Feykir - 17.05.2000, Qupperneq 6
6 FEYKIR 19/2000
Hagyrðingaþáttur 296
Heilir og sælir lesendur góðir.
Lagfæra þarf vísu Kristjáns frá Gil-
haga úr síðasta þætti, en þar á eins og
flestir hafa trúlega séð fyrsta hending-
in að vera þannig.
Ingibjörg sem engu réði.
Þegar Kristján Ámason á Skálá
heyrði sagt frá því í útvarpi einn morg-
un að beinbrot úr Hitler væri til sýnis í
Rússlandi varð til eftiifamdi vísa.
Syrtir að í sælureitnum
sem var hælt í gamla daga.
Þegar bein úr Hitler heitnum
til hátíðabrigða fá að naga.
Undir umræðum um tölvuvæðing-
una yrkir Kristján.
Ekki verður öfunds verð
ævi sumra lúsablesa.
Er ovurtölva af æðstu gerð
allra hugi fer að lesa.
Þá kemur næst sumarmálavísa eftir
Kristján.
Veður þýtt nú við oss hlær
vaggar blítt hinn lygni sær.
Lífsins grýtta gata er fær
þó glitti í hvítt ef horft er fjær.
Um ákveðinn veikindafaraldur á
heimilinu yrkir Kristján.
Hér er eitthvað illt á kreiki
ekki er mér um drauga slíka.
Tölvan mín fékk taugaveiki
tókst að smita símann líka.
Eflaust bagar aldurinn
„alnetið” ég notað geti.
En margur furðufiskurinn
fmnst á þessu skrítna neti.
Það er Björn Pétursson frá Sléttu í
Fljótum sem yrkir svo um íslensku ætt-
jörðina.
Þó hún sýnist beinaber
brjóstið fölt og kvalið
þar hefur drottinn sjálfum sér
sumarbústað valið.
Bjarni Jónsson áður bóndi í
Hvammi í Skorradal yrkir svo.
Þegar ég á hauður hníg
hvergi lengur talinn,
englavængjum á ég flýg
yfir Skorradalinn.
Það var Kári Jónsson frá Valadal
sem orti eitt sinn svo á vordegi er hann
dvaldi í Reykjavík.
Mér þráfalt leiðist þras og org
og þrönga götu sporið.
Kátir drengir kveðja borg
og keyra út í vorið.
Einhverju sinni er Kári var á norð-
urleið og Holtavörðuheiðin hafði verið
lögð að baki varð þessi vísa til.
Sólin greiðir sortaband
senn þá eyðist lúinn.
Nú skal keyra í Norðurland
nú er heiðin búin.
Ein vísa kemur hér enn eftir Kára.
Hvar sem flækist karl um jörð
kosti ei hennarefa.
Mínum augum munu Skörð
mestan unað gefa.
Það mun hafa verið Steinbjörn
Jónsson frá Háafelli í Hvítársíðu sem
orti svo.
Gengur yfir gróðrarskúr
gaman er út að líta.
Fjallið hefur fært sig úr
feldinum sínum hvíta.
Vorið blítt um bala og hól
blænum ýtti með í dansinn.
Vorið hlýtt og sumarsól
saman hnýttu blómakransinn.
Sveinn J. Sveinsson frá Miðkoti á
þessa vorvísu.
Blánar græðir, bliknar svið
brosa hæðadrögin.
Ljós og kvæði vakna við
vorsins æðaslögin.
Hinn snjalli hagyrðingur Bjami Ás-
geirsson alþingismaður og bóndi mun
hafa gert þessar.
Þar sem látur vík og ver
vorið lífið gleður.
ásar, móar, eyjar, sker
allt af söngnum kveður.
Þar sem urta kjassar kóp
kría af hreiðri flýgur.
Æður kallar unga hóp
ána lambið sýgur.
Einhvem tíma mun okkar ágæti
Rósberg G. Snædal hafa ort svo.
Geta hverja gróðumál
glatt með von og trausti.
Þeir sem eiga í sinni sál
sumarmál að hausti.
Þá er það Einar Sigtryggsson á
Sauðárkróki sem spáir í vorið.
Vermir sálu vorið blítt
vakna sund og hæðir.
Silfrastaða fjallið frítt
fannadúkinn bræðir.
Birtir yfir holti og hæðum
hylur þoka Tindastól.
Dagur rís úr rökkurslæðum
roðar fyrir morgunsól.
Himinn rauður hafið blátt
hnígur dögg á svörðinn.
Sólin skín úr austurátt
yfir Skagafjörðinn.
Gyllir sólin vík og voga
vefur hnjúka silfurkrans,
undir kvöldið eldar loga
öldur hafsins stíga dans.
