Feykir - 04.09.2002, Page 2
2 FEYKIR 29/2002
Sauðí) árslátrun að hefjast
Slátrun er að hefjast þessa
dagana í sláturhúsunum á
Blönduósi, Sauðárkróki og
Hvammstanga og verður vænt-
anlega komin á fúllt í næstu viku.
Slátrað verður á bilinu 57-58
þúsund ijár hjá SAH á Blöndu-
ósi, sem er heldur færra en á síð-
ustu sláturtíð. Hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga verður slátrað um
52.000 dilkum sem er heldur
meira en á síðasta ári og á
Hvammstanga verður slátruð
svipuðu magni og á árurn áður,
35-40.000 dilkum, en slátrun hjá
KVH byijaði á síðasta hausti aft-
ur eftir nokkurt hlé vegna Goða-
málsins, og segja má að markað-
urinn sé að jafna sig að nýju eft-
ir þá holskeflu. Reiknað er með
að sauðfjárslátrun ljúki í lok
október.
í samtölum við sláturhús-
stjórana kom fram að vel hefði
gengið að ráða starfsfólk, en að
þessu sinni verða að vinna við
slátrunina fleiri útlendingar en
áður, mest skandinavar og Pól-
veijar. Á Blönduósi verða um 25
útlendingar, tæplega 20 á Sauð-
árkróki og svipaður fjöldi á
Hvammstanga. Kjaminn í slátur-
liðinu er þó eins og áður bændur
og búalið úr sveitinni, en Ágúst
Andrésson hjá KS sagði að það
hefði í raun komið sér á óvart
hvað fólk var á lausu nú, en það
hefði verið of seint að sækja um
sumhvert, og sjálfsagt hefðu út-
lendingarnir orðið færri ef þetta
hefði komið í Ijós fyrr.
Sigurður Jóhannesson fram-
kvæmdastjóri Sölufélags Austur
- Húnvetninga segir að eftir tals-
verðar hræringar á kjötmarkaðn-
um á þessu ári og greinilega
birgðasöfnun í landinu, sé vissu-
lega ástæða til að hafa varann á.
Það verði væntanlega ekki til að
bæta markaðinn, að ráðherra
skyldi ekki fara að tihnælum
markaðsráðs með útflutnings-
skylduna. Ráðið mælti með 28%
Títanleit í gabbroninnskot-
um í Húnaþingi, er meðal
nokkurra verkefna sem Fjár-
festingarstofan - orkusvið hef-
ur haft til skoðunar á Norður-
landi vestra að undanförnu.
Fulltrúar á þingi SSNV á
Bakkaflöt um helgina urðu eg-
inlega hálf undrandi við þessar
fregnir um títanið, sem fram
komu í framsöguerindi Andr-
ésar Svanbjömssonar yfirverk-
fræðings hjá Fjárfestingarstof-
unni, en lítið hefur verið
minnst á þessa títanleit, sem
mun hafa farið af stað að litlu
leyti fyrir nokkrum árum, og
jafnvel er til skoðunar að gefa
þessu frekari gaum.
Þessi gabbroninnskot með
títaninu eru að sögn Andrésar
aðallega á svæði í Víðidalnum,
skammt frá bænum Lækjar-
móti, í árfarvegi, og sagði Páll
Pétursson, sem staddur var á
þinginu og hefúr greinilega
fylgst með þessu máli, að þetta
útflutningskyldu, en ráðherra
lækkaði hana niður í 25%. Út-
flutningsskyldan var 21 % í fyrra.
„Ég óttast að þetta komi í
bakið á bændum. Hingað til hef-
ur birgðasöfnun og minni eftir-
spum en framboð ekki þýtt neitt
annað en verðlækkun. Ég óttast
að sú verði raunin”, segir Sigurð-
ur Jóhannesson.
væri sérstaklega áberandi við
gömlu brúna hjá Lækjarmóti.
Páll fræddi þingfúlltrúa á því
að þegar títanið var skoðað fyr-
ir nokkrum árum, hafi
mólikúlsamsetningin í því ekki
þótt nógu hagstæð, en Andrés
sagði að vegna breytinga sem
orðið hefði í vinnslu efria á
undanfömum árum, væri sjálf-
sagt ástæða til að kanna títan-
ið frekar, enda skoðunin ekki
ítarleg á sínum tíma.
Þau verkefni sem Fjárfest-
ingarstofan hefúr unnið að á
Norðurlandi vestra að undan-
förnu tengjast: steinull, olíu-
hreinsun, lífefitaiðnaði; kítin úr
rækuskel, sterkju úr fiskafúrð-
urn, matvælaiðnaði; pakkasúp-
ur til útflutnings (Vilko), fisk-
eldi (barri, sandhverfa, kræk-
lingur o.fl.), námuvinnsla;
kalkþörungar úr Hrútafirði og
títanið úr gabbrónámum í
Húnaþingi, smáiðnaður: sokka-
verksmiðja, skinnaiðnaður.
Títanleit í Húnaþingi
Geislandi söngkona
Á kyrru lognværu ágúst-
kvöldi tíndist fólk til sumar-
tónleika á kirkjunni okkar hér
á Króknum. Svana Berglind
Karlsdóttir söng með undir-
leik Rögnvaldar Valbergsson-
ar, tónlist frá Englandi,
Skotlandi, Wales og írlandi, i
bland við annað. í byrjun flutti
Rögnvaldur „Pomp og prakt’’
eftir Elgar á orgel kirkjunnar
með ívafi af sálminum „Land
of hope and glory”. Þetta var
áhrifamikill flutningur.
Svana Berglind söng fyrst
með orgelundirleik, síðan við
píanó, framan við kór kirkj-
unnar. Glæsilegur flutningur
hennar úr ópemnni Dido og
Aenas eftir Purcell sýndi svo
ekki verður um villst að Svana
Berglind er meðal fremstu
kvenna í söng á íslandi. írska
þjóðlagið um siðustu rós sum-
arsins (Last rose of sommer)
var hrífandi fagurt í flutningi
Svönu. Þá söng hún „Little
thing mian a lot” gamla lagið
hennar Guðrúnar Á. Símonar
og jafnaði flutning hennar.
Söngvar um ástina voru áber-
andi. Skoska þjóðlagið „The
vater is wide” var hreint út
sagt ffábært. „I could have
dance all night” úr My fair
lady var flutt með slíkum
glæsileik að jaffiaðist á við
það besta á heimsvísu.
Undirleikur Rögnvaldar á
tónleikunum var með mikilli
smekkvísi og öryggi. Svana
Berglind söng „Summertime”
í lokin með hrífandi hætti, leið
um kirkjuna milli gestanna
ftill öryggis geislandi af feg-
urð. Þvílík rödd, þvílík rödd.
Svana Berglind er sem nýút-
sprungin rós á vordegi. Blómskrúð
Svana Berglind Karlsdóttir.
sumarsins bíður hennar hvert sem
hún kýs að fara. Hún er effii í
heimssöngvara. En við í hennar
heimaranni, þekkjum við fegurstu
rósirnar í garðinum okkar?
Áheyrendur voru um
fimmtíu talsins, söngskráin
samanstóð af fimmtán verk-
um og flutt í samfellu. Það
geislaði af fólki er það yfirgaf
kirkjuna sína þetta eftirminni-
lega kvöld.
hing.
Gordon Mckenzie skólastjóri Belwerie skólans í St. Andrews í
Edinborg og Jackie Flentming aðstoðarskólastjóri við sama
skóla ásanit Oskari G. Björnssyni skólastjóra Arskóla og
Hallfríði Sverrisdóttur aðstoðarskólastjóra.
Skoskt skólafólk
leiðbeinir í Árskóla
Kennsla hófst í Árskóla á
Sauðárkróki skömrnu fyrir
mánaðamótin, en segja má að
eginlegt skólastarfi hafi byrjað
nokkru fyrr, þar sem að skóla-
stjómendur og kennarar notuðu
fyrstu vikurnar í ágúst til að
fara í gegnum alla þætti kennsl-
unnar og starfsins. Eins og á
síðasta ári vori fengnir til að
leiðbeina i þessari vinnu, skot-
arnir Gordon Mckenzie skóla-
stjóri Belwerie skólans í St.
Andrews í Edinborg og Jackie
Flemming aðstoðarskólastjóri
við sama skóla.
Að sögn Óskars G. Björns-
sonar skólastjóra Árskóla voru
skotamir fengnir til aðstoða við
svokallaðar umbótaáætlanir í
skólastarfinu í kjölfar sjálfs-
matsvinnu sem þeir aðstoðuðu
við í fyrra. Skosku skólastjóm-
endumir vom hér í vikutíma en
þau eru talin meðal þeirra
fremstu á þessu sviði í
Skotlandi.
í samtali við Feyki sagði
Óskar Bjömsson skólastjóri að
mjög mikilvægt væri að endur-
meta skólastarfið og gera áætl-
anir sem unnið er að með rnark-
vissum hætti, gera umbætur ef
þurfa þykir.
Skosku leiðbeinendurnir
vom leystir út með gjöfúm þeg-
ar þeir fóru frá Sauðárkróki.
Gordon Mckenzie sagði i þakk-
arávarpi, að þeim hafi fúndist
dvölin á Sauðárkróki mjög
skemmtileg og það hefði verið
gaman og áhugavert að vinna
með kennaraliði Árskóla, sem
greinilega væri mjög hæft fólk.
Áskóli væri að sínum mati
mjög góður skóli, kannski sá
besti í landinu og að lokum
færði Gordon kennurum og
nemendum ámaðaróskir i
skólabyijun.
KVH kaupir Kaupfélag
Hrútfírðinga á Borðeyri
Kaupfélag Vestur - Húnvetn-
inga á Hvammstanga hefur
keypt Kaupfélag Hrútfirðinga á
Borðeyri og yfirtekið reksturinn,
að undanskildum Brúarskála
sem Olíufélagið hefúr keypt.
Eignaskiptin áttu sér stað um
síðustu mánaðamót og frá þeim
gengið í síðustu viku.
Að sögn Bjöms Elísonar
kaupfélagsstjóra á Hvamms-
tanga verður reksturinn á Borð-
eyri í svipuðu horfi og áður, en
verðlag verður samræmt á þess-
um tveimur stöðum. Þá verður
áfram starfrækt sviðavinnsla í
húsnæði sláturhússins á Borð-
eyri. Aðalhagræðingin í yfirtök-
unni á Borðeyri felsti í því að
yfirbyggingin sparast og sagði
Bjöm að skrifstofúhald yrði lagt
niður á Borðeyri og fært á
Hvammstanga. Bjöm vildi ekki
gefa upp það verð sem Kaupfé-
lag Vestur - Húnvetninga greið-
ir fyrir Kaupfélag Hrútfirðinga.
Kernur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir hf.
Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box4,
550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757 og 453 6703.
Farsími 854 6207. Netfang: feyklr @ krokur. is.
Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Blaðstjórn: Jón F.
Hjartarson, Guðbrandur Þ. Guðbrandsson, Sæmundur
Hennannsson, Sigurður Ágústsson og Stefán Amason.
Áskriftarverð 190 krónur hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 200 krónur með vsk. Setning og
umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf. Feykir á
aðild að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða.