Feykir - 06.12.2000, Blaðsíða 6
6 FEYKIR 42/2000
Hagyrðingaþáttur 307
Heilir og sælir lesendur góðir.
Einhvemtíma mun ég hafa birt í
þessum þáttum nokkrar vísur eftir
Bjöm Sveinsson er síðast bjó á Gili í
Borgarsveit í Skagafirði. Hafði hann
búið á Botnastöðum í Svartárdal og
flutt þaðan að Þverárdal og síðan yfir í
Skagafjörðinn að Gili. Þegar hann flutti
að Þverárdal mun hann hafa ort svo.
Hvar, sem eyða ævi skal
ég til reiðu svara.
Upp á leiðan Laxárdal
líst mér neyð að fara.
Bjöm var glaðsinna maður og
grínisti og orti margt snyðugt. Um
svipað leyti og hann bjó á Botnastöð-
um, átti heima á bæ einum framarlega
í Langadal ung og falleg heimasæta.
Leist mörgum vel á hana, en tveir vom
sérstaklega tilnefndir sem aðdáendur
hennar og var annar þeirra Sigurjón
sem kallaður var Norðurlandspóstur
frá Asláksstöðum í Eyjafirði, en hinn
Magnús frá Miðhúsum í Þingi. A þess-
um bæ var hestur einn bleikur að lit
mesti stólpagripur, sem hafði þann kost
meðal annarra að kunna ekki að hræð-
ast. A þessum hesti var m.a. keyrt á
túnið úr hlandforinni á hverju vori.
Bjöm gerði grínbrag um þetta ástand
allt og mun hann hafa verið kunnur í
héraðinu og jafnvel sunginn í gleðskap.
Því miður hefur mér ekki tekist að hafa
upp á nema fyrsta erindinu, en bið les-
endur sem eldri em og kannast við
ljóðið að gefa mér upplýsingar þar um.
Dunar af ánægju dalurinn langi
dæmalaust skelfing er fjömgt þar allt,
Sigurjón póstur og Miðhúsa Mangi
á mænisás kærleikans vega þar salt.
Eg veit ekki hvor þeirra vinnur þann leik
en vona að þeir fæli ekki ‘ann hland-
forar Bleik.
Það mun hafa verið Bjami Jónsson
bóndi á Bollastöðum í Blöndudal sem
orti svo eftir að hafa hugleitt vistaskipt-
in.
Þegar styttist leiðin löng
loks í sjónarmáli,
ætli ég heyri englasöng
eða snark í báli.
Ásgrímur Kristinsson ffá Ásbrekku
fór ekki dult með andstyggð sína á
órímuðum kveðskap. Um rímleysis-
skáldin yrkir hann svo.
Geymdi þjóðin andans auð
unni ljóðum hreinum.
Er nú glóðin alveg dauð
aska í hlóðarsteinum.
Fáum betur yrkir óð
atóms letur kálfur.
Út á setur ýmsra ljóð
ekkert getur sjálfur.
Margir eiga að ég tel
andans forða í sjóði.
Aldrei get ég unað vel
órímuðu ljóði.
Drjúgum tryllist þessi þjóð
þroska spillir sönnum
að hlusta á illræmd atómljóð
og öskur í villimönnum.
Um hinn landsfræga Láms í Gríms-
tungu orti Ásgrímur svo.
Láms er í kolli klár
kunnur að orðaglettum.
Hefur nærri hundrað ár
hampað pela í réttum.
Þessa kunnu vísu Vatnsenda Rósu
kannast margir við.
Man ég okkar fyrri fund
forn þó ástin réni.
Nú er eins og hundur hund
hitti á tófugreni.
Þá minnir mig að þessi vel gerða
vísa hafi í mín eyru verið eignuð Rósu.
Hef ég lengi heimsfögnuð
haft og gengið bjarta.
Nú veit enginn utan guð
að hvað þrengir hjarta.
Tekst mér reyndar að rifja upp aðra
hringhendu sem ég held að sé eftir
Rósu.
Ég hef friðar enga stund
átt, en kviðið harmi.
Mér hefur liðið eins og und
opin sviði í barmi.
I síðasta þætti birtust vísur eftir
Gunnar Einarsson frá Bergskála. Hafa
nú þættinum borist þrjár hringhendar
vísur eftir Gunnar og mun sú fyrsta ort
um Tindastólinn.
Lít ég hóla og hnjúka á
hafsins bóli synda.
Fingur gjólu glettnir slá
gamla stólinn Tinda.
Brostinn streng og flúinn fdð
finn ég genginn máttinn.
Stóð þó lengi lúinn við
lífsins engjasláttinn.
Ei skal kvarta leiðarljós
lýsir svartar nætur.
Engilbjarta á ég rós
innst við hjartarætur.
Einhverju sinni mun Jóhann Magn-
ússon á Mælifellsá hafa ort svo er hann
var vörður á Kili.
Nú skal hefja nýjan brag
nú er gátan flókin.
Einn var hér í allan dag
í áflogum við lókinn.
