Feykir - 12.06.2002, Qupperneq 4
4 FEYKIR 21/2002
„Ævintýri sem Skagfirðingar og nágrannar
mega ekki láta fram hjá sér fara“
„Undirbúningurinn gengur mjög vel. Kröfumar em
orðnar miklar varðandi aðstöðu alla og framkvæmd
landsmótanna, og ég held við getum lofað að aðstæð-
ur verða eins góðar eins og írekast er kostur. Við von-
umst eftir góðu veðri á meðan á mótinu stendur og
emm sannfærðir um að þetta verði gífurlega gott mót,
mikið ævintýri sem Skagfirðingar, nágrannnar og ann-
að áhugafólk má engann veginn láta fram hjá sér fara”,
segir Láms Dagur Pálsson framkvæmdastjóri Lands-
móts hestamanna, en nú styttist óðum í mótið sem
verður 2.-7. júlí. Dagskrá mótsins er tilbúin og greini-
legt að mjög mikið verður að gerast þessa daga, bæði
á völlunum og í tjaldi og á skemmtipalli á kvöldvök-
um og dansleikjum mótsdagana.
Aðspurður segir Lárus
Dagur að þetta sé langstærsta
verkefni sem hann hafi
nokkru sinni komið nálægt,
en það var í byrjun febrúar í
vetur sem Landsmót efh,
gerði samning við Atvinnu-
þróunarfélagið Hring um
verkefnið og fékk Lárus Dag
til að sinna því. Á skipuriti
sem Lárus sýnir okkur, sést á
þéttriðnu neti að það eru
margir þættir sem huga þarf
að fyrir landsmót.
„Það segir sig sjálft að
skipulagningin þarf að vera
mjög góð, þegar von er á rúm-
lega þúsund hrossum til móts-
ins, og gestum á bilinu sex til
tíu þúsund. Upplýsingamiðl-
unin þarf að vera mikil og við
þurfum að búa aðstöðuna
þannig að bæði hestum, kepp-
endum og gestum líði vel og
allir geti skemmt sér.”
Þetta er mikil skemmtun
líka, kannski með útihátíðar-
brag?
„Já en samt ekki, þar sem
valið á skemmtikröftum höfð-
ar ekki beint til unglinga. Við
fengum þessar hljómsveitir
V . j / 1
Hciðrún Ósk Eymundsdóttir frá Saurbæ verður meðal
kcppcnda í unglingaflokki á landsmótinu.
flADO
RADf
Lárus Dagur Pálsson framkvæmdastjóri lnndsmóts hestamannn á Vindheimamelum.
sem hafa dregið að á sam-
komum sem þessum, Stuð-
menn, Papana, KK og Magn-
ús og svo þessa annáluðu
skagfirsku skemmtikrafta,
Karlakórinn Heimi og Álfta-
grðisbræður.”
Hvað með vellina fremra,
er þeir í góðu standi?
„Já það er verið að vinna í
þeim þessa dagana og þeir
verða orðnir frábærlega góðir
fyrir mótið. Þeir voru allir
réttir af og sett nýtt lag ofan á
þá. í efsta laginu verður vikur,
mjúkt fjaðrandi efni sem er
eginlega orðið skylda að hafa
á landsmótsvöllum. Áhorf-
endaaðstaðan hefur líka verið
bætt, áhorfendabrekkan stækk-
uð, þannig að það eiga allir að
geta fylgst vel með því sem
ffam fer. Búið er að setja nýj-
ar innréttingar í stóðhestahús-
ið, girðingar verið lagfærðar
og vegurinn inn á svæðið
byggður upp og lagfærður.”
