Feykir - 06.12.2000, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 42/2000
Þrjár stofnanir á Blönduósi
Fá viðurkenningar
fvrir ferlimálin
Þrjár stofnanir á Blönduósi
fengu viðurkenningar frá
Sjálfsbjörgu samtökum fatl-
aðra fyrir gott aðgengi og vel-
vilja til ferlimála fatlaðra. Þetta
eru Heilbrigðisstofnunin á
Blönduósi, Gmnnskólinn og í-
þróttahús grunnskólans. Til
stóð að veita viðurkenningam-
ar á alþjóðadegi fatlaðra 3. des-
ember sl. en ekki var unnt að
koma því við og verður það
gert á næstunni, að sögn Sig-
urðar Einarssonar fram-
kvæmdastjóra Landssamtaka
Sjálfsbjargar.
Aðgengi á gamla Héraðs-
hælinu á Blönduósi, eins og
það var kallað, var bætt í
tengslum við nýbyggingu
stofnunarinnar. Þá var ráðist í
metnaðarfullt átak varðandi
ferlimál gmnnskólans, en þarer
einn hreyfíhamlaður nemandi
við skólann sem ekur um á litl-
um rafmagnsbfl og kemst hann
alla sinna ferða um skólann. Þá
vom ferlimálin hönnuðum og
byggingaraðilum ofarlega í
huga þegar íþróttahúsið var
byggt í byrjun áratugarins.
Sigurður Einarsson sagði að
Blönduósingar legðu greinilega
mikinn metnað í ferlimálin og
ættu heiður skilið fyrir sinn
skerf til þeirra. Á höfuðborgar-
svæðinu fengu fjórar stofnanir
viðurkenningar fyrir aðgengis-
málin og einnig fékk ráðhúsið í
Þorlákshöfn slíka viðurkenn-
ingu. En eins og áður segir á
eftir að veita þessar viðurkenn-
ingar. Það em forystufólk
Sjálfsbjargarfélagsins ÍA.-Hún.
sem mun annast það á Blöndu-
ósi.
Vörufhitningar
Sauðárkrókur - Skagaíjörður
Daglegar ferðir
Vörumóttaka í Reykjavík hjá
Aðalflutningu m Héðinsgötu 2
Sími 581 3030
Bjarni Haraldsson sími 453 5124.
Sveitarfélagið Skagafjörður
Fyrstu íbúasam-
tökin stofnuð
í Varmahlíð
Nýlega voru stofnuð fbúasamtök í Varmahlíð,
fyrstu fbúasamtökin sem stofnuð eru í Skaga-
firði. Markmið samtakanna er að vinna að ýms-
um umbótum og framfaramálum í hverfinu í
góðri samvinnu við Sveitarfélagið Skagafjörð.
Á þessum fyrsta fundi samtakanna voru ým-
iss mál rædd, en mesta umfjöllun fengu málefni
Vatnsveitufélagsins og umferðar- og öryggismál.
Gerðar voru samþykktir í þeim efnum og nýkjör-
inni stjórn falið að koma þeim á framfæri við
rétta aðila. Einnig kom til tals að vinna að félag-
málum í þorpinu og liklegt að samtökin bjóði
fram krafta sína og aðstoð við jólaball fyrir börn-
in, áramótabrennu og kvöldstunda af ýmsum
gerðum fyrir alla aldurshópa.
LFm 30 manns mættu á þennan stofnfund sem
haldinn var að tilstilli þeirra Helga Gunnarsson-
ar, Konráðs Gíslasonar og Péturs Víglundssonar.
f stjóm voru kosnir Helgi Gunnarsson, Hafsteinn
Harðarson og Karl Lúðvíksson og þau Hallgrím-
ur Gunnarsson og Helga Þorsteinsdóttir til vara.
Konráð og Pétur sögðust ekki gefa kost á sér í
stjóm sökum aldurs og krankleika. Þar sem íbúa-
samtökin eru aðeins óformleg samtök er ekki um
félagsskrá eða félagsgjöld að ræða, enda eru þau
aðeins fyrir þá sem vilja og áhuga hafa á málefn-
um þorpsins.
Leiðrétting á
Ameríkubréfi
í seinasta tölublaði Feykis gat að líta ágætt
bréf frá Hilmari Skagfield, þar sem hann
ræddi m.a. um sakamenn þá sem munu hvfla
í Dysjagili. Þar segir hann m.a.: „Ég hefí oft
hugsað um þennan atburð. Skrifaði ég sr.
Gísla í Glaumbæ á sínum tíma um þetta mál,
en ekkert hefur verið gert í því að gefa þess-
um ólánssömu piltum syndaaflausn, en
kannski skiptir þetta ekki svo miklu máli eft-
ir um 450 ár.”
