Feykir - 27.03.2002, Síða 8
Sterkur auglýsingamiðill
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra
27. mars 2002, 11. tölublað, 20. árgangur.
Anna Karlotta Einarsdóttir höfundur sigurlagsins „Ekki
meir“, sem Seep river hooks fluttu.
Enn sigur í Söngkeppni
framhaldsskólanna
„Þetta var gjörsamlega æð-
islegt. Við komum þama bara
til að vera með og bjuggumst
ekkert við miklu. En lagið
gerði sig virkilega vel og kraft-
urinn í þvi var meiri en maður
bjóst við. Ég held að það hafi
gert útslagið. Það bjuggust
greinilega allir við rólegu lagi
eftir byijuninni að dæma, en
síðan poppaðist þetta upp hjá
okkur og endaði í dúndurkrafti
þannig að maður fann hvemig
salurinn kom með og þetta
heppnaðist virkilega vel”, seg-
ir Éva Karlótta Einarsdóttir ffá
Siglufirði nemandi Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra sem
bar sigur úr bítum í Söngkeppni
ffamhaldsskólanna sem fram
fór í Reykjavík um helgina.
Eva Karlotta fetaði þama í fót-
spor Sverris Bergmanns Magn-
ússonar frá FNV sem vann
keppnina í hitteðfyrra.
Élytjendurnir kalla sig
„Seep river hook” og lagið
„Ekki meir” er eftir Evu
Karlottu og einnig textinn. Að-
spurð segist hún bara vera sjálf-
lærð í músíkinni, lærði einung-
is svolítið á píanó í tónlistar-
skólanum á Siglufirði í „gamla
daga.” Systir hennar Ragna Dís
söng einnig með og Björg Páls-
dóttir frá Blönduósi lék með á
gítar. Þær stöllur vom kampa-
kátar á mánudag á heimleið að
sunnan, þegar blaðamaður
Feykis náði sambandi við
gemsa Evu Karlottu.
„Þetta var æðisleg keppni,
margt flottra laga, og stemning-
in var gífúrleg. Það fylgdi okk-
ur til dæmis heilmikill hópur
suður, sjálfsagt um hundrað
manns. Én nú er það bara skól-
inn sem tekur við og svo reynir
maður að gera eitthvað meira í
sambandi við tónlistina”, segir
Eva Karlotta, en þegar er á-
kveðið að hún verði meðal
söngvara f Dægurlagakeppni
Kvenfélags Sauðárkróks í vor,
syngur eitt af tíu lögum í
keppninni.
KJORBOK
Vinsœlasti sérkjarareikningur Islendinga
- með hœstn ávöxtun í áratug!
Landsbanki /
Íslands / i
í forystu til framtíðar
Útibúið á Sauðórkróki - S: 453 5353 ,
RHA kannar áhrif sameiningar svcitarfélaga
Fylgi við sameininguna minnkar
Sameiningin yrði felld í
tveimur gömlu hreppanna í
Skagfirði yrði kosið í dag,
Seyluhreppi og Lýtingsstaða-
hreppi, en langmesta ánægjan
með sameininguna er i Skarðs-
lireppi nánast algjör, en þar var
andstaðan einna mest á sínum
tíma, en núna er hún mest af
sveitahreppunum í Seyluhreppi,
þar sem hún var minnst á sínum
tíma, en er nú tæplega 60%. Al-
mennt er að sjá að fylgi við
sameininguna hafi minnkað,
samkvæmt könnun sem Rann-
sóknarstofnun Ffáskólans á Ak-
ureyri gerði um áhrif samein-
ingar í sjö sveitarfélögum á
landinu, þar á meðal Skagafirði.
í þessari könnun kom í ljós að
efnahagur sveitarfélaganna
batnaði ekki við sameininguna,
en hinsvegar jókst þjónustan.
Samkvæmt könnun meðal
íbúa í Skagafirði eiga þeir verra
með að hafa áhrif á gang mála
sem fjær búa Sauðárkróki, þar
sem miðstöð valdsins og stjóm-
sýslunnar er staðsett og það er
einnig mat þessara ibúa að að-
gengi þeirra að fulltrúunum
hafi versnað, enda hefúr kjöm-
um fúlltrúum fækkað mjög
vemlega.
Vísbendingar em um að á-
hugi á sveitarstjórnarmálunum
sé eitthvað rýrari í jaðarbyggð-
unum. Raunar em undantekn-
ingar á þessu. Ekki er því ótví-
rætt að fólk á þeim svæðum,
sem teljast hér til jaðarbyggða
sé með öllu áhugalaust um mál-
efni sveitarfélagsins líkt og
dæmi eru um í öðmm samein-
uðum sveitarfélögum.
Félagsþjónusta hefúr aukist
effir sameininguna, t.d. með því
að þjónustustig varð sambæri-
legt við það sem var á Sauðár-
króki fyrir sameininguna, auk
fjölgunar starfsmanna, dagvist-
unar fyrir aldraða og forvamar-
starfsemi. Ekki virðast þó upp-
lýsingar um þetta hafa náð eyr-
um íbúanna.
Skólar hafa ekki verið lagð-
ir niður nema fyrir frumkvæði
íbúanna. Því kemur óánægja í
könnuninni nokkuð á óvart. Án
þess að dómur íbúanna á jaðar-
svæðunum yfir skólunum sé á
neinn hátt véfengdur fer ekki
hjá því að neikvæð umræða um
skólamál á þeim tíma sem rann-
sókn þessi var í gangi kunni að
hafa valdið þar nokkm um.
Ekki leikur vafi á að erfitt
hefúr reynst að halda uppi sama
þjónustustigi í öllum hverfúm
sveitarfélagsins. Þarf það
kannski ekki að koma á óvart
þar sem fámennustu hverfin em
jafnffamt lengst frá miðstöð
stjómsýslunnar. Breytingar í
stjómsýslu urðu mestar fyrir
íbúa smáhreppanna, sem fengu
að glíma við stærra og flóknara
kerfi en áður þekktist.
Nýtt fólk í efstu
sætum H-listans
Valgarður Hilmarsson nú-
verandi oddviti Engihlíðar-
hrepps, sem sameinast hefúr
Blönduósi, skipar efsta sæti á
H-lista vinstri manna og ó-
háðra við sveitarstjómar-
kosningamar í sveitarfélag-
inu í vor. Ný manneskja er
einnig í öðm sætinu, Jóhanna
G. Jónasdóttir leikskólastjón,
núverandi bæjarfúlltrúi A-
listans sem lenti í öðm sæti í
skoðanakönnun hjá Hnjúk-
um og ákvað að vera ekki á-
fram á þeim lista, en hefúr
sem sagt gengið til liðs við
H-listann.
Hjördís Blöndal er eini
þriggja núverandi bæjarfúll-
tiúa H-listans sem er ofarlega
á lista, hún er í þriðja sætinu,
en hinir tveir em í öftustu
sætunum, sem gjaman eru
kölluð heiðurssæti.
Að öðm leyti er H-listinn
þannig skipaður. 4. Guð-
mundur Ingþórsson verktaki,
5. Hulda Bima Frímanns-
dóttir sjúkraliði, 6. Jón Krist-
ófer Sigmarsson tamninga-
maður, 7. Anna Margrét
Jónsdóttir héraðsráðunautur,
8. Eva Hmnd Pétursdóttir
verkakona, 9. Sigríður Helga
Sigurðardóttir leiðbeinandi,
10. Bjöm Guðsteinsson
bóndi, 11. Ingiríður Ásta Þór-
isdóttir póstmaður. 12. Páll
Ingþór Kristinsson húsvörð-
ur. 13. Gestur Þórarinsson
verktaki. 14. Pétur AmarPét-
ursson framkvæmdastjóri.
Landsmót LH 2002
Prinsessan
staðfestir
Staðfest hefúr verið að Anna
Elizabeth Alice Louise Breta-
prinsessa verði heiðursgestur á
Landsmótí hestamanna í Skagafirði í
sumar ásamt Herra Ólafi Ragnari
Grímssyni forseta íslands. Þau á-
samt fylgdarliði munu dvelja tvo
daga í Skagafirði og fylgjast með há-
punktum mótsins ásamt því að taka
þátt í hópreið hestamannafélaga sem
er ómissandi þáttur hvers Lands-
móts. Nærvera þeirra á mótsstað er
mikill heiður fyrir hestamenn.
Forsvarsmenn landsmótsins fagna
sérstaklega komu Önnu Breta-
prinsessu og telja þetta undirstrika
hversu mikill áhugi er fyrir íslenska
hestinum og menningu tengda hon-
um á erlendri gmnd.
-»T
...bflar, tryggingar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
tómarit, jjósritun,
gjafavara...
BÓKABÚÐ
BRYNcJARS
SUÐURGÖTU 1 SÍMI 4B3 59B0
Flísar, flotgólf
múrviðgerðarefni
Aðalsteinn J.
Maríusson
Sími: 453 5591
853 0391 893 0391