Blönduósbær 13,3,
Höfðahreppur 7,9, Sveinsstaðahreppur
1,4, Torfalækjarhreppur 1,2. Akrahrepp-
ur 1,1 milljón og aðrirminna. Alls varút-
hlutað til Norðurlands vestra 115,5 millj-
ónum. Til samanburðar má geta þess að
116,8 milljónum var varið til Norðurlands
eystra, 119,5 til Vestfjarða, 128,6 til Aust-
fjarða, 94,2 til Suðurlands, 76,2 til Vestur-
lands, 49,2 til Reykjaness og 27,4 til
Reykjavíkur.
Á blaðamannafundi þar sem útlhutun-
in var kynnt sagði Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga að þetta samkomulag fæli í
sér tímamót og væri ein mesta byggðaað-
gerð sem gerð hefði verið í langan tíma.
Eigna- og valdahlut-
föll ásteytingarsteinn
—ICTen^iM
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
jm
bílaverkstæði
simi: 453 5141
Sæmundorgata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
Bílaviðgerðir ö Hjólbarðaviðgerðir
Réttingar Sprautun