Feykir - 27.03.2002, Qupperneq 6
6 FEYKIR 11/2002
Hagyrðingaþáttur 335
Heilir og sælir lesendur góðir.
Undanfarið hafa sparnaðartillögur
verið ræddar á Landsspítala háskóla-
sjúkrahúsi. Spara átti í fyrstu 800 millj-
ónir sem síðan hefur lækkað í 400
milljónir vegna þess hversu sameining-
in er sögð vera dýr. Burtfloginn Skag-
firðingur sem er vel kunnur þessum
málum yrkir svo.
Niður þið skuluð nú skeraða.
Af skynsemi verðið að beraða.
En alþjóð hún veit
að ég er úr sveit
og get ekki hætt að geraða.
Þegar ráðherraskiptin urðu á dögun-
um var þess getið að tveir af þeim væru
nú hálfhorskir, og tveir aðrir náskyldir
Norðmönnum. Afþví tilefni orti Skag-
firðingurinn.
Á pólitík okkur við pirrum
og pínulítið er skrítið
að það sem að flúðum við fyrrum
fáum við nú fyrir lítið.
Þá heyrum við næst af hugleiðing-
um Einars Sigtryggssonar á Sauðár-
króki.
Seðlabankans háu höll
hefur þjóðin kostað öll.
Rafinagnsknúin tölvutröll
tölta þar um víðan völl.
Innan veggja eru þar
æviráðnir loddarar.
Hagffæðinga -höfðingjar
harðir vaxta okrarar.
Gjaldþrot blasa víða við
vaxtaokur spillir frið.
Alvarlegt er ástandið
allt í molum hagkerfið.
Verðbólgan nú virðist há
valt er gengi krónan lá.
Atvinnuleysi allir sjá
eymd og kreppu kallar á.
Óstjóm verður öllum dýr
út á landi fólkið flýr.
Haftastefnan skörp og skýr
skynsemin í mörgum rýr.
Alheimskreppu allir spá
örlög þjóða flestir sjá.
Vekur kvíða veröld flá
valdaklíkur horfúm á.
í 331. þættinum birtist eftirfarandi
vísa eftir Sigmund á Vestari - Hóli.
Má nú hafa af mörgu brúk
minn er auður slíkur.
Sigga vantar sauða kúk
sá er ekki ríkur.
Hef ég nú fengið þær skýringar á til-
urð þessarar vísu að maður að nafni
Sigurður Friðriksson á Siglufirði hafi
farið til Sigmundar og falast eftir skít
vegna gróðursetningar á trjáplöntum.
Um för þessa yrkir Sigurður svo.
Þar fagmennsku og fræðslu nýt
um flest er snertir gróður,
því bæði um kúa- og kindaskit
karlinn vel er fróður.
Seinna mun ég selja tré
og segja ffá í blaði,
að vel mitt hefúr vaxið fé
af völdu sauða taði.
Á baksíðu Feykis sem kom út 23.
janúar sl. var grein þar sem kvartað var
yfir því hvað Skagfirðingar væru að
verða linir í getnaði. Um þau skelfilegu
tíðindi yrkir Sigurður svo.
Þeir kræfir voru kvennamenn
kunnir af sínum brestum,
ríðu mikið og ríða enn
reyndar bara hestum.
Hundstík heldur Sigurður á búi sínu
og er skylda að hafa hana tryggða. Nú
i vetur hækkuðu þær tryggingar tals-
vert og voni aðalrök tryggingarfélags-
ins að vegna hryðjuverkanna 11. sept.
yrði að hækka gjaldið. Að fengnum
þeim upplýsingum orti Sigurður.
Fast nú mína kreistir kverk
krónur í sjóði renna,
því að heimsins hryðjuverk
hundinum er að kenna.
Það mun hafa verið Hafsteinn Stef-
ánsson á Selfossi sem orti svo eitt sinn
í tíð núverandi ríkisstjómar.
