Feykir


Feykir - 08.11.2000, Blaðsíða 1

Feykir - 08.11.2000, Blaðsíða 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Stefnir í langt kennaraverkfall Fremur tómlegt var um að lit- ast við Fjölbrautaskóla Norð- urlands vestra í gær, enda skall á verkfáll framhalds- skólakennara á miðnætti á mánudagskvöld. Skólameist- ara og stundakennara er heimilt að kenna við skólann í dag, en síðan eru lýkur á að allt skólastarf stöðvist enda ekki útlit fyrir að deilan leysist í bráð. Flestir utanbæjamem- endur eru farnir til síns heima. Framhaldsskólakennarar voni mættir í bækistöð sína í verkalýðshúsinu við Sæmundar- götu í gærmorgun. Þeir voru þar að fara yfir síðustu fréttatilkynn- inguna vegna samninganna, til- boð ríkisins um samning til þriggja ára og alls 13% hækkun á þéirn tíma, en um leið aukna kennsluskyldu, að mati kennar- anna. Það var greinilegt að þeim líkaði ekki þetta tilboð og bein- línis hlógu. „Hvemig í ósköpun- um dettur mönnum í hug að bjóða svona hungurlús”, var ein- um þeirra að orði og svo virðist eftir gangi viðræðna að dæma að þetta gæti orðið langt verkfall. Kennarar Fjölbrautaskólans samankomnir í athvarfi sínu í verkalýðshúsinu í gær. Hjálmar sækir um í Dómkirkjunni Formaður Félags eldri borgara í A.-Hún.; Héraðsnefndin hefur brugðist hrapalega skyldu sinni „Niðurstaða alls þessa er að héraðsnefnd Austur - Húna- vatnssýslu hefur hrapalega brugðist skyldu sinni að vera brjóstvöm héraðsbúa til góðra mála og í stað þess orðið til vandræða með því að klúðra Flúðabakkamálunum svo sem orðið er og valda þeim rúmlega 200 einstaklingum sent em í Félagi eldri borgara í Austur - Húnavatnssýslu ófyrirsjáanleg- um erfíðleikum og þó einkum íbúum Flúðabakkaíbúðanna”, segir Sigursteinn Guðmunds- son formaður Félags eldri borgara í A.-Hún. í grein í Feyki í dag vegna fréttar í síð- asta blaði Feykis unt málefni félagslegra íbúða eldri borgara á Blönduósi. Sigursteinn rekur ntálin frá upphafi þegar ráðist var í bygg- ingu íbúðanna og segir að aldrei hafi staðið til að Félag eldri borgara í A.-Hún. sæi um greiðslur varðandi íbúðir eldri borgara. Stjórn félagsins hafi aðeins starfað sem milliliður milli héraðsnefndarinnar og íbúðareigenda. Það sé því al- rangt sem fram korn í um- ræddri frétt að Félag eldri borg- ara hafi neitað að innleysa íbúð Jökuls Sigtryggssonar. Sigursteinn segir engu að síður staðreynd að héraðs- nefndin hafi á undanfömum mánuðum sýnt inikla viðleitni til þess að leysa umrætt mál nteð samkomulagi og í sam- vinnu við Félag eldri borgara og íbúðalánasjóð, en nú á síð- ustu stundu (24. okt.) kippt að sér hendinni og slegið striki yfir öll orð og samþykktir til lausnar málsins. „Að lokum vænti eg þess að þessi frétt mín birtist ekki á veiri stað en umrædd frétt urn félagslegar íbúðir aldraðra í A,- Hún. Hafi Feykirekki krufið til mergjar og fjallað um fjárhags- erfiðleika sveitarfélaga vegna félagslegra íbúða væri rétt, að það yrði tekið til athugunar ef það mætti verða til þess, að þingmenn almennt tækju sig til og leystu þennan vanda sveit- aifélaganna, vanda sem verður vart leystur nema innan veggja Alþingis”, segir Sigursteinn en umrætt mál á Blönduósi mun m.a. hafa borið á góma á fundi þingmanna kjördæmisins með héraðsnefnd A.-Hún. nú í haust. „Af tveimur gefandi og skemmtilegum störfum þá kallar kirkjan meira. Mér finnst þetta rétti tíminn og í raun annaðhvort fyrir mig að hrökkva eða stökka. Nú þegar kjördæmabreytingin er framundan þá var annaðhvort fyrir mig að gefa því tvö til þrjú körtímabil eða söðla um núna. Það er búið að brjótast í mér síð- an í vor að sækjast eftir Dóm- kirkjunni. Þetta er gamall draum- ur og nú er að bíða og sjá hvað verður, en ég hef svo sem ekkert annað en reynsluna og orðspor að heiman, jxikk sé ykkur.” Það kom eins og þmma úr heiðskýru lofti er það vitnaðist að morgni mánudags að Hjálmar Jónsson fyrsti þingmaður kjör- dæmisins sæktist eftir starfi dóm- kirkjuprests. í samtali við útvarp- ið þann dag kom fram að Hjálm- ar hefði fyrirætlanir um að helga sig kirkjunni í framtíðinni, en hann á að baki langt og farsælt prestsstarf fyrst í Bólstaðahlíðar- prestakalli í A.-Hún. og síðan á Sauðárkróki. Þá hefur Hjálmar verið í Hólanefnd og sálmabók- amefnd. Umsóknarfrestur um starf dómkirkjuprestsertil 15. nóvem- ber og mun nýr prestur koma í Dóntkirkjuna 1. febrúar. Hjálmar hefur gefið það út að fái hann starfið ætli hann að hætta í póli- tíkinni, enda hafi hann ekki viljað blanda þessu tvennu saman. Gera verður ráð fyrir að Hjálmar standi mjög sterkur varðandi umsókn um Dómkirkjuna. en þess má geta að hann hefur áður sýnt því starfi áhuga, það var áður en hann snéri sér að pólitíkinni, en hætti þá við af persónulegum ástæðum. Hjálmar var kjörinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norð- urlandi vestra fyrst árið 1995, en hafði á kjörtímabilinu á undan setið sem varaþingmaður. —ICTcH^fff chiDI— Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA mr bílaverkstæði Simi: 453 5141 Sæmundargata Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140 JfcBílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir 0 Réttingar Sprautun

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.