Feykir - 19.09.2001, Síða 7
31/2001 FEYKIR 7
Frá stóðréttum í Skrapatungu.
Boðið til mikils stóðrekstrar í
Laxárdal um helgina
Um næstu helgi, laugardag
og sunnudag, 22. og 23. sept-
ember, gefst fólki kostur á að
taka þátt í hrossasmölun og
stóðréttum í Austur Húnavatns-
sýslu með heimamönnum. í
Skrapatungurétt, sem er norðast
í Laxárdal í A-Hún, hefur verið
smalað 800 - 1000 hrossum
undanfarin haust. Hagsmuna-
aðilar í ferðaþjónustu og bænd-
ur gefa fólki kost á að taka þátt
í smalamennsku og réttarstörf-
um. Nú i ár verður sérlega mik-
ið um að vera, kvikmyndagerð-
amienn og blaðamenn frá
Frakklandi mæta á staðinn.
A laugardag verður hrossun-
um smalað norður Laxárdal.
Lagt er af stað frá Strjúgsstöð-
um um kl. 9,30 og riðið í gegn-
um Strjúgsskarð inn á Laxárdal,
þar sem að slegist verður í för
með gangnamönnum. Smalar
koma að í Kirkjuskarðsrétt á
Laxárdal milli kl. 13 og 14 og
er þar tekið hlé á hrossarekstrin-
um. Bílvegur liggur alveg ífam
að Kirkjuskarðsrétt, þannig að
þeir sem að vilja koma á sínum
einkabíl og fylgjast með hafa
tök á því.
Eftir stundarhlé verður rekið
áfram norður í Skrapatungurétt
(ca 2 tímar). Það þykir gífiur-
lega spennandi að taka þátt í og
fylgjast með þessum rekstri á
svo stórri hrossahjörð, sem er
sú stærsta á íslandi.
Á laugardagskvöldinu er
stóðréttardansleikur í félags-
heimilinu á Blönduósi. Á
sunnudag hefjast réttarstörf
klukkan 10,00 og standa fram
eftir degi.
Að sögn Hauks Garðarsson-
ar ferðamála- og markaðsfull-
trúa A.-Hún. er allir boðnir vel-
komnir að mæta og fylgjast
með. Þeir sem að óska eftir að
taka þátt í smölun fá nánari
upplýsingar um það og aðra
þjónustu hjá ferða- og markaðs-
fúlltrúa Austur Húnavatnssýslu
í símum 452-4770, 891-7863
og 851-1879. Netfang:
ferdhun@isholf.is Fólk sem
tekur þátt á eigin hrossum, er
einnig vinsamlega beðið að láta
vita.
Tindastólsmenn féllu í aðra deild
Það fór eins og margir óttuð-
ust að úrslit leiks Tindastóls
og KS á Siglufirði sl. laugar-
dag myndu í sjálfu sér ekki
skipta máli, þar sem ÍR-ingar
væru líklegir til að klára sitt
dæmi, eins og kom á daginn.
ÍR vann Leiftur 3:1 og Tinda-
stósmenn féllu ásamt KS-ing-
um í 2. deild.
Það var kuldalegt á Siglufirði
á laugardaginn, hvítt niður í
miðjar hlíðar, vatnslag yfir mest-
öllum vellinum og meðan á leik
stóð gekk á með norðanéljum,
þannig að leikurinn var allnokk-
urt manndómspróf fyrir leik-
menn, sem þeir stóðust með
sóma. Kannski sem betur fer,
voru ekki mjög margir áhorfend-
ur á leiknum, enda áhorf-
endastallamir eitt dmllusvað eft-
ir vatnsveðrið.
Það vom Tindastólsmenn
sem bytjuðu mun betur og strax
á 4. mínútu skoraði Davíð Rún-
arsson eftir góða sókn. Skömmu
fyrir miðjan hálfleikinn bætti
síðan Davíð við öðru marki eftir
að Kristmar Bjömsson vann
með harðfylgi boltann í þröngri
stöðu upp við markið og náði að
vippa fýrir. En vamarlega vom
Tindastólsmenn ekki að spila
nógu yfirvegað og gerðu sig
seka um að taka þar of mikla
„sjensa” miðið við aðstæðumar.
Þeir fengu þetta í andlitið eftir að
hafa verið tæpar 10 mínútur með
2:0, en þá skomðu Siglfirðingar
tvö mörk með mínútu millibili
ogjöfnuðu leikinn. Rangstöðu-
lykt þótti af fyrra markinu, en
það seinna var afarslysalegt, en
þá upplifði Gísli Sveinsson í
Tindastólsmarkinu „martröð
markvarðarins” þegar hann
missti boltann í gegnum klofið
eftir laust skot KS-ings. Tinda-
stólsmenn virtust slegnir út af
laginu og heimamenn komust
betur inn í leikinn.
1 seinni hálfleiknum vom það
hinsvegar Tindastólsmenn sem
réðu ríkjum og vom óheppnir að
skora ekki, sérstaklega var það í
tvígang með skömmu millibili
um miðjan hálfleikinn sem þeir
voru aðgangsharðir. Siglfirðing-
ar áttu reyndar einnig ágætar
sóknir og voru nálægt því að
skora í eitt skiptið. Niðurstaðan
var sem sagt jafntefli í ágætum
leik, sérstaklega ef tekið er mið
að aðstæðum. Hjá Tindastóls-
mönnum vom Jón Fannar, Hörð-
ur, Petrovich, Kristmar og Davíð
í betri hlutanum. Hjá Siglfirð-
ingum vom Ragnar, Unnar,
Bjarki og Ari ágætir.
Vitaskuld er alltaf leiðinlegt
að falla, en útlit er fýrir að beggja
þessara liða bíði uppbygging og
efhiviðurinn er fyrir hendi.
Tindastólsmenn hafa t.d. eignast
ágætan kjama fótboltamanna,
sem byggt hefur upp í gegnum 2.
flokkinn á síðustu ámm. Margir
af þessum strákum vom að spila
mikið í sumar og sýnt að þetta er
kjaminn sem byggja verður á
næstu árin og ágætis líkur á að
takist að byggja upp öflugt lið,
að mestu skipað heiinamönnum.
En allt veltur þetta á því að strák-
amir verði duglegir að æfa og
ráðamenn Tindastóls standi að
baki þeirra með ákveðna stefnu
sem ekki verði hvikað frá.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Til sölu Subaru Legazy árg.
‘86. Nýskráður og í góðu
standi. Upplýsingar gefur B.
Har. í síma453 5124.
Tapað - fundið!
Tölvuúr fannst á reiðleið-
inni sunnan við Vatnshlíðar-
vatn . Upplýsingar gefur Guð-
mundur í síma 452 7154.
Þú sem tókst hlaupahjól
fýrir utan leikskólann Glað-
heirna sl. fimmtudag milli kl.
13 og 17 vinsamlega skilaðu
því á sarna stað strax. Ef þú
getur gefið upplýsingar um
hjólið vinsamlega hafðu
samband í síma 849 6697.
Sími Feykis er 453 5757
Einbýllshús til sölu!
Hólavegur 27. Upplýsingar í síma 453 5137, eftir
kl. 18.Tilboð óskast.
Nýtt Herbalife!
Komin ný hraðvirkari grenningarlína ásamt gömlu
góðu. Prófaðu líka súkkulaðið og nýja bragðteið. Hafðu
samband og kynntu þér vöruna. Guðný sími 896 3110.
Sendibílaþjónusta Heiðars
Björnssonar Akranesi
Tek að mér búslóðaflutninga og einnig ýmiss konar
aðra léttaflutninga.
Upplýsingar í síma 431 3646 og 866 7734.
Þú verður ekki straumlaus með
Data-rafgeymi í bílnum
OLÍS - umboðið
Verslun Haraldar Júlíussonar
Þeir létu fara vel um sig malbikunarmenn í sólinni á
Sauðárkróki á dögunum meðan beðið var eftir einni
lögninni á Skagfirðingarbrautina. Það var K.M.
Malbikin á Akureyri sem lagði malbikið og þar ræður
ríkjum að hálfu Margrét Stefánsdóttir frá Gilhaga.