Feykir - 27.03.2002, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Tillaga að aðalskipuíagi fvrir Skagafíörð
Jarðgöng úr Hjalta-
dal yfír í Hörgárdal
Það var mikill fögnuður í frjálsíþróttaliði UMSS með ákvörðun stjórnar UMFÍ að halda
landsmótið 2004 á Króknum, enda þýðir það frjálsíþróttavöll sem lengi er búið að berjast
fyrir. Liðið kom saman til veislu á Stóru-Ökrum bernskuheimili Gísla Sigurðssonar þjálfara.
Landsmót UMFÍ á Krókinn
Á fundi sveitarstjóma Skaga-
fjarðar, Húnaþings vestra og
þéttbýlisstaða i Húnavatnssýslu
fyrir um 10 dögum var brugðið
upp korti af Skagafirði sem fylg-
ir tillögu að aðalskipulagi fyrir
héraðið. Inn í skipulagið em nú
komin jarðgöng frá Hjaltadal
yfir í Hörgárdal í Eyjafirði, allt
að 20 km. löng eftir því hve of-
arlega í landi þau em grafin. Um
skipulagstillöguna er íjallað um
þessar mundir í nefndum og ráð-
um Sveitarfélagsins Skagafjarð-
ar ásamt því að kynna þessar
hugmyndir um jarðgangnaleið-
ina Húnvetningum, Akureyr-
ingum og Eyfirðingum.
Það sem býr að baki þessari
hugmynderað vegalengdin milli
Akureyrar og Sauðárkróks stytt-
ist um 40% í tíma og að Skaga-
fjörður og jafnvel Húnavatms-
sýslur yrðu bakland Eyjafjarðar.
Eflaust myndi það styrkja mjög
þær tillögur sem nú eru uppi í
byggðamálum, að Akureyri og
Eyjafjarðarsvæðið verði mót-
vægi við höfuðborgarsvæðið.
Jón Gauti Jónsson sveitar-
stjóri Skagafjarðar vék að þess-
um hugmyndum á fyrrgreindum
fundi á dögunum og færði áður-
nefnd rök þessu máli til fram-
dráttar, einnig það að þessi að-
gerð yrði stór áfangi í styttingu
leiðar milli Akureyrar og Eyja-
ljarðar. í máli Stefáns Guð-
mundssonar fulltrúa í sveitar-
stjóm Skagafjarðar og fyrrver-
andi alþingismanns kom fram
að ef þessar hugmyndir yrðu að
veruleika myndu þær án efa
einnig koma Húnvetningum til
góða, væntanlega festa í sessi
vegleiðina um héraðið, svo sem
í gegnum Blönduós, og einnig
styrkja svæöið í heild í atvinnu-
legu tilliti með Þveráríjallsvegin-
um. Stefán sagði engan vafa á
því að lögð yrði áhersla á stytt-
ingu leiðar milli Akureyrar og
Reykjavíkur í framtíðinni og
spumingin hvernig heimamenn
kæmu að stefnumótun í því efni.
Þá er einnig ljóst að tilkoma
þessara jarðgangna myndi
styrkja mjög áform um iðnaðar-
kosti bæði við Dysnes í Eyja-
firði og Kolkuós í Skagafirði, og
skapa mikla möguleika á auk-
inni samvinnu Skagfirðinga og
Eyfirðinga. En þess má geta að
það em nú orðin ein þijú ár síð-
an sveitarstjóm Skagafjarðar
fundaði með bæjarstjórn Akur-
eyrar og Akureyringar eiga
heimboð til Skagafjarðar, sem
þeim hefur ekki unnist tími til að
sinna ennþá. Þetta kom einmitt
fram í óformlegu spjalli á fyrr-
greindum fundi á Sauðárkróki
nýlega.
Akureyringar og Eyfirðingar
hafa að undanfömu lagt áherslu
ájarðgöng undir Vaðlaheiði með
tengingutil austurs. Forsvarsmenn
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
gera sér ljóst að forsendan fyrir
því að áform um jörðgöng úr
Hjaltadal yfir í Hörgárdal verði
að veruleika, er sú að Eyfirðing-
ar „kaupi” þessa hugmynd með
því að setja jarðgangnaleiðina
inn á sitt skipulag einnig.
Reyndar mun þessi jarðgangna-
leið hafa verið einn af þeim
kostum sem Vegagerðin hefúr
skoðað varðandi styttingu leiðar
milli Akureyrar og Reykjavíkur.
Margir Skagfirðingar urðu
feiknaglaðir sl. föstudag þegar
fregnir spurðust út af stjómar-
fundi UMFÍ, þess efhis að á-
kveðið hafði verið að Lands-
mót UMFÍ 2004 verði haldið á
Sauðárkróki, en fimm aðilar
sóttust eftir mótinu.. Haraldur
Jóhannesson formaður UMSS
segir að símhringingum hefði
ekki linnt það sem eftir var
dags og um helgina, og slegið
var upp veislu á Stóru-Ökrum
þar sem Gísli Sigurðsson þjálf-
ari og helsti frjálsíþróttafföm-
uður héraðsins safhaði liði sínu
saman. Gísli er einn þeirra sem
barist hafa hart fyrir landmóti á
Krókinn, en það þýðir að
frjálsíþróttamenn fá völl og
stórbættar aðstæður við iðkun
sinnar íþróttar.
„Þetta er mikill áfangi er
það er mikið eftir. Það verður
gífurleg vinna og skipulagning
sem fylgir því að halda lands-
mót, en áhuginn er fyrir hendi
og samstaða hjá fólki sem er
atorkusamt og tilbúið að vinna.
Væntanlega verður innan
skamms mynduð landsmóts-
nefiid þar sem m.a. á sæti full-
trúi frá UMFÍ. Við munum
funda með stjóm UMFÍ fljót-
lega og ég á von á fulltrúum
þeirra, vonandi Sæmundi Run-
ólfssyni framkvæmdastjóra,
sem gestum á ársþing UMSS
sem verður haldið 7. april nk.”,
segir Haraldur Jóhannesson
formaður UMSS.
Haraldur segir að lands-
mótshaldið hafi gífurlega þýð-
ingu fyrir allt héraðið. Búast
megi við allt að 15.000 manns
á mótið, enda hafi fjölbreyttir
viðburðir þess mikið aðdráttar-
afl. „Það ríður á að við stönd-
um mjög vel að þessu máli og
landsmótið verði okkur til
sóma, sem ég efast ekki um að
það verður”, segir Haraldur Jó-
hannesson.
Samvæmt áætlun sem gerð
var að vinnuhópi og tæknideild
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
er kostnaður vegna mann-
virkjagerðar og undirbúnings
landsmóts tæpar 80 milljónir
króna og eru vilyrði fyrir því
að það opinbera greiði 45-50
milljónir við gerð frjálsíþrótta-
vallar, sem er langdýrasta
ffamkvæmdin. Er mat vinnu-
hópsins að litlum fjárhæðum
þurfi að ráðstafa vegna ann-
arra íþróttamannvirkja við
mótshaldið, en kostnaður
vegna t.d. hreinlætisaðstöðu
verður greiddur af rekstrarlið
landsmótsins. Áætlað er að
keppni í fjölmörgum keppnis-
greinum landsmótsins fari
ffam á hinum ýmsu stöðum í
héraðinu.
—ICTcH^Ítf chíDI— /rETTbílaverkstæði*°o->
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 Æ M M 1 rn sími: 453 5141 '
. ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmundargata Ib 550 SauSárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA JfcBílaviðgerðir 0 Hjóibarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA Cf fíéttingar ^Sprautun