Feykir - 12.01.2000, Qupperneq 2
2 FEYKIR 2/2000
Auglýsing
Orlofsheimilissjóður Læknafélags .
íslands auglýsir eftir tveimur
sumarhúsum til leigu í tólf vikur í
sumar frá 1. júní.
Æskileg staðsetning er Skagafjörður,
Eyjafjörður, Þingeyjarsýslur og Hérað.
í samningnum þarf að fylgja ákveðin
þjónusta.
Læknafélag íslands
Hlíðarsmára 8, Kópavogur.
Að bjarga sér á flótta
Gleðilegt nýtt ár, nýja öld
eða þúsöld. Þið notið það sem
hæfir af þessum kveðjum og
kastið hinu sem óþarft er.
Forsætisráðherra sagði í ára-
mótaávarpinu að hér væri gott
land, farsæl þjóð og björt fram-
tíð ef við bara lærðum að
þekkja meðalhófið.
Ég nota ekki tilvitnunar-
merki, man þetta ekki orðrétt,
en þetta þótti mér vera í skjóðu
Davíðs á gamlárskvöld.
Síðan gerist það áður en jól-
in eru liðin - að einhver héraðs-
dómari - dæmir kvótakerfið til
dauða og þegar Davíð kemur
nú fram í kastljósið hefur ís-
landssagan tekið 190 gráðu
kúvendingu og nú blasir ekkert
annað við en heimsendir og
tímabært að rifja upp Gunnars-
hólma þar sem stendur „hnípin
þjóð í vanda”. Boðskapurinn í
Kœru Skagfiröingar og
aðrir velunnarar
Hjartans þakkir fyrir ykkar ómetanlegan stuðning og
hlýhug í veikindum okkar. Þetta kvöld í Miðgarði verður
okkur öllum ógleymanlegt og þá sérstaklega þessi hlýja og
gleði sem þar var ríkjandi.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðilegt nýtt ár.
Eyjólfur, María og börn
Starrastöðum.
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Eftirtaldir sérfræðingar verða með móttöku
í stofnuninni í janúar og febrúar:
Tímabil
3/1 - 14/1
17/1-21/1
24/1 - 28/1
31/1 - 11/2
14/2 - 18/2
21/2 - 25/2
Læknar
Hrafnkell Óskarsson
Edward Kiernan
Haraldur Hauksson
Arnbjörn Arnbjörnsson
Shree Datye
Jónas Franklín
Sérgrein
skurðlæknir
kvensjúkdómalæknir
skurðlæknir
bæklunarsérfræðingur
skurðlæknir
kvensj úkdómalæknir
Tímapantanir í síma 455 4000.
dag virðist mér vera sá að flýja
land og fylgja Kolskeggi, en
ekki snúa aftur eins og Gunnar
og mæta örlögum sínum af
karlmennsku.
Gleymd er tilvitnunin sem
GunnarThor. sótti í Einar Ben.
og var góð brýning: „Vilji er allt
sem þarf.”
Hugmyndin um að bjarga
sér á flótta er jafn gömul mann-
kyni og hefur oft dugað vel, nú
er hins vegar konrin spáný út-
færsla á henni, frá okkar upp-
risna félagsmálaráðherra sem
sagt borga 100.000 krónur á
hvem brottfluttan dreifbýling
og bjarga þannig bágri stöðu
margra sveitarfélaga.
Eg vil koma með viðbótar-
tillögu eða eins og það heitir á
fagmáli, nánari úrvinnslu sem
er þannig: Sveitarfélagið
Skagafjörður flytur alla sína
íbúa í burtu. - Til að einfalda
reikninginn geri ég þá 4500,
sem ríkissjóður borgar 450 leg.
milljónirfyrirhópinn. 100 þús.
á haus. - Við þurfum ekki að
fara langt því Akrahreppur lof-
aði um árið að borga 100 þús-
und krónur á nýbura og ekki
getum við verið lakari en koma-
böm, svo þama em þá komnar
aðrar450 milljónir. - Sfðan not-
um við þessar 900 milljónir til
að borga upp skuldirnar. Hér
verður nefnilega enginn rekstr-
arkostnaður þar sem við emm
öll flutt í burtu - snjallt ekki
satt!!
Eftir eitt ár flytjum við svo
allir til baka og Akrahreppur fær
endurgreitt sitt framlag og
menn setjast hér í blómlegt bú
og alveg skuldlaus. - Þetta er
ótrúlega einfalt eins og allar
snjallar lausnir.
En einhverra hluta vegna er
sífellt í huga mér vísan „Yfir
kaldan eyðisand.” Það er
kannski af því að þúsaldarspá-
in í þeirri vísu er heldur dapur-
Glaumur.
Geir sló í gegn á
Þréttándagleðinni
Það þykja líklega tíðindi að
fólk þurfti ekki að standa á
Þrettándagleði Karlakórsins
Heimis í Miðgarði á laugar-
dagskvöldið. Aðsókn var ekki
jafngóð og mörg undanfarin ár,
en Heimisfélagar þurfa þó varla
að kvarta, því á skemmtunina
og dansleikinn með Geimrundi
á eftir komu um 400 manns.
Gerður var góður rómur að
söng Heimismanna, sem m.a.
fluttu fjögur ný lög þetta kvöld.
Þá þótti gestur kvöldsins standa
sig vel, en það var Geir H.
Haarde fjármálaráðherra og
þingmaður. Geir var á léttu nót-
unum og sagði gamansögur auk
þess sem hann reyndi sig í
sönglistinni og réðst þar ekki á
garðinn þar sem hann var
lægstur. Það var hvorki meira
né minna en þjóðlagið rúss-
neska Volga, Volga, sem hann
söng ásamt bóndanum og bass-
anum á Kúskerpi Einari Hall-
dórssyni og veitti Einari ekkert
af að taka vel á því til að þing-
maðurinn stæli nú ekki senunni
í söngnum.
C* F 'EYKIR Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf. brandsson, Sæmundur Hennannsson, Sigurður Skrifstofa: Ægisstíg 10. Sauðárkróki. Póstfang: Box 4, Ágústsson og Stefán Ámason. 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703. Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk. Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang: Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og feykir @ kmkur. Ls. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Fréttaritari: Öm Þórarinsson. Feykir á aðild að Samtökum bæja- og héraðs- Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð- fréttablaða.