Feykir - 19.09.2001, Blaðsíða 8
19. september 2001, 31. tölublað, 20. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
■■ ■"
KJORBOK
Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga
- með hœstu ávöxtun í áratug!
Landsbanki
jslands
í forystu til framtíðar
Utibúið á Sauðárkróki - S: 453 5353
Þrátt fyrir kalsamt verður var margt fólk í stóðréttum í Skagafirði um helgina, en þetta var
fyrsta stóðréttarhelgin af ijórum á Norðuriandi vestra. Það er Skrapatungurétt næsta
sunnudag, þá Laufskálarétt og síðast Víðidalstungurétt.
Sútunarverksmiðjan Loðskinn á Sauðárkróki
Fær allar gærurnar frá KS
Sveitarfélagið Skagaflörður
Fjárvöntun til
félagsþj ónustunnar
Sútunarverksmiðja Loð-
skinns á Sauðárkróki hefúr tryggt
hráefni, en mikið er um að slátur-
leyfishafar selji gærur úr landi á
þessu hausti. Mun ástæðan vera
sú að sútunarmarkaðurinn í land-
inu tekur ekki við miklu magni
um þessar mundir og sem kunn-
ugt er fór Skinnaiðnaður á Akur-
eyri í gjaldþrot á dögunum. Að
sögn Sigurðar Karls Bjamasonar
ffamleiðslustjóra hjá Loðskinni
hafa verið tryggðar allar gæmr
sem til falla hjá sláturhúsi KS í
haust, um 50 þúsund.
„Við ætlum að fara varlega í
sakimar og láta þetta duga. Það
verður að taka tillit til markaðs-
stöðunnar eins og hún er”, sagði
Sigurðar Karl, en markaðimir
eru ekki eins stórir í dag og þeir
vom í eina tíð. Loðskinn er þó að
selja á nokkra staði en ekki mik-
ið magn á hvem, til Ítalíu, Frakk-
lands, Hong Kong, Bretlands og
víðar. „En okkur sýnist að þetta
geti gengið ágætlega svona og
ætlum að reyna að fylgja mörk-
uðununt eftir”, sagði Sigurður
Karl.
Hjá Loðskinni starfa um þess-
ar mundir um 30 manns, en það
er Búnaðarbanki Islands sent
rekur verksmiðjuna. Auk þess að
vinna úr eigin gæmm, er verk-
smiðjan einnig með verktöku í
söltun og ffágang gæra ffá Sölu-
félagi Austur - Húnvetninga á
Blönduósi.
Á fúndi sveitarstjómar
Skagafjarðar á dögunum kom
ffam að nokkur halli og tals-
verð fjárvöntun er á nokkrum
málaflokkum hjá Félagsþjón-
ustu Skagafjarðar. Félagsmála-
nefndin beindi þvi til byggðar-
ráðs að endurskoðuð verði fjár-
hagsáætlun félagsþjónustunnar
og tryggt aukið framlag svo að
ekki komi til verulegrar skerð-
ingar á þjónustu. Ekki er langt
síðan fyrirspum kom á sveitar-
stjómarfúndi varðandi fjár-
hagsstöðu félagsþjónustunnar
og þá var að skilja á svömm
formanns félagsmálanefndar
að hlutirnir væru í nokkuð
góðu lagi.
Nú kemur i ljós að 800 þús-
und vanti til bamavemdarmála
í héraðinu, vegna ófyrirséðra
útgjalda, þá stefnir í að 2 millj-
ónir vanti vegna húsaleigubóta,
vegna ófyrirséðs aukakostnað-
ar, í dagvistun aldraðra vantar
200.000, vegna ofáætlaðra
tekna frá ríki og til málefha
fatlaðra vantar unt 4 milljónir,
einkum vegna vanda er mátti
sjá fyrir þegar sambýli við
Gmndarstig var lagt niður án
þess gert væri ráð fyrir nægjan-
legri liðveislu á móti. Elínborg
Hilmarsdóttir formaður félags-
málaráðs sagði að útgjöld
vegna kjarasamninga væru þó
að litlu leyti komin ffam. Elín-
borg sagði að nefndin myndi
gæta vemlegs aðhalds í rekstri,
m.a. með því að hagræða í
heimaþjónustu og frekari lið-
veislu, með það fyrir augum að
ná ffam frekari spamaði er
nemur hálfú til einu stöðugildi.
Þá yrði ekki heimiluð til-
fallandi yfirvinna nema í neyð-
artilvikum, með sérstakri
heimild félagsmálastjóra.
Einnig stæði til að endurskoða
gjaldskrá þjónustubíls og sam-
ræma greiðslur fatlaðra og
aldraðra fyrir aksturinn.
Gísli Gunnarsson oddviti
minnihlutans gagnrýndi mis-
vísandi upplýsingar og ákvarð-
anir félagsmálanefndar, þar
sem í öðm orðinu er talað um
að sprara en síðan ákveðið að
ráða í hlutastöðu iðjuþjálfa.
Gísli sagði að þau ráð að fá
aukna peninga inn í málaflokk-
inn frá sveitarfélaginu og draga
ekki úr þjónustu, það væri
krafa um að skuldimar hækk-
uð meira en orðið er.
Hreyfing á framboðs-
málum við Blöndu
Blönduósingar virðast vera
fyrstir að taka við sér varðandi
ffamboðsmál fyrir sveitar-
stjórnarkosningar á næsta vori.
Svæðisútvarpið greindi ffá því
á dögunum að Ágúst Þór
Bragason oddviti sjálfstæðis-
manna og núverandi forseti
bæjarstjómar Blönduóss væri
til í slaginn á næsta kjörtímabili
og á dögunum auglýsti síðan
bæjannálafélagið Hnjúkar fúnd
þar sem ffamboðamálin vom til
urnræðu.
Að sögn Valdimars Guð-
mannssonar formanns Hnjúka
kom fram á fúndinum að flest-
ir þeir sem skipuðu ffamboðs-
lista félagsins fyrir síðustu
kosningar em tilbúnir að taka
þátt að nýju. Hinsvegar er vilji
fyrir því að efnt verði til skoð-
anakönnunar um uppstillingu
og yrði það væntanlega gert í
nóvembermánuði. Valdimar
sagði að stefnt væri á fund í
byrjun októbemiánaðar þar
sem ákveðið yrði hvemig stað-
ið verði að framboðsmálum.
„Við emm nokkuð brött héma
og fólk virðist hafa áhuga á því
að taka þátt í þessu starfi á-
ffam”, sagði Valdimar.
Tvö slys í Skagafirði
Tvö slys urðu í umdæmi lögreglunnar á Sauðárkróki á laugar-
dagskvöld og var um útafakstur að ræða í báðum tilfellum, en sem
betur fer ekki mikil slys á fólki.
Fyrra tilfellið átti sér stað um átta leytið á laugardagskvöld.
Ökumaður fólksbíls er talinn hafa sofnað undir stýri með þeim af-
leiðingum að bíllinn fór út af veginum og lenti út í Grófargilsá
skammt ffá Varmahlíð. Ökumaður, sem var einn í bílnum, skarst
nokkuð í andliti, en slapp að öðm leyti. Um 10 leytið þetta sama
kvöld lenti bíll utan vegar og valt vestarlega á Vatnsskarði. Öku-
maður bar við glerungi á vegi, en hann og farþegi urðu fyrir lítils
háttar meiðslum. Að öðm leyti var rólegt hjá lögreglu.
(CSX TOYOTA
V V - tákn um gæði
<@>
TRYCCINCA-
MIÐSTÖÐIN HF.
- þegar mest á reynir!
...bílar.tiyggbagar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
támarit, ljósritun,
gafavara...
BÓKABÚÐ
BRYNcJARS
SUBDBQÖTtl 1 SÍMI 4B3 59B0
BÍLASA.LAN /
FORNOS
BORGARFLÖT 2 • 550 SAUÐÁRKRÓKUR
SlMI «53 5200 • FAX «53 6201 • KT 670600-25«0 • VSK nr 67600
Sími
453 5200