Vegna þessara orða vil ég að eftirfarandi
komi fram: Mér hefur aldrei borist bréf ffá
Hilmari og við höfum aldrei rætt þetta mál.
Hins vegar hringdi biskup í mig þann 16.
ágúst s.l. eftir að Hilmar hafði talað við hann,
og spurði biskup hvort ég gæti skoðað þetta
mál. Hann gaf mér einnig upp rafpóstfang
Hilmars og ég sendi samdægurs eftirfarandi
bréf:
„Sæll Hilmar. Biskup hringdi í mig í dag
og sagði mér frá erindi þínu varðandi Dysja-
gil. Ég ræddi þetta við föður minn sem kann-
aði þetta fyrir löngu síðan, en þá reyndist ekki
áhugi hjá þáverandi þjóðminjaverði. Ég er til-
búinn að taka málið upp á ný og gaman væri
að heyra ffá þér nánar um þínar hugmyndir.
Kveðja. Gísli Gunnarsson, Glaumbæ.”
Ekkert hef ég enn heyrt frá Hilmari.
Greinilegt er að hér er um einhvem misskiln-
ing að ræða og gott væri ef ritstjóri Feykis
kæmi okkur Hilmari saman svo að hægt verði
að finna farsæla lausn á málinu. Ég tel að
þessa sögu eigi að varðveita og ég trúi því, að
Guð dæmi menn ekki eftir því hvar þeir eru
grafnir.
Með bestu kveðjum.
Gísli Gunnarsson.
Ljóðaþýðingar frá Baldri Pálma
Baldur Pálmason heitir maður
sem á ættir sínar að reka bæði í
Opið hús
Næstkomandi laugardag,
9. desemberfrá kl. 12:00 til kl. 15:00
verður opið hús hjá Mjólkursamlaginu og gefst þá almenningi
kostur á að líta inn og skoða vinnslulínur samlagsins og bragða
á framleiðsluvörunum.
Starfsmenn samlagsins verða á staðnum, leiðbeina gestum
og kynna þeim starfsemina
Allir eru boðnir velkomnir.
Mjólkursamlag
Skagafjörð og Húnaþing. Móð-
urættin er húnvetnsk og fæddist
Baldur í Köldukinn á Ásum.
Föðurættin er aftur á móti úr
Skagafirðinum, en Baldur var á
sínum tíma meðal þekktustu
frammámanna f skákhreyfing-
unni og einnig kunnur útvarps-
maður, var m.a. með bamatíma
um árabil í útvarpinu.
Baldur hefur talsvert rýnt í
bókmenntir og fyrir um tveim-
ur áratugum sendi hann frá sér
tvær Ijóðabækur. Einnig hefur
hann stundað ljóðaþýðingar um
árabil. Nýlega kom út út falleg
ljóðabók frá Baldri, ljóðaþýð-
ingar sem bera heitið „Á lauf-
blaði einnar lilju”. Bókina gef-
ur Baldur út í minningu föður
síns Pálma Jónassonar bónda á
Álfgeirsvöllum í Skagafirði
(1898- 1955).
Ljóðin í bókinni eru eftir
heimskunna höfunda, flesta
norska, s.s. Nordahl Grieg,
Amulf Överland, Tarjei Vesaas,
Ivar Orgland, Hans Börli, Rolf
Jacobsen, Gunvor Hafmo, Áse-
Marie Nesse, William Heinesen,
D.H. Lawrance, William C.
Williams, Robert Louis Steven-
son, Oscar Hammerstein og
marga fleiri.
Sjómannsblóð
John Masefield
Ég verð að halda til hafs á ný
til að hlýða öldunnar klið,
ekki hárri, villtri hafsins rödd
er hægt að þybbast við.
Nú bið ég um vind, að voðir skips
vaði í skýjaþvargi,
um að mási við kinnung máttug
hrönn
og máfur gargi.
Ég verð að halda til hafs á ný,
á ið hrjúfa ólgusvið
meðal fugla og hvala f hvössum
storm,
sem hvín mér gagnaugun við.
Ég bið þess loks að sjóarasögn
sögð verði litríku orði
og gefíst mér síðast góður
svefn,
er geng ég frá borði.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Myndsími 453 6703. Farsími 854 6207. Netfang:
feykir @ krokur. is. Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Fréttaritari: Örn Þórarinsson.
Blaðstjórn: Jón F. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guð-
brandsson, Sæmundur Hennannsson. Sigurður
Ágústsson og Stefán Árnason.
Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf.