Feykir - 19.09.2001, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 31/2001
Ábyrgir sveitarstjómarmenn
hafa ekki efhi á þessari skoðun
Hilmir spyr sveitarstjórnarfulltrúa í
sveitarstjórn Skagafjarðar tveggja spurn-
inga um málefni Rafveitu Sauðárkróks og
óskar eftir svari í síðasta Feyki Eg ætla ekki
að hafa þetta svar langt og mun því ekki
fjalla um ýmsa hluti sem Hilmir drepur á í
sinni grein einsog þann grun sem „læðist
og hvíslar grálcitum sögum og göróttum
fullyrðingum” um málið. Slík orð og um-
fjöllun fyrrum bæjarfulltiúa og forystu-
manns í sveitarstjórn er sérstakt umfjöllun-
arefni.
Svar mitt við spurningum þínum Hilm-
ir er eftirfarandi:
1. Ég vil ekki selja Rafveitu Sauðár-
króks. Það er ekki mitt markmið né nokk-
urs annars í sveitarstjórninni svo ég viti
um. Sú stund er hinsvegar upprunnin að ég
og aðrir ábyrgir sveitarstjómarmenn höfum
ekki efni á þessari skoðun.
2. Fram hefúr komið að Skagafjörður
skuldar 1,5 milljarða króna nú í lok júní og
2.7 milljarða ef allt er tekið með, bæði fé-
lagslega íbúðakerfið, aðrar stofnanir og líf-
eyrisskuldbindingar sveitarfélagsins.
Heildarskuldirnar jukust um 221 milljón
króna á fyrstu 6 mánuðum ársins.
3. Ég vil ekki skerða þá um margt góðu
þjónustu sem
sveitarfélagið
er að veita
Skagfirðing-
um. Ég vil
ekki að börnin
okkar - fram-
tíðin - njóti
ekki bestu
menntunar. Ég
vil ekki skerða
þá þjónustu
sem við höfúm búið þeim sem minna
mega sinn í okkar samfélagi. Svo mætti
lengi telja.
4. Ég tel mig ekki töffamann í fjármál-
um þó ég sé ágætlega menntaður á því
sviði. Ég hef ekki séð, heyrt eða fundið
neinn núverandi eða fyrrverandi sveitar-
stjórnarmann í Skagafirði sem hefúr getað
kornið með rökstudda, trúverðuga og hald-
fasta tillögu eða kenningu um það hvemig
glíma eigi við þennan íjárhagsvanda, nerna
með sölu eigna. Vanda sem hefúr skapast
á löngum tíma m.a. þegar þú sast í bæjar-
stjórn Sauðárkróks Hilmir minn.
Kveðja
Snorri Styrkársson.
„Að slátra mjólkurkúnni"
í síðasta tölublaði Feykis, bar Hilmir
Jóhannesson fram spurningar sem beint
var til sveitarstjórnarfulltrúa. Við undir-
rituð fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
veitustjórn Skagafjarðar lýsum því yfir
að við erurn algerlega mótfallin því að
selja Rafveitu Sauðárkróks. Þeirri að-
gerð mun fylgja óbætanlegt tjón fyrir
sveitarfélagið. Veitustjórn Skagafjarðar,
þ.e.a.s. allir fulltrúar hennar lögðu til að
sameina hita- vatns- og rafveitu í eitt
fyrirtæki. Nýja fyrirtækið tæki síðan
yfir hluta af skuldum sveitarfélagsins.
En eins og flestum er kunnugt, þá hugn-
aðist þessi ákvörðun veitustjórnar ekki
ónefndum aðilum. Þeir hafa nú með ein-
strengishætti og metnaðarleysi ákveðið
að hrinda markmiðum sínum í fram-
kvæmd.
Salan á Rafveitu Sauðárkróks mun
ekki breyta miklu, þessari aðgerð er
hægt að líkja við það að pissa í skóinn
sinn. Afleiðingarnar verða hins vegar
stórar og óafturkræfar. Það breytir engu
héðan af, að hugsa til þess hver staða
sveitarfélagsins væri í dag, ef áætlanir
fyrrum veitustjórn hefði náð fram að
ganga. Það eru rúm tvö ár síðan lögð var
fram skýrsla þess efnis að sameining
veitnanna væri hagkvæmur kostur fyrir
sveitarfélagið. Nei, málið var þvælt og
tafið og skuldirnar hækka dag frá degi.
Sala eigna er takmörkuð aðgerð. Þeir
sem einblýna á sölu allra eigna sveitar-
félagsins hafa stutta framtíðarsýn. Við
sem nú höf-
um umboð
til að stjórna,
eigum ekki
að ganga svo
frá hnútun-
um að þeir
sem á eftir
okkur koma
hafi lítið
sem ekkert
s v i g r ú m .
Það á ekki alltaf að senda næstu kynslóð
reikninginn fyrir þörfum okkar í dag.
