Feykir - 19.09.2001, Blaðsíða 3
31/2001 FEYKIR 3
Laugardagsganga
á Ingimundarhól
Laugardaginn 22. september
verður haldinn hér á landi svo-
kallaður menningarminjadagur
Evrópu. Á þessum degi er vak-
in athygli á menningarminjum
og sögustöðum vítt og breitt um
Evrópu. Hér á landi hafa verið
valdir 12 friðlýstir minjastaðir
til kynningar á þessum degi á
vegum Þjóðminjasafns íslands.
Á Norðurlandi vestra urðu fyrir
valinu svokallaðar Ingimundar-
rústir við Ingimundarhól í Þver-
árhreppi í Vestur-Húnavatns-
sýslu. Þennan dag mun Þór
Hjaltalín, minjavörður Norður-
lands vestra vera með leiðsögn
á staðnum og svara spumingum
áhugasamra.
í samvinnu Þjóðminjasaíhs,
Vegagerðarinnar og Landsvirkj-
unar er unnið er að því að setja
upp söguskilti við þjóðveginn,
en rústirnar sjálfar eru í um
700-800 metra fjarlægð frá veg-
inum. Kl. 13.30 inun Þórganga
að rústunum og vera á staðnum
til kl. 15.30. Mikilvægt er að
koma vel skóaður í gönguna
því leiðin er á köflum nokkuð
blaut. Til þess að komast að
söguskiltinu er ekið sem leið
liggur í átt að Borgarvirki. Á
þeirri leið er komið að brú yfir
Faxalæk, en þar við brúna er
skiltið. Ingimundarhóll erá nesi
því sem myndast þar sem Faxa-
lækur gengur í Víðidalsá. Ingi-
mundarhóll er nefndur bæði í
Landnámabók og í Vatnsdæla
sögu.
í Vatnsdælu segir: Þá mælti
Ingimundur: „Sjá dalur er mjög
viðivaxinn. Köllumhann Víði-
dal og hér ætla eg líkast til vet-
ursetu.” Þeir vom þar vetur
annan og gerðu sér þar skála er
nú heitir Ingimundarhóll. Þá
mælti Ingimundur: „Nú mun
eigi vera vistin jafnglöð sem í
Noregi en eigi þarf nú að minn-
ast á það, því að margir góðir
drengir eru hér enn saman
komnir til gamans og gleðjumst
enn eftir tilföngum.” Allir tóku
vel undir. Þar voru þeir um vet-
urinn og höfðu leika og alls
kyns gleði.
Sú sögn fylgir Ingimundar-
hól í Þverárhreppi að þar hafi
landnámsmaðurinn Ingimund-
ur gamli dvalið er hann var í
landaleitan áður en hann byggði
aðHofiíVatnsdal. Norðaustan
undir hólnum mótar fyrir tótt-
um og er lengd bæjarhólsins
um 70 metrar. Byggingar eru
fomlegar, skálar tveir um 20
metrar að lengd ásamt útihús-
um.
Þokan seinkaði
göngum um einn dag
Þrálát þoka og úrkomutíð
setti strik í reikninginn varðandi
göngur í síðustu viku. Smölun á
Grímstungu- og Víðidalsmngu-
heiði tafðist vegna þokunnar og
náðu gangnamenn náttstað á
fimmtudagskvöldi þar sem á-
ætlað var að þeir yrðu kvöldi
fyrr. Grimstunguheiðarmenn
lágu um kyrrt í Fljótsdrögum
vegna þokunnar og Víði-
dalstunguheiðarmenn voru
einnig um kyrrt í sínum Fella-
skála á heiðinni.
Leitimar framlengdust því
um dag og gangna- og réttar-
störfúm seinkaði heldur, en
unnust samt upp á tveim síð-
ustu dögunum hjá Víðdæling-
um. Réttarstörfúm lauk ekki til
fulls í Undirfellsrétt í Vatnsdal
fyrr en á sunnudagsmogun eða
degi síðar en ætlað var. Hins-
vegar miðaði göngum á Auð-
kúluheiði samkvæmt áætlun
þar sem þokan var lítið eða ekki
til baga á því leitarsvæði og
náðu gangnamenn til réttar með
safnið á fostudagskvöld.
„Algjör hryllingur"
Byggðamál báru talsvert á
góma á nýafstöðnu þingi
SSNV Meðal annars kom til
umræðu kynning sem nýlega
var gerð á borgarskipulagi
Reykjavíkur til 2024, en þar er
gert ráð fyrir að fjölgi um
60.000 manns á þessu tímabili.
Þar af komi 30.000 manns utan
af landsbyggðinni og jafn-
margir íbúar Reykjavíkur verði
til við „náttúruleg skilyrði”
eins og það var kallað á þing-
inu. Nokkrir fúlltrúar lands-
hlutasamtaka voru gestir á
umræddum fúndi um kynn-
ingu borgarskipulagsins, og
fannst þeim þessi spádómur
„algjör hryllingur” svo vitnað
sé til orða Smára Geirssonar
Austfirðings.
Sigurlaug Andrésdóttir ásamt fjórum afkomcndum sínum.
Fimm ættliðir í móðurlegg
I velmegunarþjóðfélaginu hefúr oft verið
látið að því liggja að fólk hafi ekki lengur orð-
ið tíma til að eignast böm. Samt gerist það af
og til að fimm kynslóðir em í sömu fjölskyld-
unni, þannig er það hjá afkomendum Sigur-
laugar Andrésdóttur frá Kálfárdal, ættaða úr
Bitrufirði á Ströndum, og Ágúst heitins Guð-
mundssonar jámsmiðs og bónda í Kálfárdal.
Þessi mynd var tekin af þeim mæðgum fyr-
ir stuttu í skýmarveislunni. Þær eru frá hægri
talið: Sigurlaug Andrésdóttir fædd 1909, Þor-
björg Ágústsdóttir fædd 1947, Aðalheiður
Reynisdóttir fædd 1964, Þorbjörg Sandra
Magnúsdóttir fædd 1980 og Dagmar Lilja
Hreiðarsdóttir sem fæddist 19. júlí sl.
*ÖII verð eru staðgreiiðsluverð
Heimilistæki
Frystikista 67 L
Frystikista 240 L
Frystikista 290 L
Frystikista 330 L
Frystikista 105 L
Frystikista 138L
Frystikista 265 L
Frystikista 325 L
Frystikista 410 L
Frystikista 510 L
- H: 58cm - B: 55 cm - D: 60 cm
- H: 139 cm - B: 60 cm - D: 60 cm
- H: 160 cm - B: 60 cm - D: 60 cm
- H: 180 cm - B:60 cm - D. 60 cm
kr. 37.900
kr. 59.900
kr. 64.
kr. 67.900
kr. 32.900
kr. 39.900
kr.
kr.
kr. 54.900
kr.
- H: 85 cm - B: 53 cm - D: 60 cm
- H: 89cm - B: 60 cm - D: 60 cm
- H: 89 cm - B: 95 cm - D: 60
- H: 89 cm - B: 112 - D: 60 cm
- H: 89 cm - B: 134 cm - D: 60 cm
- H: 89 cm - B: 162 cm - D: 60 cm