Feykir - 27.03.2002, Qupperneq 3
11/2002 FEYKIR3
Fjölmenni fagnaði Þórólfi fimmtugum
Mikið flölmenni kom í af-
mælisveislu Þórólfs Gíslasonar
kaupfélagsstjóra á Sauðárkróki
þegar hann hélt uppá fimmtíu
ára afinæli sitt þriðjudagskvöld-
ið 19 mars. Þórólfur og kona
hans Andrea Dögg Bjömsdóttir
slóu upp mikilli veislu í félags-
heimilinu Ljósheimum i tilefni
þessara tímamóta. Þangað
mætti fjöldi manns bæði úr hér-
aði og einnig mátti sjá mörg
kunnugleg andlit af höfuðborg-
arsvæðinu m.a. fjóra ráðherra
úr ríkisstjórninni og háttsetta
embættismenn.
Meðal gesta var Davíð
Oddsson forsætisráðherra og á-
varpaði hann afmælisbarnið.
Sagði Davíð einkenni Þórólfs
að vinna verk sín í hljóði og
hann gerði ekki tilkall til met-
orða eða viðurkenninga. Davíð
sagði að eflaust gerðu margir
Skagfirðingar sér ekki grein
fyrir því hveiju hann hefði á-
orkað fyrir samfélagið, en það
væri mikils virði fyrir jafh stórt
fyrirtæki á héraðsvísu og kaup-
félagið væri að hafa við stjóm-
völinn jafn snjallan mann.
Segja má að Þórólfur hafi
verið áberandi í íslensku við-
skiptalíf síðan hann tók við
starfi kaupfélagsstjóra hjá KS
1988. Auk þess að stýra kaupfé-
m -... M w
\krji
Davíð Oddson og frú renndu norður í afmælið hér eru Dav-
íð og Astríður ásamt gestgjöfunum Andreu og Þórólfi.
laginu og vera stjómarformað-
ur Fiskiðjunnar Skagfirðings
hefur hann setið í stjóm Osta og
smjörsölunnar í Reykjavík og
bankaráði Búnaðarbanka ís-
lands og einnig starfað í nefnd-
um og starfshópum á vegum
hins opinbera.
Fjölmargir samheijar og vin-
ir ávörpuðu afmælisbamið og
konu hans í veislunni og þökk-
uðu samstarf á liðnum árum.
Einnig farsæla stjóm Kaupfé-
lagsins sem hann tók við á erf-
iðleika tímum. Þá var nefnt að
Þórólfur hefur haft mikinn á-
huga fyrir atvinnumálum hér-
aðsins ekki síst eflingu land-
búnaðarframleiðslu.
Talsvert var um söngatriði í
veislunni, Álftagerðisbræður
sungu við undirleik Stefáns
Gíslasonar og einnig Jóhann
Már Jóhannsson bóndi í Kefla-
vík við undirleik Sólveigar Ein-
arsdóttur, en veislustjóri var
Pétur Pétursson einn Álftagerð-
isbróðir. ÖÞ/ÞÁ.
Mikið fjölmenni mætti til veislunnar hjá kaupfélagsstjóra-
hjónunum, talið yfir þrjú hundruð manns, þar á meðal
mörg kunnuglcg andlit af höfuðborgarsvæðinu, m.a. fjórir
ráðherrar. Myndir Örn.
HEIMILISLÍNA B Ú N A Ð A R B AN KAN S
„ Frá og með deginum í dag þurfum
við ekki að borga dráttarvexti “
FtÁÐGJÖF OG ÁÆTLANAGERÐ
r GREIÐSLUJÖFNUN
GREIÐSLUÞJÓNUSTA
Útgjöldum ársins er dreift í jafnar mánaðargreiðslur
- reikningamir greiddir á réttum tíma
Áunninn lánsréttur með reglubundnum spamaði gefur
möguleika á hagstæðari lánum.
Félagar fá handhæga skipulagsbók og möppu
fyrir fjármál heimilisins. Auk þess eru
ljármálanámskeiðin á sérstöku verði fyrir félaga.
BUNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Sauðárkróki, Hofsósi, Varmahlíð
14
HEIMILISLÍ NAN
EINFALDAR FJÁRMÁLIN
- Heildarlausn á fjármálum
einstaklinga