Feykir - 19.09.2001, Síða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Kornskurðurinn
kominn vel af stað
Hjá skagfirskum kombænd-
um em framundan annasamir
dagar, þar sem kornskurður er
byrjaður og reyndar kominn
talsvert áleiðis á bæjum í
Blönduhlíð og Hegranesi. Að
sögn Eiriks Loftssonar jarð-
ræktarráðunauts er útlit fyrir
góða uppskem enda mikil
gróska verið til landsins í sum-
ar. Eiríkur telur að vætan und-
anfarið hafi ekki valdið skaða
og kornið að mestu sloppið
vegna vindatíðar síðustu
dægrin.
Búið er að skera á Víðivöll-
um í Blönduhlíð, þar sem
Vaglamenn eru með akra og
einnig á Kúskerpi og í Hegra-
nesinu er langt komið í Keldu-
dal og Ríp. Þá er komskurður
byrjaður í Vindheimahólfinu,
en komakrarnir eru eins og
undanfarin ár langstærstir í
Vallhólminum og þar er að
jafhaði besta uppskeran.
Ekki ligga fyrir prufúr úr
uppskerunni, þær átti að taka í
gær og Eiríkur Loftsson sagðist
því á þessu stigi ekki geta lagt
mat á það hvað uppskeran yrði
að þessu sinni. Þrjár þreskivél-
ar em nú í notkun hjá „Þreski”,
sem er félag kombænda í
Skagafirði, en reyndar hafa
Langdælingar einnig verið í
samvinnu í kornræktinni síð-
ustu sumur. Þar vom fyrstir af
stað Skriðulandsmenn og nú
hafa bændur á Auðólfsstöðum
og Holtastöðum bæst í hóp
komræktenda á Norðvestur-
landi.
I Skagafirði var í sumar sáð
korni i um 300 hektara og er
það heldur meira en árið áður.
Komræktin í Skagfirði hefur
verið að aukast ár ffá ári og síð-
asta sumar var uppskeran sú
besta frá upphafi. Bændur
reikna með að þrátt fyrir ágætt
sprettusumar verði uppskeran
Viðurkenningar
fyrir snyrtimennsku
Nýlega vom afhentar viður-
kennngar fyrir snyrtilegustu hús
og garða á Blönduósi. Viður-
kenningamar komu í hlut eig-
enda einbýlishússins að Húna-
braut 8 og veitingahússins „Við
árbakkann”.
Byggingamefiid Blönduóss
brá sér í hlutverk fegmnar-
nefndar og var einhuga í vali
sínu á snyrtilegasta garðinum á
Blönduósi árið 2001. Á Húna-
braut 8 búa hjónin Zophanías
Zophaníasson og Gréta Arelíus-
dóttir. Fengu þau viðurkenning-
una fyrir virkilega vel hirtan,
fjölskrúðugan og gróskumikinn
garð. Ennfremur samþykkti
nefndin að veitingahúsið „Við
árbakkann” hlyti viðurkenningu
fyrir vel heppnaða endurgerð á
gömlu húsi, þar sem tekist hefði
að skapa heillegt, hlýlegt og
menningarlegt umhverfi, jafnt
úti sem inni.
Unnið að vegaframkvæmdum í Laxárdal í haust.
Gerð ÞvcrárfjalLsvegar miðar vel
Þrátt fyrir talsverða úrkomu i sumar hefúr
vegagerðinni yfir Þveráríjallið miðað ágætlega
og em verktakamir hjá Suðurverki nokkum veg-
inn á áætlun, að sögn Stefáns Reynissonar eftir-
litsmanns hjá vegagerðinni. Undirbyggingu veg-
arins er að stórum hluta lokið. Undanfarið hefúr
Ómar Feykir Sveinsson frá Vóimel er einn
vaskra vegager>armanna á fiverárfjalli.
verið unnið í Þverárgilinu að vestanverðu og
einnig nú undir haustið í Melrakkagilinu að aust-
anverðu, en á þessum kafla milli Skíðastaða og
Heijólfsstaða er vegurinn að stómm hluta færður
neðar að ánni. Þá er áætlað ef tíð leyfir að byrjað
verði á lagningu neðra slitlagsins.
Friðgeir Kemp, sem ólst upp á Illugastöðum,
er einn þeirra sem hefur fylgst vel með fram-
kvæmdum, enda gjörkunnugur aðstæðum. Hann
telur veginn að mörgu leyti liggja mjög vel, en
jarðraskið vegna vegagerðarinnar er mikið. Frið-
geir segir að efst á fjallinu, yfir svokallaðan Jám-
hrygg, sem er ffaman Engjalækjar við Illugastaði,
sé vegurinn sérstaklega hyggilega lagður og Frið-
geir spáir þvi að þar muni hann veija sig vel og
verða að öllu jöfnu fær að vetrinum. „Það væri
gaman að fara þessa leið einu sinni eða tvisvar”,
sagði Friðgeir sem er orðinn aldraður maður til
heimilis á Sauðárkróki, eftir að hafa búið lengi í
Effi-Lækjardal í Engihlíðarhreppi A.-Hún.
Samkvæmt áætlun á nýr vegur yfir Þvcrárfjall
milli Skíðastaða og Þverár að verða fær umferð-
ar fyrir veturinn 2002-2003. Ársþing SSNV
beindi því á dögunum til stjórvalda að fjárveiting-
um til verksins yrði haldið áffam, þannig að veg-
urinn ffá Sauðárkróki að Laxá í Refasveit verði
fúllbúinn árið 2004, en meðal -annars þarf að
byggja þar mikla brú og eins verður að endumýja
brúna á Gönguskarðsána við Sauðárkrók.
—ICTcH^ÍI! ekjDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
bílaverkstæði
sími: 453 5141
Sæmundargata lb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
jfcBílaviðgerðir 0 Hjólbarðaviðgerðir
& Réttingar ^Sprautun