Fallega sagt og bið ég lendundur
hér með að vera sæla að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
„Deildin sú sterkasta í áraraðir“
segir Sigurður Halldórsson þjálfari meistaraflokks Tindastóls
Sigurður Halldórsson þjálfari Tindastóls ásamt þremur leik-
mönnum við störf á íþróttavellinum. Frá vinstri talið Gunnar
Ólafsson, Óli ívar Jónsson og Joseph Sears.
„Það er deginum ljósara að
deildin er sú sterkasta sem verið
hefur í áraraðir. Mörg lið ætla
sér upp og eru að leggja allt í
sölumar. Það sést á þeim mann-
skap og þjálfurum sem þau búa
yfír. Svo má líka benda á það að
við erum reynsluminnsta liðið.
Ég er að ná í leikmenn sem hafa
litla reynslu í þessari deild, fé-
lagið hefur ekki bolmagn í
meira hvað það snertir, en ég er
að sama skapi sáttur við leik-
mannahópinn og hef trú á þess-
um hóp þrátt fyrir reynsluleys-
ið”, segir Sigurður Halldórsson
þjálfari meistaraflokks Tinda-
stóls í knattspyrnu sem er að
leggja út í það erfiða verkefni
að leika í næst efstu deild Is-
landsmótsins. Það eru nýliðarn-
ir í deildinni Sindri ogTindastóll
sem mætast í sínum fyrsta leik
nk. föstudagskvöld á Homa-
firði.
Sigurður segist hafa staðið
frammi fyrir því vali að fá unga
stráka frá stóru félögunum. „Ég
gat fengið þar mikið af leik-
mönnum, en valdi þann kostinn
að fara í reynslumeiri spilara
sem hafa reyndar verið í neðri
deildunum. Ég er að horfa í
meira en eitt ár og þessir leik-
menn ætla að setjast hér að og
það finnst mér meira spennandi
en að fá lánaða menn í eitt ár og
svo eru þeir famir. Þannig að ég
vona það svo sannarlega að hér
sé kominn framtíðarhópur og ég
horfi líka mikið til annars flokks
strákanna, eins og ég hef sagt.
Atli Levy er sá sem kom upp úr
2. flokk síðasta sumar og briller-
aði og vonandi er komið að ein-
hverjum öðrum sem bætist þá
inn í þetta 11 eða 16 manna lið
mitt. Það eru einkum þrír strák-
ar þama sem ég er að horfa tals-
vert til. Það eru Þorsteinn Gests-
son, Ámi Valgeirsson og Þor-
steinn Vigfússon.”
- Ég var að líta á leikjapróf-
grammið og mér sýnist að fyrri
umferðin í deildinni verði mjög
erfið, en líklega verða allir leik-
ir erfiðir eða hvað?
„Já ég er sammála þér í því
og það er t..d erfitt að sækja
Sindramenn heim á Homafjörð,
við kynntumst því í fyrra. Valur
er það lið sem hefur komið best
undan í vor og er bæði í úrslit-
um í Reykjavíkurmóti og deild-
arbikar. Við reyndar, sem betur
fer, höfum verið að spila nánast
eingöngu við úrvalsdeildarlið.
Þegar menn brotna ekki og fá
slæm úrslit út úr þeim leikjum,
þá þýðir það betri undirbúning-
ur heldur en að spila við neðri-
deildar lið og gera sig kláran í
mótið þannig.
Við erum óhræddir, því að
úrslitin hafa verið góð t.d. í
deildarbikarnum, og mannskap-
urinn er með talsvert sjálfstraust
og í góðu formi. Það er meiri
hraði í liðinu núna heldur en í
fyrra og hópurinn stærri. Liðið
þolir núna tvo menn í bann, tvo
menn meidda, en það mátti ekki
við því í fyrra.”
- Já Tindastóll var að ná góð-
um árangri í deildarbikamum,
tapaði ekki leik og var jafn að
stigum KR-ingum í efsta sæt-
inu. Tindastóll tapaði naumlega
fyrir Val í 16-liða úrslitum, með
marki á síðustu sekúndunum
skilst mér, en hvaða væntingar
em það sem þið hafið til sum-
arsins?
„Mér finnst vera raunhæft að
setja sér það markmið í byrjun
að halda sér í deildinni, en
mannskapurinn fer náttúrlega í
hvem einasta leik til að sigra.
Við munum leggja áherslu á að
vörin sé mjög vel skipulögð.
Það verður lögð höfðuðáhersla á
sterkan vamarleik og hættulegar
skyndisóknir. Hraðinn í liðinu
býður upp á það og ef vömin er