Þorsteinn Magnússon frá Gilhaga,
bróðir Jóa, mun eitt sinn hafa ort svo á
dansleik.
Það er alveg eins að sjá
í fjárhúsi og ranni.
Lambhrútur þegar lembir á
og Lauga býðar upp manni.
Bið ykkur þar með að vera sæl að
sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Sigurganga
Tindastólsmanna
heldur áfram
Sigurganga Tindastóls-
manna heldur áfram í körfu-
boltanum. Þeir gerðu sér lítið
fyrir og sigmðu Isfirðinga
98:88 fyrir vestan sl. sunnu-
dag. Tindastóll er nú í öðm
sæti deildarinnar með 14 stig,
tveimur færri en topplið
Keflavíkur. í næstu sætum
eru síðan Haukar, Grindavík
og Njarðvík með 12 stig en
Tindastólsmenn mæta einmitt
Haukum í mjög mikilvægum
leik á Króknum annaðkvöld,
fimmtudagskvöld.
Tindastólsmenn höfðu
fmmkvæðið allan leikinn
gegn ísfirðingum á sunnu-
daginn og voru með 48:39
fomstu í hálfleik. I byrjun
seinni hálfleiks náðu þeir síð-
an 17 stiga forustu og segja
má að þar með hafi bjöminn
verið unninn, sigurinn var
aldrei í hættu eftir það, jafnvel
þó að þeir Svavar og An-
tropov þyrftu að yfirgefa völl-
inn með fimm villur þegar
um fjórar mínútur voru eftir
að leiknum.
Svavar Birgisson, sem
verið hefur að stimpla sig
sterkur inn í síðustu leikjum,
blómstraði í þessum leik. Þá
var Mayers geysisterkur að
vanda sem og Kristinn Frið-
riksson og Pomones og Ómar
vom drjúgir í leikstjómenda-
hlutverkinu.
Stig Tindastóls skomðu:
Svavar Birgisson 28, Kristinn
Friðriksson 24, Shawn
Mayers 21, 15 fráköst, 6
stolnir boltar og 5 varin skot,
Tony Pmones 6 og 7
stoðsendingar, Ómar Sig-
marsson 4 og 6 stolnir boltar,
Mikhail Antropov 2 og 3 var-
in skot og Láms Dagur Páls-
son 2 stig.
Árnijónsson
Minningarorð
Enn eitt ótímabært skarð er
höggvið í hópinn okkar. Ámi
Jóns eins og við kölluðum
hann fór í sína síðustu ferð
alltof fljótt og við enn minnt á
hverfulleika lífsins.
Skagafjörður skartaði sínu
fegursta er árgangur ‘57 frá
Sauðárkróki hittist í haust. í
yndislegu veðri út í Drangey
var sem tíminn stæði kyrr og
hugur okkar reikaði til ljúfsára
mótunaráranna á Króknum.
Þessir endurfundir em okkur æ
dýrmætari eftir því sem árin
líða. Við söknuðum Áma Jóns
í þessari ferð en á sama tíma
var hann í Belgíu að horfa á
kappakstur. En bflar og
kappakstur vom hans yndi. Er
nokkur okkar hittu Áma áður
en hann fór í þá ferð mátti
finna mikla tilhlökkun en um
leið vonbrigði með að árgangs-
mótið skyldi verða á sama tíma.
Árni okkar Jóns var ljúfur,
traustur og hjálpfús. I kringum
hann ríkti glaðværð og glettni.
Við vomm mörg er nutum
hjálpræðis hans, bæði í orði og
verki.
Góður drengur er genginn
er við bekkjarsystkinin minn-
umst með söknuði. Við vottum
aldraðri móður Áma og öðmm
aðstandendum samúð okkar.
Við viljum ljúka þessum fáu
minningarorðum með kveðju-
orðum bekkjarbróður okkar.
í bænum við lútum og höld-
umst í hendur
hugsunum okkar við beinum
til þín.
Að megir þú himinsins líða um
lendur
í ljósinu bjarta er í austrinu skín.
Ævinnar dagur er kominn að
kveldi
kær er þín minning, hún lýsir
um nótt.
Opnist þér hliðin að Alföðurs
veldi
ástríkis njóttu, svo sofir þú rótt.
(Jón Hallur Ingólfsson)
Árgangur ‘57 Sauðárkróki.
Námskeið í REIKI - heilun
REIKI er einföld og örugg aðferð til að hjálpa sjálfum
sér og öðrum. Reiki opnar fyrir ljós og kærleika og vinnur
á sál og líkama. Reiki byggir upp, styrkir og eflir ein-
staklinginn til ábyrgðar á lífi sínu og líðan.
Held REIKI-námskeið og sjálfstyrkingamámskeið fyrir
einstaklinga og hópa. Er einnig með REIKI-meðferðir, nudd
og veiti ráðgjöf. Upplýsingar í síma 452 4483.
Þuríður Guðmundsdóttir reikimeistari
Hvammi II, Vatnsdal.