Kröfurnar aukist
Lárus Dagur segir að körf-
umar til hrossanna séu alltaf
að aukast, enda því haldið
fram að hrossin séu stöðugt í
framfor. Þetta eigi við um
kynbótahrossin, í töltkeppn-
inni og kappreiðunum, en í
gæðingakeppninni er fjöldinn
miðaður við félagatalið í
hestamannafélögunum. Sýn-
ingar ffá ræktunarbúum hafa
sett æ meiri svip á landsmót-
in, enda talin besta auglýsing-
in sem hrossaræktendur fá,
þar sem stór hluti markhóps-
ins mæti á landsmótin.
„Þar er lífleg skráning og
við búumst við um eða yfir 20
ræktunarbúum á mótið”,
sagði Láms en þátttökuffestur
var ffamlengdur örlítið. Að
undanfömu hafa svo farið
ffam um allt land úrtökur
vegna sýningu á kynbóta-
hrossum og annarar keppni á
landsmótinu.
Mótshaldið tvíþætt
Láms segir að ffamkvæmd
landsmótsins sé tvíþætt. Ann-
ars vegar sé það fram-
kvæmdaþátturinn á Vind-
heimamelum sem Vind-
heimamelar efh. sjá um. í
stjóm þess félags em Páll
Dagbjartsson, AgnarV Gunn-
arsson og Bjami Egilsson, en
þessir menn beittu sér einmitt
einna harðast fyrir því að fá
landsmótið í Skagafjörð, í
fimmta skiptið, en fyrsta
landmótið var haldið á Hólum
1966, og síðan á Vindheima-
melurn, 1974,’82 og ‘90.
Hinsvegar er það rekstrar-
þáttur landsmótsins sjálfs,
sem í höndum ný félags
Landsmóts ehf. sem ætlað er
að standa að rekstri landsmót-
anna í ffamtíðinni. Það er í
eigu Landssambands hesta-
manna og Bændasamtaka ís-
lands. Einnig starfar að undir-
búningi landsmótsins og veit-
ir þar ómetanlega aðstoð,
ffamkvæmdanefnd sem skip-
uð er fulltrúum ffá hesta-
mannafélögunum á Norður-
landi. I ffamkvæmdanefhd-
inni eiga sæti: Hjörtur Einars-
son formaður, Guðbjörg Guð-
mundsdóttir, Anna Sif Ingi-
marsdóttir, Hinrik Már Jóns-
son, Eyþór Einarsson og Rafn
Ambjömsson.
Það kemur m.a. í hlut
hestamannafélaganna á Norð-
urlandi að útvega fólk til
gæslu á landsmótinu. Og Lár-
us Dagur segir að búið sé að
ganga frá öllum stærstum
samningum varðandi mótið.
Til að mynda var á dögunum
tekið tilboði Bautans um veit-
ingaþjónustuna. Talsvert hef-
ur verið unnið að útvegun
gistirýmis og búið að taka ffá
félagsheimili, skóla og annað
húsnæði í eigu sveitarfélags-
ins og auglýst eftir herbergj-
um og íbúðum hjá einkaaðil-
um.
- Meðal gesta á mótið er
vitað af nokkrum tignum
gestum, s.s. Forseta íslands
Olafi Ragnari Grímssyni og
Önnu Bretaprinsessu.
„Jú það er þónokkuð stórt
dæmi bara í kringum komu
Bretaprinsessu, sem kemur
ásamt sínum lífverði, og
væntanlega verður talsvert af
erlendum fjölmiðlum sem
fylgja þar með”, sagði Lárus
Dagur Pálsson, en hans bíða
mörg verkefni á næstu vikum,
sem og annarra sem undirbúa
landsmótið, því þótt undir-
búningurinn gangi vel er enn-
þá ýmsu ólokið. Að endingu
má geta þess að aðgangseyrir
inn á mótið er 7.500 kr. fyrir
fullorðna alla dagana, 6.000
kr. ffá föstudagskvöldi kl. 23
og fer stiglækkandi úr því.
Unglingar 13-16 ára þurfa að '
greiða 1500 krónur í aðgangs-
eyri, en böm fá ffítt inn.