Davíðs stjóm má virða veika
vonlausa til stórra bóta.
j háttvísi og heiðarleika
hefur glatað öllum kvóta.
Mannkærleikur Dóra dró
og drengsskapur í leikinn.
Kálar fólki í Kosovó
með Klinton býsna hreykinn.
Ein vísa kemur hér enn eftir Haf-
stein.
Sæt er soðin ýsa
satt er það.
Er þetta ekki vísa
eða hvað?
Hafsteinn dvaldi um árabil í Vest-
mannaeyjum. Vom þeir vel kunnugir
hann og Brynjólfur Einarsson báta-
smiður þar í bæ. Þessi mun vera eftir
Brynjólf.
Það held ég að fleiri finni
fyrir því en bara ég,
að glerbrotin á gangstéttinni
geta verið hættuleg.
Þakka vel fyrir efni sem borist hef-
ur þættinum og bið reyndar um meira
af svo góðu. Áð lokum þessi vorþrá
Einars Kolbeinssonar í Bólstaðarhlíð.
Sunna skrýði fjöllin ffíð,
foldin síðan hlýni.
Unna tíðum bijóstin blíð
birta á hlíðar skíni.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum,
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Sigríður Jóhannesdóttir
frá Brúnastöðum
t
Sigríður Jóhannesdóttir frá
Brúnastöðum, fæddist á Mola-
stöðum í Fljótum 16. apríl
1908. Hún lést á Sjúkrahúsi
Skagfirðinga, 8. desember
2001. Foreldrar hennar voru,
Jóhannes Friðbjamarson, bóndi
og kennari í Fljótum, f. 22. júlí
1874, d. 4. ágúst 1964 og kona
hans, Kristrún Jónsdóttir, f. 6.
janúar 1881, d. 1. mars 1964.
Sigríður giftist Jóni Arngríms-
syni, f. 8. febrúar 1901, d. 8.
nóvember 1942. Þau eignuðust
fimm böm, sem em: Sigurður,
f. 18. mars 1929, d. 8.
september 1986, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn á Selfossi,
Haukur, f. 16. júlí 1932, fyrr-
verandi vélgæslumaður við
Skeiðsfossvirkjun, Rimasíðu 25
c Akureyri, Ríkharður, f. 4.
febrnar 1935, bóndi á Brúna-
stöðum, Ástrún, f. 20. mars
1938, d. 1. apríl 1994, verslun-
armaður og iðnrekandi í
Reykjavík og Danmörku og
Jóna Ólafía, f. 3. apríl 1942,
húsffeyja og skólaliði, Birkimel
11 Varmahlíð. Soninn, Svein
Einald, f. 29. ágúst 1945, átti
Sigríður með sambýlismanni
sínum, Áma Sæmundssyni.
Það var vor í lofti í íslensku
þjóðlífi árið 1908. Fyrstaung-
mennafélagið var stofúað á Ak-
ureyri í ársbyrjun 1906 og Ung-
mennafélag íslands ári síðar.
Kaupfélögunum óx fiskur um
hrygg með hveiju árinu sem
leið og Samband íslenskra sam-
vinnufélaga var stofnað 1902,
og svo mætti lengi telja. Þjóðin
var farin að horfa til fullveldis,
sem varð að veruleika árið
1918. Inn í þetta samfélag
fæddist Sigríður Jóhannesdóttir
og bróðir hennar Ólafúr Jó-
hannesson, síðar prófessor við
Háskóla íslands, þingmaður og
forsætisráðherra.
Þau systkinin munu
snemma hafa farið að finna til
og taka þátt í stormum sinnar
tíðar svo sem títt var um börn
og unglinga á þessum tíma.
Blær vors og gróanda fór um
þjóðlífið og unga fólkið horfði
ekki síður en nú björtum augum
til framtíðarinnar, ákveðið í því
að vinna ættjörð sinni og af-
komendum svo mikið gagn
sem þeim væri mögulegt.
