Feykir - 05.03.2003, Qupperneq 3
8/2003 FEYKIR 3
Frakkir unglingar
í söngkeppninni
Það var ekkert smástuð á
„Söngkeppni FNV” sem haldin
var á sal skólans sl. fimmtu-
dagskvöld. Mikið er lagt í þessa
keppni og ljóslega hefur það
orðið „Fásurum” hvatning
hvemig þeirra fulltrúum hefur
vegnað í Söngkeppni fram-
haldsskólanna á undanfömum
árum, en á skömmum tíma hafa
þeir þrívegis fagnað sigri, fyrst
Hrafnhildur Yr Víglundsdóttir,
síðan Svcrrir Bergmann og svo
Eva Karlotta á síðasta ári.
Það var talverðu kostað til
að þessu sinni. Gæðabandið
„17 vélar” ffá Dalvík, með
söngkonuna kumiu Hem Björk
í broddi fylkingar sá um hljóð-
færaleikinn í flestum laganna
og léku einnig í hléinu sem
dómneffidin tók sér til að gera
úrslitin klár.
Þau vom fjórtán númerin
sem í boð vom að þessu sinni,
og viðfangsefnin mjög fjöl-
breytileg, allt ffá ballöðum upp
í dauðarokk, rapp og pönk.
Sumir vom á háalvarlegum
nótum, en aðrir vom með
húmorinn og flippið í bland,
eða létu það ráða ferðinni. Það
var hreint ótrúlegt að verða
vitni að því hvað unglingar í
dag em ffakkir og láta allt
flakka, nokkuð sem hefði verið
stranglega bannað og sent út í
ystu myrkur fyrir ekki svo
löngu. Til að mynda vom þeir
félagar „Two Stalions” Gummi
og Maggi, frá Stóm-Ásgeirsá
og Blönduósi, á ystu nöf en
þrælskemmtilegir. Ein og hálf
kippa og fimm búnir, vom
þrælgóðir og liprir í dansinum,
eitt af líflegri atriðum kvölds-
ins.
Það var þó „lopapeysukór-
inn” sem þótti skarta frumleg-
asta atriðinu. Þeir Jón Marz for-
seti nemendafélagsins, Gunni
Sig, Palli Camel, Kári V-tec og
Tobba ritstýra sungu með ýms-
um afbrigðum „Kmmmi sat í
klettagjá”
Lopapeysukórinn var með frumlegasta atriðið.
Ein og hálf kippa.... voru iíflegir og skemnitilegir.
Fólk var vel með á áheyrendabekkjunum.
Sigurvegararnir Gunni og Kiddi rappa sigurlagið.
Rapplag í úrslit
Það verða rappamir „Gunni
og Kiddi”, Gunnar Andrésson
og Kristinn Loftur Einarsson,
sem sigmðu í keppninni að
þessu sinni og var textinn sem
þeir fluttu eftir Helga Sæmund
Guðmundsson aðal rímnaskáld
Fjölbrautaskólans. Þeir Gunni
og Kiddi verða því fúlltrúar
FNV í Söngkeppni ffamhalds-
skólanna sem ffam fer á Akur-
eyri 20. mars nk. á tvítugsaf-
mæli Gunna, en um Kidda má
segja að hann var valinn besti
rappari Islands á músíktilraun-
um á síðasta ári.
I öðm sætinu urðu Ragna
Dís Einarsdóttir og Sigrún
Kristinsdóttir með rólegt og
hugljúft lag. Þriðja varð síðan
Dagný Bryndís með lagið „Call
me”, sem einnig er í ljúfari
kantinum.
Síðast en ekki síst má geta
þrenningarinnar og klæðskipt-
inganna sem sáu um kynningar
á söngvakeppninni. Þau áttu
mjög góða spretti: Atli Þór
Fanndal Reykjavík, Steinar Öm
Sturluson Ytri - Löngumýra og
Aníta Sigurbörg Ásmunds-
dóttir Sauðárkróki.
Blákaldar staðreyndir um fyrsta flokks
AEG frystikistur af ýmsum stærðum
Vörunr. Heiti Brútto lítrar Netto litrar Hæð sm Breidd sm. Dýpt sm. Körfur Læsing Rafm. notkun kWh Verð
1 2 H S HF 120 132 126 86 55 61 1 Nei 0,60 39.900.-
22 H L EL 22 215 205 86 72 73 1 Já 0,71 45.900,-
35HL EL 35 347 332 86 105 73 2 Já 0,92 49.900,-
39 H L HFL390 401 382 86 130 65 2 Já 1,31 56.900,-
45 H L EL 45 447 428 86 130 73 2 Já 1,13 56.900,-
53 H L EL 53 527 504 86 150 73 3 Já 1,26 66.900,-
61 HL EL 61 607 581 86 170 73 3 Já 1,41 73.900,-