Feykir - 17.05.2000, Blaðsíða 7
19/2000 FEYKIR 7
Hjalti, Þorvaldur og Skúli Húnn spila undir hjá Lóuþrælunum.
Tríóið að baki Lóuþrælunum
Karlakórinn Lóuþrælar í Húnaþingi vestra
státar að því að hafa heilt tnö á bak við sig og í
söngdagskrá vetrarins voru nokkur lög þar sem
tríósins naut við. Það skipa Þorvaldur Pálsson
bóndi á Bjargi, sem á ekki langt að sækja hæfi-
leikana, enda náfrændi þess þekkta harmonikku-
leikara Grettis Bjömssonar. Þorvaldur hefur
sungið og spilað með Lóuþrælum allt frá stofn-
un kórsins fyrir 15 árum. Hjalti Júlíusson verk-
takti á Blönduósi er lipur trommuleikari og
Skúli Húnn Hilmarsson bifvélavirki leikur
liðlega á gítarinn, en Skúli er menntaður gítar-
leikari og hefúr einnig fengist við kennslu, eftir
því sem Feykir hefur fregnað.
Um síðustu helgi voru haldnir nemendatón-
leikar hjá Tónlistarskóla Húnaþings vestra, á öll-
um kennslustöðunum þremur, Laugarbakka,
Reykjaskóla og Hvammstanga. Allt upp í 40
tónlistaratriði voru flutt á þessum tónleikum, en
rúmlega 130 nemendur vom við tónlistarskól-
ann í vetur.
að spila vel þá emm við hvergi
bangnir.”
Sigurður þjálfari telur
kannski helsta veikleika Tinda-
stólsliðsins þær miklu breyting-
ar sem orðið hafa á liðinu frá
síðasta sumri. „Ég er að missa
hugsanlega átta leikmenn úr 20
manna hópi, þar af þrjá leik-
menn úr byrjunarliði: Sverrir
Þór, Unnar og Viktor. Sverrir og
Unnar vom nú tveir marka-
hæstu menn deildarinnar í fyrra.
Síðan em þama strákar sem
vom að spila minna: Hilmar,
Indriði, Helgi, Auðunn og Dag-
ur trúlega en ég set nú spuming-
armerki við Dag ennþá. Þetta er
náttúrlega of mikil breyting og
ég er óhress með það eitt og sér
hvað hefur orðið mikil breyting
á þessum hóp, því það er mikill
styrkur að geta haldið óbreyttu
liði, eins og t.d. Víkingamir sem
mæta mjög sterkir í þetta mót,
einfaldlega vegna þess að þeir
eru með nákvæmlega sama
mannskap og í fyrra.
En við höfum fengið stráka
inn sem em héðan úr nágrenn-
inu, em reyndir spilarar og ég
vænti góðs af. Þetta em strákar
sem em að flytja hingað með
sínar fjölskyldur. Sveinbjörn
Asgrímsson var lykilleikmaður
þegar Skallagrímur kom á óvart
og fór upp á sínum tíma. Hann
kemur frá Hvöt og þaðan kemur
annar spilari Hörður Guðbjöms-
son. Frá Víði í Garði kemur
Sævar Borgarsson, örfættur
leikmaður, kantmaðurinn knái
Agnar Sveinsson frá Siglufirði
og Marteinn Guðjónsson frá
Reyni í Sandgerði. Sigurður
Valur Amason hefur verið að
spila með okkur, og ég veit ekki
hvað verður, þar sem það er
erfítt með húsnæði og vinnu fyr-
ir hann, því miður. Hann er með
stóra fjölskyldu og býr á
Hvammstanga.
Síðan er það bara bónus ef
Fabió brasílíuættaður kemur
hingað. Ég er búinn að vera tals-
vert í sambandi við hann og
hann hefur mjög góð meðmæli.
Þykir mjög skerkur örfættur
miðjumaður og hefur verið að
spila út í Bandaríkjunum og er
að klára þar nám.”
Ég er mjög stoltur að segja
frá því að hér er hjá Tindastóli
er 20 manna hópur í 2. flokki og
ég var svo lánsamur að fara með
þá stráka upp líka í fyrra. Þeir
verða að spila í b-riðli núna í
sumar, mjög sterkum riðli og fá
þar skemmtilegt verkefni. Þriðji
og fjórði flokkurinn er til staðar
og stórir flokkar þar fyrir neðan.
Meistaraflokkur kvenna og
annnar og þriðji flokkur kvenna,
og ég held að Tindastólsmenn
geti verið ntjög ánægðir og
montnir af þessu úrvali sem er
hér. Aðstæður hér eru mjög góð-
ar, það er engin spuming og
vonandi verður þannig tíðarfar
að vellimir haldist góðir.
En ég vill kannski bæta því
við að það er verið að starta
stórri bakvarðasveit, sem er
skipuð stuðningsmönnum og
áhugamönnum um fótbolta
héma á svæðinu. Og ég held að
ef það tækist að skapa þama öfl-
uga hreyfingu þá séum við að
tala um mörg stig í baráttunni í
sumar. Það er vonandi að litimir
okkar verði til á pöllunum í
sumar með tilheyrandi látum og
stemmningu. Ég hvet fólk til að
taka þátt í þessari skemmtun”,
sagði Sigurður Halldórsson
þjálfari Tindastóls.
Feykir kemur
næst út 31. maí!
Af sérstökum ásæðum í prentsmiðju
kemur Feykir ekki út í næstu viku.
Næsta blað Feykis er því 31. maí.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Nokkrar heyrúllur til sölu.
Upplýsingar í síma 453 8258.
Til sölu telpnareiðhjól fyrir
11-13 ára á kr. 2000. Upplýs-
ingar í síma 453 8220.
Til sölu Brio kerruvagn, vel
með farinn. Selst á hálfvirði.
Uppl. í síma453 5038 e. kl. 17.
Tek í geymslu snjósleða og
önnur tæki. Upplýsingar í síma
453 8042.
Kvennakórinn Lissý
frá S. - Þing. og Akureyri
verður með tónleika í
Miðgarði laugardaginn 20. maí kl. 21.
Fjölbreytt söngskrá.
AVIS Bílaleigan
Sauðárkróki, sími 899 8631.
Pétur Einarsson lögmaður
Sauðárkróki, sími 899 8631.
Áskrifendur góðir!
Vinsamlegast munið eítir
seðlinum með áskriftargjaldinu.
Athugið!!
Vantar 11 manns sem vilja missa 10 kíló eða meira á
næstu mánuðum!!
Frí sýnishorn!
Hringdu núna í síma 552 4513-
Aukakílóin burt! Ný öflug vara!
Náðu varanlegum árangri í eitt skiptið fyrir öll. Ég missti 7 kg.
á fimm vikum. Síðasta sending seldist upp. Persónuleg ráðgjöf
og stuðningur. Hringdu strax. Helma & Halldór sími 557
4402 og 587 1471. grima@centrum.is
Skagafjörður
Könnun á atvinnu ungs
fólks á aldinum 16-20 ára
í Skagaíirði.
Þeir unglingar sem ekki hafa
vinnu í sumar eru vinsamlega
beðnir um að skrá sig hjá
Vinnuskóla Skagafjarðar dagana
23. og 24. maí í Stjórnsýsluhúsinu
kl. 10- 12.