Ölafúr nam lögfræði, flutti
til Reykjavíkur og vann landi
sínu og þjóð að mikilli elju og
trúmennsku til síðasta dags, en
Sigríðar varð bóndi og hús-
freyja og vann öll sín störf af
mikilli prýði og myndarskap.
Ung giftist hún Jóni Amgríms-
syni og bjuggu þau mest af sín-
um stutta búskap á Brúnastöð-
um en Jón varð skammlífúr, lést
árið 1942 sama árið og yngsta
barnið þeirra fæddist. Það var
skírt við kistu föður síns og
hlaut nafnið Jóna Ólafía.
Ekkjan unga lét ekki hug-
fallast en tókst á við erfiðleik-
ana með æðruleysi sem henni
var svo eðlilegt og sigraðist á
þeim með aðstoð sinna góðu
bama. Hún bjó búi sínu áffam á
Brúnastöðum og þar ólust öll
börnin upp sex að tölu.
Árið 1945 tók Sigríður upp
sambúð með Árna Sæmunds-
syni og eignaðist með honum
soninn Svein Einald, sama ár.
Árið 1965 fluttust þau þijú til
Sauðárkróks og byggðu sér hús
á Hólmagrund 16, þar sem þau
undu vel við hlið, vina og góðra -
granna. Árni andaðist 7. júni
árið 1980. Eftir það hélt Sigríð-
ur heimili á Hólmagrundinni
með syni sínum Sveini á meðan
kraflar leyföu. Honum unni hún
mjög og hugsaði til hans fýrst
og síðast. Mörg bamabörn
hennar dvöldu hjá henni á
Hólmagrundinni og höföu þar
skjól, meðan þau stunduðu nám
í Fjölbrautarskólanum eða voru
við störf á Sauðárkróki. Þar
undu þau vel hag sínum og
þakka nú innilega fýrir hjálpina
og samfýlgdina. Þeim er löngu
ljóst að það voru forréttindi að
fá að búa hjá ömmu sinni.
Sigríður fór ekki varhluta af
sorginni. Hún missti mann sinn
ung eins og fýrr er getið og síð-
an tvö börn sín þau Sigurð og
Ástrúnu, bæði á besta aldri. I
raunum þessum sýndi hún fá-
dæma þrek og dugnað, sem
vakti athygli allra sem til
þekktu. Sigríður var að eðlisfari
hlédræg og kunni því best að
vinna verk sín í kyrrþey. Hún
var föst fýrir, réttsýn og sann-
gjöm í allri umfjöllun um menn
og málefni, trú og trygg. Hag-
sýn var hún og fór vel með allt,
sem henni var trúað fýrir.
Hún var listræn og ljóðelsk,
vann mikið í höndum og las
talsvert, bæði bundið og óbund-
ið mál.
Virkan þátt tók Sigríður í
starfi kvenfélagsins í Fljótum
og var heiðursfélagi þess. Henni
var æskusveitin mjög kær og út
í Fljót fór hún svo oft sem hún
gat því við komið. Þar rifjaði
hún upp minningarnar frá
æsku- og búskaparárum og þar
leið henni best á meðal afkom-
enda, ættingja og vina.
Til kirkju á Knappstöðum
kom hún hvert sumar, síðustu
árin, á meðan heilsan leyföi. Þar
hitti hún frændur og vini og sá
sveitina sína í sumarskrúða.
Dagar þessir voru henni mjög
kærir. Hún var barn vorsins og
gróandans.
Sigríður var jarðsungin frá
Barðskirkju í Fljótum, 15. des-
ember s.l. Þar kaus hún að hvíla
á meðal forfeðranna. Blessuð sé
minning tengdamóður minnar,
hetjunnar Sigríðar Jóhannes-
dóttur.
Sigtryggur Jón Björnsson.