Feykir - 25.10.2000, Side 4
4 FEYKIR 36/2000
„Margir bændur komnir á sjötugsaldur og
þar yfir enn að slást við baldna fola“
Kári Marísson körfuboltamaður og fyrrum bóndi segir það sama gilda um sína íþróttaiðkun
„Aldurinn er svo afstæður. Margir bændur herna 1 Skagafirðinum
sem komnir eru á sjötugsaldur og þar yfir eru enn að slást við baldna
fola og finnst það ekkert mál. Og afhverju geta þeir þetta, það er
vegna þess að þeir eru þessu vanir, hafa verið að fást við hestana og
elta búpening alla tíð. Það er sama sagan með mig. Þó ég sá orðinn
48 ára, þá hef ég alltaf haldið áfram að æfa og það er lykillinn að því
að maður geti haldið sér í góðu líkamlegu formi. Ef maður stoppar
einhver ár, þá minnkar getan fljótt og nánast ógerlegt er að vinna það
upp. Mér finnst geysilega skemmtilegt að æfa alvöru körfubolta núna
í vetur og það er gaman að berjast við strákana sem ég hef verið að
þjálfa. Ég held að þeim líki það líka ágætlega að geta barið svolítið
á karlinum og náð sér niðri á honum”, segir Kári Marísson gamli
landsliðsmaðurinn í körfubolta og fyrrum bóndinn í Skagfirðinum,
sem tók upp á því í sumar að fara að æfa með úrvalsdeildarliði Tinda-
stóls í körfubolta og hefur verið að spila svolítið með liðinu að und-
anfömu. Kári vill hinsvegar gera lítið úr því, og segir aðalatriðið að
vera með, og hann vonist til að það hvetji ungu strákana til að gera
enn betur, og einnig að fólk átti sig
alt til að stunda íþróttir.
Kári segist snemma hafa ánetjast
íþróttunum og þær hafi alla tíð verið
stór þáttur í hans lífi, raunverulega ein
af grunnþörfunum. „Þetta er minn lífs-
stfll. Ef ég væri spurður að því, eins og
oft er nú gert í viðtölum, hvað sé upp-
áhalds skemmtistaðurinn, þá mundi ég
hiklaust nefna íþróttahúsið”, segir Kári.
í stangarstökki og fótbolta
„Ég ólst upp í Árbænum í Reykja-
vík, sem þá var eins og smáþorp fyrir
utan bæinn. Á þessum tíma vom flest-
ir með skepnur þarna í hverfinu,
þannig að ég komst fljótt í snertingu
við sveitalífið sem átti eftir að eiga
mikil ítök í mér.
Þetta var svolítið afskekkt, ekkert
íþróttafélag þá í Árbænum og engar
reglubundnar æfingar í hverfinu.
þannig að maður fylgdist mikið með
íþróttum í gegnum fréttimar og það var
verið að fást við það sem stjömumar á
þeim tíma voru að gera. Ég fór í
stangarstökkið af þvf að Valbjöm Þor-
láksson var svo góður í því. Fór í Ell-
ingsen og keypti mér bambusstöng
sem ég stökk á og útbjó mér gryfju og
setti sand í. Svo var ég líka rosalega
mikið í fótboltanum, af því að George
Best var svo góður. Ég var forfallinn í
fótboltanum frá sex til fimmtán ára ald-
urs og keppti nú eitthvað í yngri flokk-
unum. Var með KR í fimmta flokki og
einhvern tíma var ég með Fram, lík-
lega í 4. flokki.
- En hvernig gekk í stangarstökk-
inu, hvemig var að lenda í sandinum?
„Ég stökk nú þónokkuð hátt en man
ekki hver minn persónulegur árangur
var, en það var oft hörð lending í sand-
inum.
Svo þegar ég var 15 ára gamall þá
á því að það verður aldrei of gam-
tókst félaga mínum Stefáni Bjarkasyni
að draga mig með sér á körfuboltaæf-
ingu á Hálogaland með KFR. Ég varð
sti ax „húkkt” á þessari íþrótt og spilaði
síðan minn fyrsta landsleik þegar ég
var 18 ára gamall.
Fyrstu árin mín í körfuboltanum
spilaði ég með KFR, sem um þetta
leyti var að verða að körfuboltadeild
Vals og með Valsmönnum spilaði ég í
nokkur ár. Þá lá leiðin til Njarðvíkur,
þar sem ég réð mig til kennslu, og á
þessum árum var uppbyggingin að
byrja á Suðurnesjunum og Njarðvík-
ingar að leggja grunn að meistaraliði
sínu. Það var mjög gott og gaman að
vera í Njarðvík en ég var nú samt far-
in þaðan áður en meistaratitlamir skil-
uðu sér í hús. Það hafði verið draumur-
inn lengi að búa í sveit og við ákváðum
að slá til og flytja í Skagafjörðinn”.
Skemmtilegir strákar
Kári segist hafa vitað af því þegar
hann flutti ásamt fjölskyldu sinni í Sól-
heima í Blönduhlíð, að á Sauðárkróki
væri leikinn körfubolti og ágætlega lið-
tækir körfuboltamenn.
„Já ég hafði séð Tindastól spila og
mundi t.d. eftir Pálma Sighvats, Sveini
Sigfússyni og Kára Steindórs. Það var
síðan Páll Ragnarsson formaðurTinda-
stóls sem kom að máli við mig og
færði það í tal við mig hvort ég væri fá-
anlegur til að þjálfa hjá Tindastóli, en
þá voru margir efnilegir strákar að
koma upp í meistaraflokkinn”, segir
Kári og síðan þekkja eflaust þeir sem
áhuga hafa framhaldið.
- En er mikill munur á körfuboltan-
um í dag og þegar þú varst að byrja?
„Já geysilega mikill. Þetta er miklu
betri körfubolti sem er leikinn er núna
Kári Marísson á skrifstofu Tindastóls, en hann ber þann virðulega titil að
vera framkvæmdastjóri féiagins.
og aðalástæðan held ég að sé sú að
strákar fá núna miklu betri grunnþjálf-
un en áður, sem gerir þá að betri leik-
mönnum. Breiddin er líka miklu meiri,
fleiri betri lið og ég held að síðasti vet-
ur endurspegli það mjög vel, en þá
unnu fjögur félög fimm bikara”.
Kári hefur undanfarin misseri verið
framkvæmdastjóri Tindastóls og er
skrifstofa félagsins í íþróttahúsinu. Það
eru því hæg heimatökin hjá honum að
nýta sér æfinga- og lyftingaaðstöðuna
í íþróttahúsinu, og það gerði Kári
reyndar ennig í Varmahlíð meðan hann
bjó þar og þjálfaði og lék með Smáran-
um. Og í sumar þegarTindastóll byrj-
aði æfingar var frekar fámennt og Kári
tók því þátt í þeim, enda var líka mein-
ingin að hann aðstoðaði Val þjálfara á
bekknum í vetur.
„Mér fannst mjög gaman á æfing-
um og þegar ég var búinn að æfa í
nokkurn tíma sá ég að það væri óvit-
laust að halda bara áfram og æfa með
í vetur. Þetta eru mjög skemmtilegir
strákar og t.d. emm við mjög heppnir
með að útlendingamir og aðkomu-
mennimir í liðinu. Bandaríkjamaður-
inn, Rússinn og Grykkinn em geysi-
lega skemmtilegir karakterar og góðir
strákar.
Mikill íþróttaáhugi
En hefurðu eitthvað hugsað út í það
hvenær þú hættir að spila körfubolta?
„Jú ég hef stundum leitt að því hug-
ann hvemig sé að hætta því, en ætla
mér ekki að setja nein tímamörk. Mér
er það allavegana Ijóst að yfirleitt hætt-
ir fólk alltof ungt í íþróttum. Það em
margir að hætta vel innan við þrítugt,
einmitt þegar bestu árin eru eftir. Nú
við sáum það bara á Evrópumótinu í
knattspymu í sumar að þar vom nokkr-
ir að spila komnir fast að feilugu og
vom meira að segja lykilmenn í liðun-
um. Og hvað er framherjinn „gamli”
hjá Manchester United, Teddy Sher-
ingham, að gera. Það kæmi mér ekki á
óvart að hann ætti nokkur góð ár eítir.”
En nú heyrist gjaman talað um
Sauðárkrók og Skagfjörð sem íþrótta-
bæ. Finnst þér svæðið standa undir
nafni og er mikill íþróttaáhugi hér?
, Já ég verð var við mikinn áhuga og
mér finnst hann vera vaxandi. Það er
rnikill kraftur í öllum deildum, með
mesta móti held ég. Á fömum vegi fer
maður varla svo þessa dagana að fólk
sé ekki að spjalla um boltann og spá í
það hvenær skíðasvæðið verði opnað.
Við erum með mjög góða aðstöðu til
iðkunar, góða velli. gott fþróttahús og
gott skíðasvæði. Það vantar að vísu
sárlega hlaupabrautir og betri aðstöðu
fyrir frjálsíþróttafólk En Tindastóll
hefur verið að keppa við þá bestu mörg
undanfarin ár í mörgum greinum og ég
sé ekki fram á annað en svo verði í
framtíðinni. Ef vel er haldið á málum”,
segir Kári Marísson.