Feykir - 04.09.2002, Blaðsíða 3
29/2002 FEYKIR 3
Fvrsta samfélagsþjónustan í landinu
1000 ára atburðar
minnst við Hlíðar-
húsið í Óslandshlíð
Það er ekki oft sem menn
koma saman til að minnast þús-
und ára atburða, en það gerðist
í Hlíðarlundi við Hlíðarhúsið í
Óslandshlíð í Skagafirði, en þar
hefur nýlega stofnað átthagafé-
lag, Geislinn, komið sér upp
sælureit. í reitnum var afhjúp-
aður sl. laugardag minnisvarði
um fyrstu samfélagsþjónustuna
á íslandi, en heimildir um hana
má rekja þar til á tíundu öld,
nokkru fyrir kristnitöku. Var
upphafsmaður hennar höfðing-
inn Amór kerlingamef er bjó á
Miklabæ í Óslandshlíð, er hratt
af stað umbótum, reyndar fyrir
mikil áhrýnisorð móður sinnar.
Það var Páll Pétursson félags-
málaráðherra sem aflijúpaði
minnisvarðann, en ráðuneytið
tók þátt með því að greiða
kostnað við gerð varðans.
Átthagafélagið Geisli á mik-
il ítök í fólki sem ólst upp í Ós-
landshlíðinni og nam í Hlíðar-
húsinu, en þar var lengi skóli
sveitarinnar. Uppeldið á þess-
um slóðum virðist liafa farið vel
með marga, þar á meðal Ara
Sigurðsson sem kenndur er við
Brekkukot, en var þó ekki bú-
settur í Hlíðinni nema frá sex til
fimmtán ára aldurs.
Ari er einn af stjómarmönn-
um í átthagafélaginu og flutti á-
varp við afhjúpun minnisvarð-
ans sl. laugardag. Hann sagði
að elstu skráðu heimildir um
skipulagða samfélagsþjónustu á
íslandi sé að finna í áttunda
hefti íslendingasagna. Á þeim
tíma er frá greinir, nokkm fyrir
kristnitöku, var halllæri mikið
svo fjöldi fólks var bjargarlaust
og þeir sem verst vom settir dóu
úr sulti. Héraðshöfðingjar
komu saman til fúndar og
ræddu um hvemig bregðast
skyldi við þessum vanda. Var
tekin ákvörðun um að reka út á
gaddinn alla þá er sjúkir voru
og aldraðir og aðra þá sem ekki
gætu bjargað sér af eigin ramm-
leik. Þannig töldu þeir að bjarga
mætti þeim sem mest gildi
höfðu fyrir framtíð héraðsins,
en þá var hinn snarpasti vetur
með hríðum og gnístandi veðr-
um.
Þá var mestur höfðingi í
Skagafirði, Amór sem fékk við-
umefnið kerlingamef, á Milabæ
í Óslandshlíð. Þegar Amórkom
heim af áðumefndri samkomu
gekk hann fyrir móður sína og
átaldi hún hann mjög fyrir að
samþykkja svo grimman dóm.
Sýndi hún honum ffam á hve ó-
heyrilegt það væri að inenn
ffamseldu í opinn dauðann for-
eldra sína og ffændur, þó Amór
sjálfúr færi ekki sjálfúr eftir
þessari samþykkt væri hann
meðsekur að hafa samþykkt
slíkt.
Amór fékk bakþanka mikla,
og náði áttuin vegna fortalna
móður sinnar. Lét hann sækja
þá sem voru útreknir og veitti
þeim skjól og næringu. Einnig
stefndi hann saman fjölda
bænda á ráðstefnu og flutti þar
erindi, þar sem hann lagði á-
herslu á að fækka yrði óþarfa
afætum, svo sem hundum og
fararskjótum sem ekki yrði
hvort eð er hægt að ala sökum
hallærisins.
Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra sagði vegna afhjúpun-
ar minnisvarðans að það væri
vel við hæfi að minnast upp-
hafs jafú mikilvægs málaflokks
og samfélagsþjónustunnar, sem
betur fer væri hún nú komin í
góðar skorður hjá íslendingum,
svo þeim væri sómi af meðal
þjóða. Páll vék einnig að því
skemmtilega starfi sem átthaga-
félagið beitir sér fyrir, í kafifi-
samsæti sem haldið var í Hlíð-
arhúsinu á eftir. Þar var notaleg
stund þar sem nokkur ávörp
voru flutt og sveif þar ung-
Stjórn átthagafélagsins Geisl-
ans ásamt Páli Péturssyni
félagsmálaráðherra við minn-
isvarðann: Þorleifur Ólafs-
son, Þórður Eyjólfsson, Páll,
Ari Sigurðsson, Ingibjörg
Ólafsdóttir, sem afhjúpaði
varðann með Páli og Ingi-
björg Stefánsdóttir.
Hluti gesta á athöfninni við
Hlíðarhúsið sl. laugardag.
mennafélagsandinn og átthaga-
tryggðin yfir vötnum.
Ari Sigurðsson sagði m.a. í
ávarpi sínu; um Hlíðarreiturinn,
sem vígður var f hitteðfýrra,
skömmu eftir stofnun Geisla,
að það væri markmið félags-
manna að þessi reitur yrði
menningar- og minningarreitur,
þannig að horft yrði til hans
þegar brottfluttir Skagfiðingar
kæmu í sitt gamla heimahérað í
framtíðinni.
Við höldum hátíð 7. september!
&
Tilefnið er 120 ára afmæli Hólaskóla.
Hún hefst meö brautskráningu í Hóladómkirkju kl. 14, þvi næst
verður afmæliskaffi aö hætti Hólaskóla og efbr það verður hin
eiginlega afmælísdagskrá í kirkjunni. Ávörp verða fiutt, velunnari
skólans verður heiöraður, sagt veróur frá hinu endurvakta
Hólamannafélagi og leikin veröur tónlist.
Allir eru velkomnir.