Feykir


Feykir - 02.08.2000, Qupperneq 6

Feykir - 02.08.2000, Qupperneq 6
6 FEYKIR 26/2000 ísland í augum Brasilíumanns Sá brasilíski Luiz Antonio Porpino. Luiz Antonio Porpino er Brasilíumaður frá borginni Na- tal í Nv Brasilíu og starfar sem blaða- og aðstoðarmaður rflds- stjórans Garibaldis Alves Filho í fylkinu Rio Grande do Norte. Þegar María Hjaltadóttir frá Sauðárkróki var skiptinemi í Natal árið 1997-1998 kynntist hún Porpino sem var góðkunn- ingi fjölskyldu hennar þar. Hann hafði santband við Maríu fyrir nokkrum dögum og sendi henni meðfylgjandi grein sem hún þýddi fyrir hann, því hann langaði til að fá biita eftir sig grein í íslensku blaði. Porpino er þekktur fyrir margra ára ritstörf í Þýskalandi og störf við Hilton hótelkeðj- una. I gegnum þessi störf hefur Porpino kynnst mörgum ís- lenskum unglingum er dvalið hafa um lengri eða skemmri tíma í Þýskalandi. Síðan 1972 hefur Porpino haft brennandi á- huga á íslenskri sögu og menn- ingu margs konar, hefur heim- sótt landið einu sinni og skrifað margar blaðagreinar um ísland í Brasilíu. Hér gefur að líta hluta úr grein sem Porpino skrifaði í dagblaðið O Journal Tribuna do Norte sem gefið er út um alla Brasilíu. ísland í Norður-Atlantshafi byggðist í kringum árið 870 þegar norski víkingurinn Ingólfur Amarson nam þar land og flutti með sér konur og írska þræla til að hefja búskap á „landi íssins”. 60 árum síðar var elsta þing í heimi stofnað á íslandi, Alþingi. Árið 1000 tóku Islendingar kristna trú og það ár fann Leifur „heppni” Ei- ríksson fyrstur Ameríku 500 árum á undan Kólumbusi. ís- land var í fyrstu sjálfstætt þjóð- veldi en síðan lengi undir stjóm konunga, fyrst Noregskonungs og síðar Danakonungs. Árið 1918 varð fsland frjálst og full- valda ríki í sambandi við Dan- mörk um einn og sama konung og í ár eru 56 ár síðan ísland varð lýðveldi. I gegnum árin hafa fæstir Brasilíubúar þekkt nokkuð til Islands og einhverjir telja ísland vera einhvers staðar í íshafmu þar sem fólk býr í snjóhúsum og óbærilegt sé að lifa. Nú á tímum er hins vegar orðið al- gengara að íbúar S-Ameríku geti heimsótt lönd langt í norðri, eins og ísland, vegna samvinnu flugfélaga og fyrirtækja. ísland er miðpunktur norð- ur-Atlantshafsins, hálægt Skotlandi, Grænlandi og Nor- egi. Þriggja tíma flug er til Amsterdam og rúmir fimm tímar til New York. ísland er landfræðilega yngsta land Evr- ópu og segja má að hún sé stór, strjálbýl eyja með aðeins 270.000 íbúum og köldum sandauðnum og jöklum. Höfuðborgin heitir Reykja- vík og er ein ómengaðasta borg Evrópu, með rúmlega hundrað þúsund íbúa og fer ört vaxandi. Mikill uppgangur hefur ver- ið í efnahagskerfinu á undan- förnum árum en verðbólga er lág, miðað við önnur ríki, þó hún sé í dag meiri en oft áður. Forvitni útlendra ferðamanna beinist aðallega að náttúmfeg- urð landsins og hreinleika og í viðskiptalífinu er Island að verða vinsæll kostur fyrir út- lenda fjárfesta. Flestir eru lúth- erstmar. I Evrópu em að meðal- tali 15 % fólks án atvinnu en á Islandi eru það um 3-4 %. Fé- lags- og heilbrigðiskerfi eru með þeim betri í heiminum og ungbamadauði er afar sjaldgæf- ur. 80 % kvenna eru útivinn- andi og mjög algengt er að Is- lendingur hafi fleiri en eina at- vinnu. Saga, menning og bók- menntir fjalla um líf norrænna vfldnga á íslandi og í Skandin- avíu. Þjóðarauður Islendinga í formi bókmennta er stórfeng- legur og enn geta margir Is- lendingar lesið íslensk handrit sem skrifuð voru af forfeðmn- um fyrir mörgum öldum síðan. Hólahátíðin um aðra helgi Hólahátíðin verður haldin 12. og 13. á- gúst nk. Hátíðarræðu á sunnudegi heldur að þessu sinni Sólveig Pétursdóttir dóms- og kirkjumálaráðherra, en fjölbreytt dagskrá er á hátíðinni, m.a. tónleikar undir berum himni á laugardag. Dagskráin hefst á laugardag með því að lagt verður af stað frá Bændaskóla áleiðis upp í Gvendarskál þar sem haldin verður messa. Sr. Dalla Þórðardóttir prestur á Miklabæ hefur umsjón með messunni, sem hefst í skálinni kl.13:00. K1 11:00 verður skipulögð dagskrá fyrir börn á staðnum, á meðan fullorðnir ganga til messu upp í Gvendarskál. Það verða leik- ir, skoðunarferð í kirkju, vatnalífssýning, sund og hestar. Kl. 16:00 hefjast tónleikar undir berum himni. Sr. Bragi J. Ingibergsson sóknar- prestur á Siglufirði mun þá fyrst flytja á- varp, en síðan munu barnakórar úr prófast- dæminu taka lagið ásamt Rökkurkórnum, skagfirska kammerkórnum, auk þess sem tónlistarfólk frá Sauðárkróki og Siglufirði munu flytja svokallað „kirkjupopp.” Kl. 18:00 hefst grill á staðnum og þar getur fólk gætt sér á grilluðum pylsum í boði Kaupfélags Skagfirðinga og Aðalabak- arfsins á Siglufirði. Um kvöldið kl. 20:00 verða svo tónleikar í Hóladómkirkju, þar sem ýmsir flytjendur munu koma fram m.a. Álftagerðisbræður, auk þess sem fluttir verða sálmar úr sálmasamkeppni. Kl. 21:00 verður svo varðeldur í umsjón skáta frá Sauðárkróki og við varðeldinn verða sungnir ýmsir skemmtilegir söngvar, jafnvel Undir bláhimni. Seinni dagur hólahátíðar hefst á hátíðar- messu í Hóladómkirkju kl. 14:00. Þar munu kvenprestar úr héraðinu [Djóna. Sr. Ragn- heiður Jónsdóttir sóknarprestur á Hofsósi og sr. Guðbjörg Jóhannsdóttir sóknarprestur á Sauðárkróki munu þjóna fyrir altari, en sr. Dalla Þórðardóttir sóknarprestur í Miklabæ mun prédika. Vígslubiskup Sr. Bolli Gúst- avsson lýsir yfir blessun í lokin. Meðhjálp- ari er Bolli Pétur Bollason guðfræðingur. Eftir messu kl. 15:00 verður boðið til kaffihlaðborðs í Hólaskóla. Kl. 16:30 hefst svo menningardagskrá í Hóladómkirkju. Þar mun vígslubiskup Sr. Bolli Gústavsson flytja ávarp. Kirkjumálaráðherra Sólveig Pétursdóttir flytur síðan hátíðarræðu. Þá mun Hjörtur Pálsson rithöfundur flytja frumsamið ljóð í tilefni hátíðar. Menningar- dagskránni lýkur svo á tónlistardagskrá og er áætlað að dagskránni í kirkjunni ljúki unt kl. 18:00. Aðalfundur Menor á Hvammstanga Aðalfundur Menor, Menn- ingarsamtaka Norðlendinga, var haldinn í húsakynnum Tónlistarskólans á Hvammstanga 15. júní sl. Gestur fundarins var Jón Bjarnason alþingismaður, sem flutti erindi um ný við- horf í skólamálum dreifbýl- isins. Kynnti hann tillögu til þingsályktunar, sem hann hefur flutt um þetta efni, þar sem kveðið er á um, að komið skuli á tólf ára samfelldu grunnnámi og að því stefnt, að ungt fólk innan sjálfræðis- aldurs, hvar sem er á land- inu, geti stundað nám dag- lega frá heimili sínu. Nokkr- ar umræður urðu um þetta málefni. I fundarhléi kom fram lista- fólk úr Húnaþingi vestra og flutt var daskrá í tali og tónum. Tveir nemendurTónlistarskól- ans á Hvammstanga, Sigurður H. Oddsson og Sólrún Sigurð- ardóttir spiluðu á píanó og flautu. Einsöng söng Karen Sigurðardóttir. Elínborg Sigurgeirsdóttir skólastjóri Tónlistarskólans sagði frá starfsemi skólans og lék einleik á píanó verk eftir Edvard Grieg. Þóra Eggerts- dóttir kennari flutti ijóð eftir Gunnar Dal. Hólmfríður Bjamadóttir rifjaði upp bemsku- minningar frá Jósefínuhátíð á Hvammstanga um 1970. Öll þessi atriði hlutu hinar bestu viðtökur fundarmanna. í lok fundarins var fundar- fólki boðið að skoða vinnu- stofu Hólmfríðar Dóm Sigurð- ardóttur fjöllistamanns, Lista- kot Dóm að Garðavegi 28. Gaf þar að líta marga fagra muni. Stjórn Menor var endur- kjörinn á aðalfundinum. Ur stjórn átti að ganga Helgi Ó- lafsson og Stefán Hafsteins- son, en vom báðir endurkjöm- ir. Ólafur Þ. Hallgrímsson sóknarprestur á Mælifelli var endurkjörinn formaður sam- takanna til eins árs. Aðrir í stjóm eru: Roar Kvam Foss- brekku, Svanhildur Hermanns- dóttir Bárðardal, Helgi Ólafs- son Hvammstanga og Stefán Hafsteinsson Blönduósi. Vara- stjóm skipa: Guðmundur Á. Sigurjónsson Akureyri, Erla Óskarsdóttir Öxarfirði, Bjöm Ingólfsson Grenivík, Svein- björg Hallgrímsdóttir Akureyri og Magnús Óskarsson Sölva- nesi. Endurskoðandi reikninga er Jóhanna Rögnvaldsdóttir Stómvöllum Bárðardal.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.