Feykir - 18.10.2000, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Vinnuhópur um forgangsröðun íþróttamannvirkja
Setur framkvæmdir við Sund-
laug Sauðárkróks efst á lista
Vinnuhópur sem unnið hefur
að tillögum um forgangsröðun
framkvæmda við íþróttamann-
virki í Skagafirði er sammála um
að af „stóru” verkefnunum verði
fyrst í forgangsröðinni Sundlaug
Sauðárkróks. Taka þurfi ákvörð-
un um hvort endumýja eigi
sundlaugina eða byggja nýja og
þá hvar hún skuli staðsett.
„Sundiaugin er barns síns tíma
eins og hún er í dag og liggur
undir ntiklum skemmdum. Við
sundlaug Sauðárkróks skal vera
25 metra inniiaug og útilaug,
bamalaug og heitir pottar ásamt
rennibrautum og leiktækjum”,
segir í greinargerð vinnuhópsins.
Það var menningar- iþrótta-
og æskulýðsnefnd sem skipaði
vinnuhópinn. I athuguninni kom
í ijós að mörg verkefni eru að-
kallandi í Skagafirði bæði stór
og smá, en stærstu verkefnin eru
sundlaugin og gerð frjálsíþrótta-
vallar á Sauðárkróki. Hópurinn
var sammála um að forgangs-
raða ekki smærri verkefnum
heldur vinna þau eftir skynsam-
legu mati hverju sinni. Þau eru
eftirtalin: Ljúka gerð íþróttaað-
stöðu í VaiTnahlíð, þar sem að-
staða fyrir frjálsar íþróttir er
slæm, íþróttavellir á Hólum eru
aðkallandi, golfvöllinn á Sauðár-
króki þarf að stækka upp í 18
holu vöil, aðstöðu hestamanna á
Vindheimamelum þarf að bæta,
við sundlaugina í Varmahlíð er
áætlað að koma upp rennibraut-
um og leiktækjum. laga þarf
sparkvöll á Hofsósi og merkja
göngu- og hlaupaleiðir fyrir al-
menning á þéttbýlisstöðunum.
í vinnuhópnum voru fulltrúar
frá íþróttafélögum í héraðinu:
Páll Ragnarsson frá Tindastóli,
Anna Jóhannsdóttir frá hesta-
mannafélögunum, Þröstur Frið-
finnsson frá Golfklúbbi Sauðár-
króks, Ragnheiður Guðmunds-
dóttir frá Smára, Kristín Jóhann-
esdóttir UMSS, Ami Stefánsson
fulltrúi almenningsiþrótta og
Hjalti Þórðarson frá Neista.
Að sögn Asdísar Guðmunds-
dóttur formanns menningar- í-
þrótta- og æskulýðsnefndar mun
nefndin fara yfir þessar tillögur
og mun þessi greinargerð nýtast
MÍÆ í vinnu nefndarinnar við
gerð fjárhagsáætlunar, 3ja ára
áætlunar og verða notuð í
stefnumótunarvinnu nefndarinn-
ar í framtíðinni.
Nóg að gera hjá Norðurósi
„Þetta er að smella í það
horf sem við viljurn hafa það.
Við erum búnir að fá nokkuð
af fólki frá því síðsumars,
erum um 15 starfsmenn í dag,
en við vonumst til að fá þrjá til
fjóra í viðbót þegar slátrun Iýk-
ur”, segir Þorsteinn Hafþósson
hjá fiskvinnslunni Norðurósi á
Blönduósi, en það er dótturfýr-
irtæki Norðurstrandar á Skaga-
strönd.
Þorsteinn sagði ágætt gengi
hjá Norðurósi, en aðalfram-
leiðsla fyrirtækisins er svokall-
aður mamingur, en það er af-
skurður sem fæst frá fiystiskip-
um og frystihúsum. Norðurós
fær hráefni héðan og þaðan,
allt austan frá Raufarhöfn og
suður í Garð, en einungis þrjár
vinnslur á landinu eru í mam-
ingnum.
„Þetta em beingarðamir og
það er það mikill fiskur á þeim
að þessi vinnsla borgar sig.
Vinnslan fer þannig fram að
vél rífur ftskinn af beinunum
og úr verður afurð sem líkist
saltfiskbollum, sem er pökkuð
og síðan dreift til viðskiptavina
í Frakklandi og um allan
heim”. Þorsteinn segir að vel
gangi með hráefnisöflun, en
hjá Norðurósi er einnig að fara
af stað flökun á smáþorski og
er ætlunin að flaka jöfnum
höndum með mamingnum.
Góð tíð að undanfömu hefur koniið ýmsum vel enda standa
haustverkin víða sem hæst og t.d. mikilvægt fyrir
iðanaðarmenn að þeir nái að ljúka sínum útiverkum að mestu
áður en veturinn leggst að. K-Taksmenn á Sauðárkrúki hafa
að undaiörnu unnið hörðum höndum við að steypa gang-
stéttir í bænum, laga stéttir sem brjóta hefur þurft vegna
endurnýjunar lagna og annarra framkvæmda.
Vanda ráðinn hjá félagsmiðstöðinni
Vanda Sigurgeirsdóttir hefur
verið ráðin í starf forstöðumanns
félagsmiðstöðvarinnar Friðar á
Sauðárkróki sem auglýst var ný-
lega. Vanda kemur þó ekki til
starfa fyrr en upp úr áramótum,
en eins og fram kom í viðtali við
hana í síðasta blaði Feykis er hún
í fæðingaroriofi.
Omar Bragi Stefánsson
menningar- íþrótta- og æsku-
lýðsfulltrúi segir mikinn feng í
þvf að fá Vöndu til starfa vegna
reynslu hennar af starfi með
unglingum, en hún var um tíma
forstöðumaður Arsels í Reykja-
vík. Omar sagði að nokkrar um-
sóknir hefðu borist frá ágætu
fólki, bæðu um starf forstöðu-
mannsins og önnur störf í félags-
miðstöðinni, sem er að taka til
starfa þessa dagana, og er það
um hálfum mánuði seinna en
undanfarin haust.
—KTck^h chjDI JIMftbílaverkstæði
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ A-Æ M-ÆL sími: 453 5141
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA # Bílavidgerðir v' Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN . VÉLA- OG VERKFÆRA ÞJÓNUS TA Réttingar # Sprautun