Feykir - 25.02.2004, Qupperneq 3
8/2004 FEYKIR 3
Matur og gleði á
þorrablóti Heimis
á Hótel íslandi
Það má með sanni segja að andi há-
tíðarinnar „Food and Fun” hafi svifíð
yfír vötnum á Broadway sl. laugar-
dagskvöld þegar Karlakórinn Heimir
stóð fyrir skagfirsku þorrablóti. Nóg
var af matnum, súrum og ósúrum, og
enn meira af fjörinu sem fylgdi í kjöl-
far borðhaldsins. í húsinu voru 400-
500 manns, ijölmargir burtíluttir Skag-
firðingar, og skemmtu allir sér hið
besta.
Veislustjóri var Oskar Pétursson ffá
Álfíagerði og átti hann auðvelt með að
fá salinn til að syngja fjöldasöng, á
milli þess sem hann sagði gamansögur
af sveitungum og öðrum samferða-
mönnum. Og að sjálfsögðu tók hann
lagið með kómum, sem flutti nokkur
lög á Broadway ásamt einsöngvumm
Einari Halldórssyni ffá Kúskerpi, Sig-
fúsi Péturssyni ffá Alftagerði og Mar-
gréti Stefánsdóttur ffá Víðidal. Einnig
söng Gísli Pétursson Alftagerðisbróðir
tvísöng með Einari.
Söngatriðin em ekki upptalin því
Heimismenn sýndu það og sönnuðu
að eplið fellur sjaldan langt ffá eikinni,
þó í kvenlegg sé. Þær Sigurlína Ein-
„Abba-systurnar" úr Blönduhlíðinni tók lagið við góðar undirtektir, þær
Sigurlína Einarsdóttir og Kolbrún Erla Geirsdóttir, dætur tveggja Heimis-
manna.
Árni Bjarnason, Óskar Pétursson veislustjóri, Kristján Stefánsson og Sig-
urður Hansen láta Ijós sitt skína í bundnu máli.
Myndir og texti: Björn Jóhann Björnsson.
Óskar og Gísli frá Álftagerði fóru á kostum ásamt Einari Halldórs á Kú-
skerpi og settu á svið mjaltir undir einu sveitalaginu sem var kyrjað.
arsdóttir Halldórssonar og Kolbrún
Erla Grétarsdóttir Geirssonar komu
ffam sem Abba-systur og sungu nokk-
ur lög þeirrar fomffægu söngsveitar.
Ekki má svo gleyma hagyrðingun-
um úr kómum sem létu, auk Sigurðar
Hansen frá Flugumýri, ljós sitt skína
milli söngatriða. Kristján Stefánsson
frá Gilhaga var meðal þeirra og hittir
hann oftar en ekki naglann á höfúðið
þegar bundið mál er annars vegar.
Þama um kvöldið var honum hugsað
til fuglaflensunnar sem herjað hefúr á
íbúa Austurheims, þar sem þeir hafa
verið hvattir til að snerta ekki fíðurfén-
aðinn:
Áður fyrr í útlandinu off var gaman,
fféttist oft af Frónsins sonum
fíktandi í gleðikonum.
Læknar þetta ljótan töldu og leiðan
vana.
En nú er læknaöldin önnur,
og á það líka færa sönnur.
Ef þið farið út í heim í einum
grænum;
elskumar í öllum bænum
ekki fara að klappa hænum.
Kristján átti fleiri góða spretti og gat
að sjálfsögðu ekki látið hjá líða að
minna viðstadda blótsgesti á helstu
kosti Heimismanna:
Það er eins satt, og sem ég héma
stend
og sögur em það um víða á sveimi;
að feimni eða minnimáttarkennd
muni ekki vera til í Heimi.
Loks mátti Kristján til með að
skjóta létt að veislustjóranum, Óskari
og þeim bræðmm ffá Álftagerði, sem
jafnan hafa vakið mikla aðdáun og
hrifúingu kvenna, ekki síst þeirra eldri:
Frétt um þessa söngvasveina káta
sífellt hefur vakið eftirtekt.
En að láta gamlar konur gráta
getur varla talist skemmtilegt.
Hlaðborðin á Broadway svignuðu undan kræsingunum, sem að sjálf-
sögðu voru að mestu gerð úr skagfírsku hráefni.