Það er hverju samfélagi nauðsynlegt að
hafa sem rnesta fjölbreytni í mannlífi og
atvinnulífi. Ekki er langt síðan Sauðár-
krókur gat státað af því að hafa starfandi
úrsmið og skósmið. Þetta eru í sjálfu sér
ekki úrslita atvinnugreinar, en óneitan-
lega gott krydd í samfélagið. Sú reynsla
og þekking sem býr í því að eiga Raf-
veituna mun ekki verða bætt með krón-
um, verði hún seld. í sveitarfélaginu eru
íjölmörg fyrirtæki og félagasamtök sem
njóta góðs af því að Rafveitan er enn þá
á lífi.
Að selja Rafveitu Sauðárkróks er
„skrautQöður” sem fáir vilja næla í sig.
Að lokum viljum við segja þetta: Hætt-
ið við öll áform um söluna, við skulum
vinna sameiginlega að því að horfa fram
á við og byggja upp fyrirtæki sem mun
efla og styrkja búsetu í Skagafirði.
Árni Egilsson, Sigrún Alda Sighvats.
Frá afhendingu byggingarmótanna í verknámshúsi FNV. Forsvars-
menn dcildarinnar eru til vinstri og Merkúrmenn til hægri.
Tréiðnadeild FNV færð
byggingarmót að gjöf
Tréiðnadeild Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra bárust góðar
gjafir í síðustu viku. Steypumót og
tölvuforrit þar sem hægt er að reikna
út eiúisþörf og skipuleggja uppslátt-
inn. Tréiðnadeild FNV er fúllbókuð
áhaustönn, 14nemendur.
í tilkynningu frá Merkúr, sem var
gefandinn, var sl. vor eitt ár liðið frá
því Merkúr hf. tók við söluumboði
fyrir PERI GmbH í Þýskalandi. Þar
seni PERI er einn stærsti framleið-
andi steypumóta og vinnupalla af
mörgum gerðum, kom upp sú hug-
mynd að færa verkmenntaskólum í
landinu veglega gjöf sem gæti nýst
þeim við kennslu húsasmíðanema.
í framhaldinu var haft samband
við þá skóla sem eru með tréiðnaðar-
deild og hugmyndin rædd. Niður-
staðan var sú að útbúinn var pakki
fyrir skólana sem samanstendur af
11 steypumótaflekum, 3 innhomum
og fylgibúnaði af TRIO gerð ffá
PERI. Með þessurn mótaflekum er
hægt að „slá upp” fyrir stuttum
veggjum með homi og veggjateng-
ingum þar sem nemendur geta gert
sér grein fyrir mörgu því sem huga
þarf að við mótauppslátt með kerfis-
mótum.
Einnig fá skólamir afhenta nýj-
ustu útgáfú af ELPOS hugbúnaðin-
um frá PERl, til að skipuleggja
mótauppsláttinn og reikna út efnis-
þörf og fleira. I hugbúnaði þessum er
hægt að skrá hvað til er af mótum og
fylgihlutum og hugbúnaðurinn
skipuleggur svo uppsláttinn út ffá
því, gerir efnislista, reiknar út
steypumagn, stærð veggflata o.fl.
Merkúr hf. og PERI vilja með
gjöf þessari, leggja sitt af mörkum til
bættrar iðnmenntunar í landinu og er
það von þessara aðila að bæði hug-
búnaðurinn og mótin verði gott
veganesti fyrir húsasmiði ffamtíðar-
innar.
Milliuppgjör fyrri hluta
árs sýnir slæma stöðu
Á síðasta fundi byggðarráðs var
birt milliuppgjör fyrir fýrri hluta
þessa árs og er niðurstaðan þar ekki
glæsileg. Halli er á rekstrar- og ffam-
kvæmdayfirliti upp á 91,3 milljónir.
Veltufjárstaðan versnar um 143,5
milljónir. Vextir, verðbætur og geng-
ismunur nema 60,3 milljónum.
Skuldir sveitarsjóðs aukast um tæp-
ar 152 milljónir og vegna félags-
legra íbúða aukast skuldirnar urn
73,7 milljónir.
Heildarskuldir sveitarsjóð og allra
stofnana jukust fyrri hluta ársins um
221,3 milljónir. Fjárhagsáætlun er í
endurskoðun.
Kökubasar 10. bekkjar
Varmahlíðarskóla
verður í KS Varmahlíð fostudaginn 21. september nk. frá kl. 14 og
meðan birgðir endast. Ferðasjóður.
pEYKIR Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra Kernur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf. Hemiannsson, Sigurðui' Ágústsson og Stefán Ámason. Skrifstofa: Ægisstig 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4, Áskriftarverð 170 krónur hvert tölublað með vsk. 550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703. Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og Farsími 854 6207. Netfang: fevkir @, krokur. is. urnbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Blaðstjórn: Jón F. aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur