Feykir - 15.11.2000, Side 7
39/2000 FEYKIR 7
Sigur þrátt fyrir spennufall
Það var engu líkara en
spennufall hefði orðið í Tinda-
stólsliðinu eftir undanúrslitin í
Kjörísbikamum. Stemmnings-
leysi, em einkunnarorðin um leik-
inn gegn Skallagrími í gærkveldi.
Leikurinn var jafn og spennandi
allan tímann, en samt ekki
skemmtilegur, enda lögðu gest-
imir greinilega áherslu á að
dempa niður hraðann.
Það vom gestimir sem sýndu
meiri baráttu Iengst af og ekki fyrr
en í síðasta leikhlutanum sem
heimamenn tóku við sér með
Shawn Mayers í broddi fylkingar.
Tvær þriggja stiga körfur frá
Mayers í röð undir lokin gerðu út
um leikinn, en annars var hittn-
inni ekki fyrir að fara hjá Stólun-
um í gærkveldi.
Nokkur hiti færðist í leikinn
undir lokin og skall Ómai' Sig-
marsson leikmaður Tindastóls í
gólfið eftir samskipti við Sigmar
Egilsson og vildi Ómar fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð, en þessir
leikmenn vom búnir að kljást all-
an leikinn.
Hjá Tindastóli var Mayers
besti maður eins og oftast áður og
Svavar barðist mjög vel, en flest-
ir aðrir vom í daufara lagi. Hjá
Skallagrími átti Warren Peeples
mjög góðan leik
Lokaatölur leiksins urðu
87:78 fyrir Tindastól. Staðan í
leikhléi var 42:41.
Stig Tindastóls: Shawn
Mayers 24, Tony Pomones 17,
Kristinn Friðriksson 11, Láms
Dagur Pálsson 10, Michail An-
dropov 10, Svavar Birgisson 9,
Friðrik Hreinsson 4 og Ómar Sig-
marsson 2. Stigahæstir hjá
Skallagrími vom Warren Peeples
með 25 stig og Sigmar Egilsson
með 14.
Þú verður ekki straumlaus með
Data-rafgeymi í bílnum
OLÍS - umboðið
Verslun Haraldar Júlíussonar
Skagafjörður
Aðsetursskipti!
Til þess að íbúaskrá 1. desember 2000 verði sem réttust,
minnum við á nauðsyn þess að tilkyima aðsetursskipti,
einnig þau sem fyrirhuguð eru til l.desember , til skrifstofu
Skagafjarðar sem allra fyrst og í síðasta lagi 27. nóvember nk.
Sveitarstjóri.
Nr. 319.
Nr. 320.
Nr. 321.
Hver er
maðurinn?
Tvær myndir þekktust úr
síðasta þætti. Báðar myndimar
höfðu vegna mistaka verið
númeraðar 318. Karlmaðurinn
mun vera Magnús Andrésson
f. 1904 stórkaupmaður í
Reykjavík. Asdís Vilhelms-
dóttir benti okkur á þetta og
þekkti einnig Hrefnu Gísla-
dóttur húsfreyju í Stóm-
Sandvík, en mynd hennar bar
reyndar einnig sama númer.
Margir þekktu Hrefnu og
kunnum við öllum bestu
þakkir fyrir að hafa samband
við okkur.
Nú eru birtar þrjár myndir
sem koma sín úr hvorri áttinni.
Þau sem þekkja myndimar em
vinsamlegast beðin að hafa
samband við Héraðsskjalasafn
Skagfirðinga. Síminn er 453
6640.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Til sölu tvö negld jeppadekk,
sem ný, 15” á Bílasölu Hilmars.
Upplýsingar í síma 453 5197.
Til sölu fjórar ársgamlar 14”
álfelgur ásamt dekkjum, Alessio.
Verð 27.000. Upplýsingar í
síma453 5862.
Til sölu vetrardekk 31” BF
Goodrich Mud-Terrainan T/A.
Lítið notuð jeppadekk, sem ný
og seljast á hálfvirði. Upplýsingar
í síma 453 5526 og 897 5526.
Til sölu Polaris vélsleði árg.
‘94, ekinn 4.300 mflur. Verð
250.000. Upplýsingar í síma
4527472.
Húsnæði!
Þriggja herbergja fbúð í
Sjálfsbjargarhúsinu er til leigu
strax. Upplýsingar gefur Þóra
Kristjánsdóttir í síma 453 5405.
Gott einbýlishús í nágrenni
Sauðárkróks til leigu. Upplýs-
ingar í síma 453 5558.
Ibúðir til leigu, tveggja
þriggja eða sex herbergja.
Upplýsingar í síma 453 6665.
Félagsvist!
Félagsvist verður spiluð í
Höfðaborg Hofsósi fimmtu-
daginn 22. nóvember nk. kl.
21. Kaffiveitingar
fjölmennum.
F.E.B.H.
Askrifendur góðir!
Munið eftir bankagíróinu
fyrir áskrifargjöldunum
Naumt tap á móti KR
Tindastólsmenn töpuðu
naumlega fýrir KR-ingum í und-
anúrslitum Kjörísbikarsins í
Smáranum í Kópavogi sl. laugar-
dag, 78:80, þar sem KR-ingar
skoruðu úrslitakörfuna á síðustu
sekúndubrotum leiksins.
Um 300 áhangendur Tinda-
stóls lýlgdu liðinu suður og settu
skemmtilegan svip á leikinn sem
var mjög spennandi og skemmti-
legur allan tímann, en úrslitin ullu
að sjálfsögðu vonbrigðum, enda
vitað að Tindastólsliðið á enn tals-
vert inni og er líklegt til að standa
sig mjög vel í deildinni í vetur.
Vöruflutningar
Sauðárkrokur - Skagpijörður
Daglegar ferðir
Vörumóttaka í Reykjavík hjá
Aðalflutningum Héðinsgötu 2
Sími 581 3030
Bjarni Ilaraklsson sími 453 5124.
íl
Skagafjörður
Greiðsluáskorun
Innheimta Sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar hér með á
fasteignagjaldendur í sveitarfélaginu, sem ekki hafa staðið
skil á fasteignagjöldum álögðum 2000 og féllu í gjalddaga
1. júlí 2000, ásamt eldri gjöldum, að greiða þau nú þegar og
eigi síðar en 15 dögum frá móttöku áskorunarinnar.
Að þeim tíma liðnum verður beðið um nauðungarsölu á
viðkomandi fasteign, án frekari viðvörunar.
Sauðárkróki 8.11.2000
Skagafjörður