Feykir - 25.10.2000, Side 8
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
25. október 2000, 36. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
KJORBOK
Vinsœlasti sérkjarareikningur íslendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
jslands
_____ í forystu til framtfðar '
Útibúið á Sauðárkróki - S: 453 5353 .
Sveitarstjórn Húnaþing vestra
Skiptar skoðanir um byggingu
íþróttahúss á Hvammstanga
Mjög skiptar skoðanir eru
um þau áform meirihluta
sveitarstjórnar Húnaþings
vestra að ráðast í byggingu í-
þróttahúss á Hvammstanga.
A fundi menningar- og æsku-
lýðsráðs í síðasta mánuði var
mæit gegn fyrirhugaðri í-
þróttahússbyggingu á þeirri
forsendu að hingað til hafi
sveitarféiaginu ekki tekist að
tryggja nægjanlegt fjármagn
til frágangs, viðhalds og
rekstrar þeirra íþróttamann-
virkja sem fyrir eru, svo sem
vellina uppi í Kirkjuhvammi
og á Reykjum.
Allmiklar umræður urðu um
þessa fundargerð á fundi sveit-
arstjórnar nýlega. Elín R. Lín-
dal oddviti lagði fram bókun
þar sem borin er til baka full-
yrðing frá nefndum fundi
menningar- og æskulýðsráðs
um að „eifiðlega gangi að fá
fjármagn til reksturs og við-
halds þeirra mannvirkja sem
fyrir eru", og segir Elín þær
fullyrðingar út í hött, þar sem á
þessu ári verði varið 20,8 rnillj-
ónum til æskulýðs- og íþrótta-
mála. En til samanburðar var
varið til þeirra mála 7,7 milljón-
ir á árinu 1998. Og alls voru
framlög til viðhalds íþrótta-
mannvirkja orðin á jjessu ári
7,724 milljónir, 21. september
sl.
Olafur Oskarsson í Víðidals-
tungu einn fulltrúi minnihlut-
ans, vakti athygli á því að meiri-
hluti fagnefndar sveitarstjómar
mælti gegn byggingu íþrótta-
húss á Hvammstanga. Tók O-
lafur undir þessi sjónarmið og
sagði íþrótthússbygginguna frá-
leita.
Þorsteinn Helgason á Foss-
hóli lagið fram langa bókun á
fundinum þar sem hann leggst
einnig gegn byggingu íþrótta-
hússins. I fyrri hluta bókunar-
innar skýrir hann þau sjónarmið
sín að sveitarsjóður sé ekki í
stakk búinn að ráðast í svo stóra
framkvæmd og við það mundu
skuldir sveitarfélagsins vaxa
þannig að óvarlegt sé. Síðan
segir Þorsteinn í bókun sinni:
„Við framkvæmd eins og
byggingu íþróttahúss, sem er
mjög stór framkvæmd fyrir
sveitarfélag af okkar stærð, þaif
að vera almenn samstaða en
hún er alls ekki fyrir hendi.
Einnig fer íbúum fækkandi ár
frá ári og því rniður er ekki að
sjá neina breytingu á því á næst-
unni. Þá er gott íþróttahús á
Laugarbakka sem dugir okkur
alveg við þær aðstæður sem við
búunt við í dag þannig að bygg-
ing íþróttahúss yrði offjárfest-
ing sem engan veginn er hægt
að verja við núverandi aðstæð-
ur. Að framansögðu er ég
algjörlega á móti byggingu
íþróttahúss að svo stöddu og
nær væri að vinna að því að
þjappa saman fólki í sveitarfé-
laginu en ekki sundra því.”
Skeifa bjargaði sér í annað sinn
Það varð lítið úr því að Guð-
mundur Valtýsson bóndi á Ei-
ríksstöðum, og umsjónarmaður
hagyrðingaþáttar Feykis, leiddi
hana Skeifu 11 vetra ær til slátr-
unar í jxssari viku, eins og hann
var búinn að ákveða. Þegar
Guðmundur kom að fjárhúsun-
um sl. miðvikudagsmorgun
hafði Skeifa borið ljómandi fal-
legum hrút. Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem Skeifa bjargar lífi
sínu og hún og Guðmundur hafa
reyndar ekki alltaf verið sátt í
hvors annars garð.
„Guðmundur segist leggja
ntikið upp úr góðum samskipt-
um við sínar skepnur og hver
kind heiti sínu nafni. „Mér er
ekki vel við að mínar kindur
verði eldri en tíu vetra og því var
ég búinn að ákveða að farga
Skeifu síðasta haust. En þá kom
hún ekki fram í smalamennsk-
unni og það var ekki fyrr en um
20. nóvember, eftir hríðarbyl er
gerði, að hún kom hingað niður
að húsunum, með fallega gimb-
ur sem hún hafði borið um vor-
ið. Eg sá að það var fullseint að
farga henni úr því sem komið
var, en þegar Skeifa var geld í
vor en feit og pattaraleg sá ég að
það væri góður tími að farga
henni nú í haust. Það má svo
segja að hún hafi leikið á mig
núna annað haustið í röð.”
Og Guðmundur bætir því við
að hann og Skeifa hafi reyndar
ást við áður. „Það var fyrir
nokkmm ámm að það brá svo
við að Skeifa vildi ekki annað
lambið sem hún bar. Eg var á-
kveðinn í því að láta hana ekki
komast upp með það og hélt
henni héma heima fram í júlí.
Hún var greinilega langt frá því
að vera sátt við mig en það gekk
þó að lokum að venja lambið
undir. Þetta var lítil gimdur sem
ég kallaði Ögn og eftir þetta bras
ákvað ég að láta hana lifa, þó
stærðin væri nú ekki eins og
lífgimbrar eiga að vera. Og Ögn
hefur kunnað að meta þetta því
núna í haust kom hún t.d. með
tvö rígvæn lömb af fjalli sem
lögðu sig á 17 kíló hvert og þær
hafa nú ekki gert það margar
betur", segir Eiríksstaðabóndinn.
Beðið eftir skólarútunni
Bræðumir Kári og Loftur Páll Eiríkssynir frá Beingarði í
Hegranesi vom að bíða eftir skólabílnunt þegar ljósmyndari
Feykis rakst á þá á dögunum. Aðspurðir sögðu þeir að það væri
skemmtilegt í skólanum. en helsta áhugamál þeirra er samt
fótboltinn og körfuboltinn, þó svo að hestamennskan sé
skemmtileg líka. Þeir bræður em á Arvist skóladagheimilinu á
Sauðárkróki, en þar heyrist venjulega kallað þegar skólabíllinn
rennir í hlað: „Ólafshús er kornið”, en það er Óli vert á Ólafs-
húsi sem annast skólakeyrsluna úr Hegranesi.
Farandsölum úthýst
úr félagsheimilum
Byggðarráð Skagafjarðar
hefur samþykkt að beina því
til hússtjórna félagsheimila
og annarra umsjónarmanna
húsnæðis í eigu sveitarfélags-
ins að leigja ekki húsnæði til
farandsöluaðila.
Þetta er gert vegna tilmæla
frá verslunareigendum á Sauð-
árkróki, en í bréfi dagsettu 6.
október 2000, óskuðu þeir eft-
ir því að húsnæði sem er í
rekstri eða eigu sveitarfélagsins
verði ekki leigt til farandsölu-
aðila. Verslunareigendur munu
vera orðnir langþreyttir á því að
nokkur félagsheimili á svæðinu
haft verið leigð undir farand-
sölu. Verslunareigendum fmnst
þessi samkeppni ekki sann-
gjöm og viðeigandi þegar þeir
keppast við að veita íbúum
svæðisins þjónustu allt árið.
<&)
TOYOTA
- tákn um gæði
...bílar, tiyggingar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BROTJABS
SUÐUBGÖTU 1 SÍMI 453 6950