Feykir - 04.09.2002, Side 7
29/2002 FEYKIR 7
Busavígsla
í Fjölbraut
Skólastarf fer vel af stað í
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra. Nemendur á haustönn
eru rúmlega 400, þar af uni
100 á heimavist. Busavígslan
fór fram sl. fimmtudag. Hún
fór að mestu fram í Grænu-
klaufinni þar sem busamir
vom látnir leysa ýmsar þrautir
áður en þeim var gefinn
„busagrauturinn”. Þá reyndu
þeir með sér í skák Jón F.
Hjartarson skólameistari og
Jón Marz Eiriksson forseti
Nemendafélagsins. Vom bus-
amir þar í hlutverki taflmanna
og tókst skólameistara að beita
þeim til sigurs.
mynd: Skagafjordur.com
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Til sölu tóner í prentara, HP
4 L og HP 4P. Selst á hálfVirði.
Upplýsingar í síma 453 6750.
Til sölu Play station II,
stýrispinni, minniskubbur og
sjö leikir fylgja. Tilboð óskast.
Upplýsingar í síma 862 2180.
Taxi
Ragnar Guðmundsson
Gilstúni 24
Heimasími 453 5785.
GSM 897 4085.
Á sama stað til sölu Isisu
Trooperárg. ‘92,
nýskoðaður og í góðu lagi.
Tek að mér múrviðgerðir.
Tillögu um sam-
einingu vísað frá
Tíunda ársþing SSNy sem
haldið var á Bakkaflöt um helg-
ina, visaði frá tillögu um að fela
stjóm samtakanna að hafa for-
göngu um að láta kanna hag-
kvæmni þess að sameina öll
sveitarfélög á starfssvæði sam-
takanna.
Alsheijamefnd fjallaði um
málið og lagði síðan til að vísa
tillögunni frá, sem þingið sam-
þykkti. Alsheijamefnd mun
hafa þótt ansi lítil hreyfing á
sameiningarmálum á svæðinu
og því væri umfjöllun um svo
yfírgripsmikla sameiningu sem
tillagan fæli í sér ekki tímabær.
Lokaumferð í boltanum
Lokaumferð 2. deildar ís-
landsmótsins í knattspyrnu fer
fram um næstu helgi. Tinda-
stólsmenn fá Völunga í heim-
sókn og hefst leikurinn kl. 18 á
föstudag. Með sigri í leiknum
og hagstæðum úrslitum í öðr-
um leikjum geturTindastól fært
sig upp í 5. sæti deildarinnar, en
liðið er nú í sjöunda sæti með
22 stig, tapaði um síðustu helgi
áSelfossi, 3:1.
Uppskemhátíð meistara-
flokka Tindastóls fer síðan ffam
á Kaffi Krók á laugardags-
kvöld. Þangað em allir velunn-
arar félagsins velkomnir. Húsið
verður opnað klukkan nítján og
borðhald byrjar klukkustund
síðar. Boðið verður upp á
þriggja rétta máltíð á 2.700
krónur fyrir manninn.
Frá fundi Ferðamálaráðs í Kaffi Krók: Pétur Rafnsson formaður fcrðamálasamtaka
íslands í ræðustól, Ingibjörg Hafstað formaóur Ferðamálafélags Skagafjarðar, Einar Kr.
Guðfinnson formaður Ferðamálaráðs og Magnús Oddssson ferðamálastjóri.
Ferðamálaráð fundar með
aðilum í ferðaþjónustunni
Vel var mætt á fundina með Ferðamálaráði. Frá fundinunt
á Kaftí Króki á Sauðárkróki.
Fulltrúar Ferðamálaráðs
hafa að undanförnu verið á
ferð um landið og í byijun síð-
ustu viku voru þeir á Norður-
landi vestra. Fundir voru
haldnir með ferðaþjónustuað-
ilum, í Húnavatnssýslu á
Blönduósi og í Skagafirði á
Sauðárkróki. Góð mæting var
á þessa fundi og líflegar um-
ræður. Núverandi formaður
Ferðamálaráðs er Einar Kr.
Guðfinnsson alþingismaður.
Hann var ánægður með þessa
fundi og sagði mjög gagnlegt
að hitta hagsmunaðila í grein-
inni og hlýða á þeirra sjónar-
mið.
Einar segir að mönnum
hafi að sjálfsögðu verið tíðrætt
um þau vandamál sem ferða-
þjónustan á við að glíma. „-
Stærsta vandamálið er skortur
á nægjanlegri arðsemi en
ferðamannatíminn er stuttur
eins og flestir vita og nýtingin
á fjárfestingum fyrir vikið ekki
nógu góð. Við erum hinsvegar
að hrinda af stað sérstöku átaki
til að reyna markvisst að
lengja ferðamannatímann, þar
sem við bjóðum upp á styrki
til markaðssetningar á ferða-
þjónustu utan hefðbundins
ferðamannatíma gegn fram-
lagi heimamanna. Við höfum
fengið góð viðbrögð við þeim
auglýsingum.
Á þessum fundum hefur
einnig verið mikið rætt um
skort á lánsfjármagni til ferða-
þjónustunnar á landsbyggð-
inni. Byggðastofnun hefur
vissulega lánað mikið til
greinarinnar á lánskjörum sem
best þekkjast. Það verður hins-
vegar að segjast eins og er að
það vantar mikið á að aðrar
lánastofnanir, á höfuðbogar-
svæðinu, hafi skilning á at-
vinnumálum á landsbyggð-
inni, þar með talið ferðaþjón-
ustunni.”
Einar kveðst ánægður með
árangur af fundaherferðinni
það sem af er. „Það er mikil
þörf fyrir svona fundi en þeir
eru fyrst og ffemst lærdóms-
rikir fyrir okkur og styrkja
tegslin við ferðaþjónustuaðil-
ana, þá sem við erum að vinna
fyrir”, sagði Einar.